Fréttablaðið - 30.05.2016, Page 42
Faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Friðrik Jónsson
Kópavogsbraut 1b, Kópavogi,
lést á LSH Fossvogi 21. maí síðastliðinn.
Útförin fer fram frá Kópavogskirkju
miðvikudaginn 1. júní kl. 13.00.
Halldóra Friðriksdóttir Sveinn Sturlaugsson
Jón Stefán Friðriksson Ágústína Halldórsdóttir
Friðrik Friðriksson Snæbjörg Sigurgeirsdóttir
Haraldur Friðriksson Lilja Björk Högnadóttir
Ólafur Friðriksson
barnabörn og barnabarnabörn.
Minningarathöfn um
Alyson J. K. Bailes
aðjúnkt við stjórnmálafræðideild,
fer fram í Háskóla Íslands, Litla-torgi,
þriðjudaginn 31. maí kl. 15.00.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á líknarsamtök.
Fyrir hönd samstarfsfólks í Háskóla Íslands,
Baldur Þórhallsson,
deildarforseti stjórnmálafræðideildar
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir okkar, fósturfaðir og afi,
Einar Laxness
sagnfræðingur,
Stóragerði 29, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni
í Reykjavík, fimmtudaginn 2. júní kl. 15.00.
Elsa Jóna Theódórsdóttir
Sigríður Einarsdóttir Laxness Paolo Turchi
Halldór E. Laxness Kristin McKirdy
Margrét E. Laxness Þórmundur Bergsson
Einar E. Laxness Steinunn Agnarsdóttir
Hjalti Garðar Lúðvíksson Ólafia Jóna Eiríksdóttir
Theódór Lúðvíksson Elísabet Jóhannsdóttir
og fjölskyldur.
Merkisatburðir
1593 Breska leikskáldið Christopher Marlow er drepinn á krá
vegna deilna um borgun á reikningi.
1829 Jónas Hallgrímsson flytur
prófræðu sína í Bessastaða-
kirkju.
1851 Jón Sigurðs-
son er kosinn forseti
Kaupmannahafnar-
deildar Hins íslenska
bókmenntafélags og
gegnir þeirri stöðu til
dauðadags. Af því var
hann jafnan nefndur
Jón forseti. Um skeið var
hann einnig forseti Alþingis.
1940 Róstur verða eftir knatt-
spyrnuleik milli Fram og Víkings
í Reykjavík. Þrjátíu manns eru
handteknir.
1977 Kvikmynd Hrafns
Gunnlaugssonar, Blóð-
rautt sólarlag, er frum-
sýnd og veldur deilum.
1980 Breski fótbolta-
maðurinn Steven
Gerrard fæddist.
1981 Forseti Bangla-
dess, Zia Rahman, er
ráðinn af dögum.
1984 Alþingismönnum er
fjölgað úr 60 í 63 og kosninga-
aldur lækkaður úr 20 árum í 18 ár.
1998 Allt að 5.000 manns láta lífið í
jarðskjálfta í Afganistan.
Steven Gerrard
Jón Sigurðsson
Jónas Hallgrímsson
Jóhanna af Örk, eða Mærin frá Orléans,
sem er þjóðþekkt hetja í Frakklandi og
kaþólskur dýrlingur lést á þessum degi
árið 1431 í Rúðuborg í Frakklandi.
Jóhanna var frönsk almúgastúlka
fædd í austurhluta Frakklands 1412.
Ung sagðist hún sjá sýnir sem voru frá
guði komnar. Hann skipaði henni að ná
Frakklandi undan yfirráðum Englendinga
í Hundrað ára stríðinu. Hinn ókrýndi Karl
sjöundi sendi hana til Orléans, sem Eng-
lendingar höfðu á valdi sínu.
