Fréttablaðið - 30.05.2016, Síða 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —1 2 6 . t ö l u b l a ð 1 6 . á r g a n g u r M á n u d a g u r 3 0 . M a Í 2 0 1 6
Fréttablaðið í dag
skoðun Gegnum aldirnar hafa
hetjurnar í sögunum verið úti-
legumenn, skrifar Guðmundur
Andri. 13
sport Ísland mætir með marga á
EM sem hafa ekki komið við sögu
í landsleik sem skiptir máli. 16
Menning Ný ópera um fótbolta
og önnur um selsham 22
plús 2 sérblöð l Fólk
l Fasteignir
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
skólaMál Árið 2011 voru grunn-
skólakennarar á Íslandi 9.327.
Ný rannsókn um þróun kennara-
stéttarinnar á næstu áratugum leiðir
í ljós að eftir 35 ár, árið 2051, verði
fjöldi grunnskólakennara kominn
niður í 3.689.
Helgi Eiríkur Helgason meistara-
nemi og Stefán Hrafn Jónsson,
prófessor við Háskóla Íslands,
rannsökuðu samsetningu grunn-
skólakennara á Íslandi og skoðuðu
þróun stéttarinnar.
Samkvæmt Hagstofu Íslands voru
alls 4.531 starfandi kennari í grunn-
skólum landsins með kennslu-
réttindi. Á sama tíma voru 9.327
Íslendingar með réttindi sem grunn-
skólakennarar.
Samband íslenskra sveitarfélaga
áætlar að eftirspurn eftir grunn-
skólakennurum aukist um tíund á
næstu tuttugu árum. „Í ljósi þess að
um helmingur grunnskólakennara
starfar við grunnskólakennslu má
leiða að því líkur að strax árið 2031
verði orðinn mikill skortur á rétt-
indakennurum fyrir grunnskóla að
öðru óbreyttu,“ segir Stefán Hrafn.
Árið 2012 tóku gildi ný lög um
kennslu í grunnskóla. Til að fá leyfis-
bréf sem grunnskólakennari þarf
fólk að klára fimm ára háskólanám í
stað þriggja ára áður. Veruleg fækkun
varð á fjölda útskrifaðra í kjölfarið.
Árið 2015 útskrifuðust 87 einstak-
lingar með háskólapróf og leyfisbréf
sem grunnskólakennari.
„Fátt ef nokkuð bendir til að fjöldi
útskrifaðra kennara komi til með að
aukast á næstu árum,“ segir Stefán
Hrafn. - sa / sjá síðu 10
Spá miklum skorti á
grunnskólakennurum
Ný rannsókn á þróun kennarastéttarinnar leiðir líkur að því að árið 2031 verði
orðinn mikill skortur á réttindakennurum og að árið 2051 verði þeir orðnir nær
þrefalt færri en árið 2011. Lengra kennaranám virðist hafa fælt fólk frá stéttinni.
Í ljósi þess að um
helmingur grunn-
skólakennara starfar við
grunnskólakennslu má leiða
að því líkur að strax árið
2031 verði orðinn mikill
skortur á réttindakennurum
fyrir grunnskóla
að öðru
óbreyttu.
Stefán Hrafn Jóns-
son, prófessor við
Háskóla Íslands.
Beðið eftir að fá að borga Svo mikið álag er á greiðsluvélarnar tvær á Þingvöllum að önnur vélin var biluð í gær þegar ljósmyndari Fréttablaðsins
átti leið hjá. Svo mikil umferð er við bílastæðin að það þarf starfsfólk til að stýra henni og aðstoða ferðafólk. Sjá síðu 4. Fréttablaðið/anton
lÍFið Reykjavíkurdóttirin Tinna,
Bibbi bassaleikari Skálmaldar, Birg-
ir, trommarinn í Dimmu og Ernir í
Ylju hafa stofnað hljómsveitina
Kroniku.
Um tilurð hljómsveitarinnar segir
Tinna að hún hafi fengið skilaboð
frá Bibba þar sem henni var í raun
tilkynnt að hún yrði söngkona í
nýju bandi. – sþ / sjá síðu 30
Fjögur bönd
bjuggu til barn
Viðskipti Mjólkurvinnslu Mjólku
í Hafnarfirði verður lokað á næst-
unni og öll starfsemi flutt í húsnæði
Kaupfélags Skagfirðinga á Sauðár-
króki og í afurðastöð MS í Búðardal.
Starfsfólk við fram-
leiðslu fékk upp-
sagnarbréf í apríl en
þar á meðal er Björn
Valur Ellertsson sem
starfað hefur hjá
fyrirtækinu í fjórtán
ár. „Ég held að það
sé enginn að fara
norður með þeim.“
- snæ / sjá síðu 4
Mjólka flytur til
Kaupfélagsins
Biðröð á Þingvöllum
3
0
-0
5
-2
0
1
6
0
4
:2
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
9
2
-6
D
0
4
1
9
9
2
-6
B
C
8
1
9
9
2
-6
A
8
C
1
9
9
2
-6
9
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
5
6
s
_
2
9
_
5
_
2
0
1
6
C
M
Y
K