Fréttablaðið - 31.10.2016, Page 8
Á netinu, snertilaust
og um allan heim
Nýtt debetkort Landsbankans gerir alla verslun og þjónustu
þægilegri og öruggari. Nú getur þú verslað á netinu með debetkortinu,
greitt snertilaust og notað kortið á fjölmörgum stöðum um allan heim.
Kynntu þér nýtt debetkort á landsbankinn.is/nyttdebetkort
50
40
30
20
10
0
50
40
30
20
10
0
n Björt Framtíð
n Framsókn-
arfl.
n Viðreisn
n Sjálfstæðisfl.
n Píratar
n Samfylkingin
n Vinstri græn
✿ Fylgi flokkanna skv. skoðanakönnunum 365 og Gallup
©Kristinn Ingvarsson Baldur
Þórhallsson *** Local Caption ***
Þetta er promo mynd frá honum. Má
nota à allt.
Helst er að merkja að skilaboð
kjósenda í alþingiskosningunum á
laugardaginn hafi verið að standa
skuli vörð um efnahagslegan stöð-
ugleika, ákall um samstarf á hinu
pólitíska sviði og hógværar kerfis-
breytingar. Óbreytt ástand er ekki
í boði frekar en kollsteypur.
Þetta er rauði þráðurinn þegar
stjórnmálaskýrendur eru spurðir
um hver skilaboðin voru frá kjós-
endum á laugardaginn þegar litið
er yfir sviðið í heild.
Grétar Þór Eysteinsson, prófessor
í stjórnmálafræði við Háskólann á
Akureyri, segir að vel megi túlka
gott gengi Sjálfstæðisflokksins sem
vilja kjósenda um stöðugleika – eða
varkára efnahagsstjórn sem var
kjarninn í skilaboðum flokksins
í kosningabaráttunni. Sé horft til
fylgis Pírata, Viðreisnar og Bjartrar
framtíðar þá megi túlka það sem
ákall um breytingar. „Kannski
eru þetta megin línurnar,“ segir
Grétar. Þetta er ekki eindregin
hægri eða vinstri sveifla. „Sjálf-
stæðisflokkurinn og Vinstri grænir
bæta við sig fylgi, en miðjan sem
heild er líka að koma vel út. Þá má
spyrja hvort ekki sé mögulegt að
færa kjósendum hvoru tveggja. Í
þessu felst kannski beiðni um að
ljúka uppgjörinu við hrunið – bæði
með ákveðnum hógværum breyt-
ingum á kerfinu en líka að halda
þessum ávinningi sem við höfum
vissulega náð – að klúðra honum
ekki.“
Baldur Þórhallsson, prófess-
or í stjórnmálafræði við Háskóla
Íslands, segir skýrar línur vandséð-
ar. Fjórðungur kjósenda hafi valið
Pírata og Viðreisn – frjálslynda
umbótaflokka. Þeir vilji breytingar
í sjávarútvegsmálum, landbún-
aðarmálum og á stjórnarskrá – en
mismiklar þó. Það sé athyglisvert
í samhengi við það að gamli fjór-
flokkurinn fái aðeins rétt rúmlega
60% fylgi sem er lang lægsta hlut-
fall atkvæða sem þeir hafa fengið í
kosningum og í staðinn leiti fylgið
til frjálslyndra umbótaflokka.
Viðreisn – miðjuflokkur sem
hallar sér til hægri – er í lykilstöðu,
segir Baldur. Viðreisn hafi þó
hafnað Píratabandalaginu og tali
fyrir stjórnarmyndun með Sjálf-
stæðisflokknum og þriðja flokki
öðrum en Framsóknarflokknum.
„Björt framtíð kemur þá fyrst upp
í hugann, en sú stjórn hefði aðeins
32 þingmenn sem er ekki sterk
staða,“ segir Baldur. Viðreisn líti
vissulega til Sjálfstæðisflokksins
og Vinstri grænna en slík stjórnar-
myndun sé vart inni í myndinni
fyrr en eftir nokkurra vikna stjórn-
arkreppu. Ástæðan er að grasrótin
og flokksstofnanir Vinstri grænna
standa í veginum en þá beri að hafa
í huga „að í stjórnarkreppu leyfist
mönnum meira,“ segir Baldur.
svavar@frettabladid.is
Hvorki kollsteypur né óbreytt ástand
Hógværar kerfisbreytingar og varkár efnahagsstjórn virðast vera skilaboð kjósenda eftir kosningarnar á laugardag. Stjórnmálaskýr-
endur segja að óbreytt ástand komi ekki til greina frekar en kollsteypur. Lykilstaða Viðreisnar í stjórnarmyndun blasir við.
Í þessu felst kannski
beiðni um að ljúka
uppgjörinu við hrunið
– bæði með ákveðnum
hógværum breytingum á
kerfinu en líka að
halda þessum
ávinningi sem
við höfum
vissulega náð
– að klúðra
honum ekki.
Grétar Þór Eysteinsson, prófessor við HA
...í stjórnarkreppu
leyfist mönnum
meira.
Baldur Þórhallsson,
prófessor við HÍ.
1999 2003 2007 2009 2013 2016
✿ Fylgi flokkanna í alþingiskosningum frá 1999
7,2%
11,5%
10,5%
29,0%
14,5%
5,7%
15,9%
5,1%
11,2%
25,1%
20,3%
6,0%
16,4%
10,8%
9 mars 5 apr 30 apr 27 maí 1 jún 6 sept 26 sept 5 okt 12 okt 29. sept 19 okt 28 okt 26 okt
3 1 . o k t ó b e r 2 0 1 6 M Á N U D A G U r8 F r é t t i r ∙ F r é t t A b L A ð i ð
3
1
-1
0
-2
0
1
6
0
5
:1
7
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
1
D
-8
2
0
0
1
B
1
D
-8
0
C
4
1
B
1
D
-7
F
8
8
1
B
1
D
-7
E
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
3
0
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K