Hún fór fyrir franska herliðinu og varð
fræg fyrir að hrekja Englendingana á
brott. Á aðeins níu dögum náði hún að
vinna fleiri sigra og leiddi það til þess
að Karl var krýndur í Reims. Segja má að
sigrar hennar og hersins franska hafi gefið
frönsku þjóðinni aukið sjálfstraust. Eng-
lendingar náðu hins vegar að handsama
Jóhönnu nærri Compiègne. Þar dæmdi
enski landstjórinn hana fyrir villutrú og
lét svo brenna hana á báli.
Kallixtus 3. páfi veitti henni uppreisn
æru tuttugu og fjórum árum síðar. Bene-
dikt 15. páfi tók hana í dýrlingatölu í maí
árið 1920.
Þ etta g e r ð i st : 3 0 . m a í á r i ð 1 4 3 1
Jóhanna af Örk er brennd á báli
Jóhanna af Örk var brennd á báli þennan dag árið 1431.
„Þetta er rannsóknarverkefni til þriggja
ára sem ég er að fara af stað með. Fyrir
rúmu ári var samið við læknafélagið og
það komu hæstu launahækkanir sem
hefur nokkurn tímann verið samið um,
en endurkoma læknanna hefur ekki átt
sér stað. Þá þarf að skoða aðra þætti.
ef launin skipta ekki höfuðmáli, hvað
gerir það?“ segir Kjartan Páll sveinsson,
nýdoktor við félagsfræðideild Háskóla
íslands.
Hann mun rannsaka brottflutn-
ing íslenskra lækna eftir hrun, hvað
valdi því að þeir verði úti og hvað dragi
þá heim.
„eitt af því sem þarf að skoða sér-
staklega er umgjörðin, heilbrigðiskerf-
ið, starfsumhverfið sjálft og strúktúrinn.
Flestir læknar bæta upp léleg kjör með
því að vinna á eigin stofu og ég held
að það sé ekkert mjög spennandi fyrir
lækna. Þeir vilja heildstætt gott kerfi þar
sem allir vinna saman, þeir eru með gott
teymi á bak við sig og aðgang að fínum
tækjum og öðru. Læknir sem þarf góðan
strúktúr í kringum sig vill kannski ekki
endilega koma heim. Þetta er eitt af því
sem ég kem til með að skoða og eitt af því
sem landlæknir er farinn að segja núna,“
segir Kjartan.
„Það er líka spennandi að vita hvað
lokkar læknana heim. ef launin eru ekki
í lagi og starfsumhverfið er grautsúrt eins
og núna, þá er hitt sem lokkar fjölskyldu-
líf og annað,“ segir Kjartan. „Við erum svo
lítil þjóð sem reiðir sig á að læknar komi
heim. Við erum mjög berskjölduð fyrir
sviptingum í mannafla.“
Kjartan áætlar að hann verði búinn
að safna gögnum í lok árs, hann mun
svo vinna úr þeim og kynna niðurstöður
ári síðar. „Ég ætla að passa upp á það að
kynna þessa niðurstöðu líka, það kemur
örugglega eitthvað krassandi út úr þessu,“
segir Kjartan. saeunn@frettabladid.is
Rannsakar brottflutning
íslenskra lækna eftir hrun
Brottflutningur íslenskra lækna hefur verið mikið í umræðunni síðastliðin ár. Félags-
fræðingur ætlar að rannsaka hvað valdi þessu og hvað lokkar læknana heim. Hann segir
Ísland berskjaldað fyrir sviptingum í mannafla og býst við að fá krassandi niðurstöðu.
Kjartan Páll Sveinsson segir brottflutning lækna vegna sérnáms vera af hinu góða, en þeir verði að koma til baka. Mynd/Kristinn Ingvarsson
3 0 . m a í 2 0 1 6 m Á N U D a G U R18 t í m a m ó t ∙ F R É t t a B L a ð i ð
tímamót
3
0
-0
5
-2
0
1
6
0
4
:2
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
9
2
-7
6
E
4
1
9
9
2
-7
5
A
8
1
9
9
2
-7
4
6
C
1
9
9
2
-7
3
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
5
6
s
_
2
9
_
5
_
2
0
1
6
C
M
Y
K