Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.05.2016, Qupperneq 17

Fréttablaðið - 30.05.2016, Qupperneq 17
fólk kynningarblað 3 0 . m a í 2 0 1 6 m Á N U D a G U R Nýlega kom út þriðja tölublað hönnunartímaritsins HA, stút- fullt af áhugaverðu efni eins og fyrri tölublöð. Útgáfa tímaritsins er mjög metnaðarfull en að henni standa eigendur Hönnunarmið- stöðvar Íslands. Markmiðið með útgáfu tíma- ritsins var að skapa vettvang til að dýpka hönnunartengda umræðu í þjóðfélaginu og lyfta henni á hærra plan að sögn ritstjóra þess, Arnars Fells Gunnarssonar. „Við vildum efla þekkingu á hönnun og arkitektúr og sýna áhrif og mikil- vægi þeirra. Tímaritinu er einnig ætlað að vera kynningarvettvang- ur fyrir íslenska hönnun á erlendri grundu og því var ákveðið að hafa það tvítyngt, bæði á íslensku og ensku. Því má segja að markið hafi verið sett mjög hátt strax í byrjun.“ Arnar er menntað- ur grafískur hönnuður en hefur að eigin sögn allt- af haft sérstakan áhuga á því að glíma við texta. „Ég hafði áður starfað sem blaðamaður og ljósmynd- ari og hef alltaf haft áhuga á útgáfu og bókagerð. Ég var búsettur í Hollandi með kærustunni minni þegar vinkona mín benti mér á að sækja um starf rit- stjóra tímaritsins. Ég gat ekki setið á mér og sótti um starfið, enda þykir mér fátt meira spennandi en að ráð- ast í krefjandi verkefni og byggja þau upp alveg frá grunni.“ Þrotlaus vinna Það er miki l áskorun að gefa út tímarit á borð við HA á svo litlum markaði. „Að gefa út rit sem fær hönn- unar- og pappírs- perra landsins til að taka andköf er ekki gert í einni svipan. Þetta er þrotlaus vinna fámenns hóps sem keyrir sig áfram af metnaði og ástríðu. Það er þessum hópi að þakka að tímaritið er að festa sig í sessi og það án nokkurrar mála- miðlunar í prentun eða gæðum. En þetta hefði aldrei verið hægt nema með aðkomu fagfélaganna níu því þar fengum við um eitt þúsund fagmenntaða hönnuði sem áskrif- endur. Þar skapaðist grunnurinn fyrir útgáfuna.“ Smám saman hefur áhugafólk um íslenska hönnun bæst í hóp áskrifenda en erlendir ferðamenn kaupa mest af blaðinu í lausa- sölu. „Annars hafa viðtökurnar verið frábærar og við fáum reglu- lega „aðdáendapóst“ frá fólki víða að úr heiminum sem hefur fall- ið fyrir ritinu. Þótt senan hér sé lítil þá virðist vera af nógu að taka. Við gefum út tvö blöð á ári, vor og haust, og erum ekki í neinum vandræðum með að fylla hverja útgáfu. Á milli blaða er umræðunni er svo haldið á lofti á heimasíðu tímaritsins www.hade- signmag.is, á facebook (HA) og á Instagram (@hadesignmag). Við fengum líka nýlega tilnefningu til FÍT-verðlaunanna og sérstaka við- kenningu á hönnunarverðlaunum Grapevine.“ nýta Þarf meðbyrinn Hann segir Íslendinga aldrei hafa verið sérlega sterka í framleiðslu eða útflutningi, að sjávarútvegi frátöldum, en vissulega eigi ís- lensk hönnun fullt erindi á erlend- an markað. „Sérstaklega ef við setjum hana í samhengi við þann gríðarlega áhuga sem nú er fyrir öllu því sem tengist landinu. Nýta þarf meðbyrinn og áhug- ann til fulls en eins leiðinlegt og það hljómar þá snýst þetta bara um pólitík. Ef við viljum búa til raunverulegan samkeppnishæf- an atvinnuveg úr íslenskri hönn- un og hugviti þá þarf að fjárfesta í innviðum og uppbyggingu, rétt eins og nágrannaþjóðir okkar hafa gert og við höfum sjálf gert í landbúnaði, sjávarútvegi, orku- geiranum og jafnvel ferðamanna- iðnaðinum.“ Hann veltir fyrir sér hvort of mikill fókus hafi verið á einsleita og að sumu leiti úrelta stóriðju- stefnu í stað þess að byggja upp fjölbreytilegt og skapandi at- vinnuumhverfi, drifið áfram af hönnun og hug- viti. „Eins og ég segi þá eru þetta e ng i n ge i m - vísindi, þetta snýst bara um stefnu og metn- aðinn sem er sett- ur í að halda henni.“ starri@365.is markið sett hátt Þriðja tölublað hönnunartímaritsins HA kom nýlega út. Efni blaðsins er fjölbreytt en því er meðal annars ætlað að dýpka hönnunartengda umræðu í þjóðfélaginu og lyfta henni á hærra plan. „Þetta er þrotlaus vinna fámenns hóps sem keyrir sig áfram af metnaði og ástríðu,“ segir Arnars Fells Gunnarsson, ritstjóri HA. MYNDIR/STEFÁN Járn & Gler hf. - Skútuvogur 1h. Barkarvogsmegin. - 104 Reykjavík S: 58 58 900. www.jarngler.is Rennihurðarbrautir í úrvali Skv. Prentmiðlamæling Gallup, jan.-mar. 2016 íbúa á höfuðborgarsvæðinu á aldursbilinu 12–80 ára lesa Fréttablaðið daglega.* 59,5% 59,5% lesa Fréttablaðið 28,6% lesa Morgunblaðið Allt sem þú þar ... 3 0 -0 5 -2 0 1 6 0 4 :2 5 F B 0 5 6 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 9 9 2 -8 A A 4 1 9 9 2 -8 9 6 8 1 9 9 2 -8 8 2 C 1 9 9 2 -8 6 F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 5 6 s _ 2 9 _ 5 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.