Fréttablaðið - 31.10.2016, Blaðsíða 13
fólk
kynningarblað 3 1 . o k t ó b e r 2 0 1 6 M Á N U D A G U r
Hópurinn í Dubai (f.v.), Sara Jónsdóttir, stjórnandi HönnunarMars, Þórunn Hannesdóttir hjá North Limited, Sigríður Hjaltdal hjá North Limited, Róshildur Jónsdóttir og Snæbjörn Stefánsson hjá 1+1+1 og Gústav
Jóhannsson og Ágústa Magnúsdóttir hjá AGUSTAV. MYND/HÁLFDÁN PEDERSEN
Þrjú íslensk hönnunarteymi sýndu
á Dubai Design Week í síðustu
viku en þetta er í fyrsta sinn sem
íslenskir hönnuðir taka þátt á þess-
ari stærstu sölusýningu hönnunar
í Miðausturlöndum.
Á hverju ári bjóða skipuleggj-
endur Dubai Design Week og sölu-
sýningarinnar Downtown De-
sign þremur til fimm hönnunar-
vikum að sýna á hátíðinni. Í ár
var HönnunarMars frá Reykja-
vík valin, auk hönnunarvikna frá
Barcelona, Addis Ababa, Beirut og
Taipei en hátíðin fór fram dagana
25.-28. október.
Það voru fyrirtækin Agus-
tav, 1+1+1 og North Limited sem
kynntu hönnun sína en þetta var
mikið tækifæri fyrir fyrirtæk-
in þrjú og um leið fyrir Hönnun-
arMars að sögn Söru Jónsdóttur,
verkefnastjóra HönnunarMars,
sem fór út til Dubai með íslenska
hópnum. „Stjórnendur í Dubai
voru ráðleggjandi varðandi val á
fyrirtækjunum héðan og ljóst er
að þeir hafa áhuga á að kynna nor-
ræna hönnun og verkefni sem eru
mun nær grasrót hönnunar en al-
mennt sést í Dubai.“
Dubai Design Week er stór hátíð
með fjölda viðburða um alla borg
að sögn Söru. „Downtown Dubai
er sölusýning í risastóru tjaldi
þar sem fyrirtæki leigja sýning-
arbása. Þar voru alls kyns fyrir-
tæki, frá Swarovski yfir í norsku
Jotun málninguna, eða Hermann
Miller yfir í Gaggenau. Innan um
stóru fyrirtækin voru svo hönnun-
arhátíðirnar með minni fyrirtæki
frá sínum löndum. Þar gafst fyr-
irtækjum okkar mjög gott tæki-
færi til að hitta kaupendur, fram-
leiðendur og mynda tengslanet.
Ef allt gengur að óskum verða til
viðskiptasambönd sem geta orðið
verulega verðmæt í framtíðinni.“
Básinn vakti athygli
Sara segir hönnuðina að baki Ag-
ustav, 1+1+1 og North Limited
hafa sjálfbærni að leiðarljósi við
hönnun á hágæða vörum sem bera
með sér sterkan keim norrænn-
SérStök og öðruvíSi
Íslenskir hönnuðir tóku þátt í stærstu sölusýningu hönnunar í Miðausturlöndum í síðustu viku undir merkjum
HönnunarMars. Básinn vakti mikla athygli sýningargesta og nálgun íslensku hönnuðanna þótti sérstök og öðruvísi. Það
voru fyrirtækin Agustav, 1+1+1 og North Limited sem kynntu hönnun sína.
Járn & Gler ehf. - Skútuvogur 1h.
Barkarvogsmegin - 104 Reykjavík
S: 58 58 900-
www.jarngler.is
Fyrirtæki - Húsfélög
—————————
Við bjóðum upp á
sjálfvirkan hurða-
opnunarbúnað ásamt
uppsetningu og
viðhaldi
Auðveldar aðgengi, hentar vel fyrir
aðgengi fatlaðra.
Áratuga reynsla af búnaði
tryggir gæðin.
Lesa bara FBL
68%
Lesa bæði
FBL OG MBL
21%
Lesa bara MBL
11%
89%
af lesendum dagblaða*
á höfuðborgarsvæðinu
á aldursbilinu 18–49 ára
lesa Fréttablaðið daglega.
*Fréttablaðið og Morgunblaðið.
Heimild : Prentmiðlamæling Gallup júl.-sep. 2016
Starri Freyr
Jónsson
starri@365.is
3
1
-1
0
-2
0
1
6
0
5
:1
7
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
1
D
-6
4
6
0
1
B
1
D
-6
3
2
4
1
B
1
D
-6
1
E
8
1
B
1
D
-6
0
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
3
0
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K