Fréttablaðið - 30.08.2016, Side 10
Frakkland Flóttamenn sem búa
í flóttamannabúðum við frönsku
borgina Calais við Ermarsund ættu að
mega sækja um hæli í Bretlandi þótt
þeir séu staddir í Frakklandi. Þetta er
mat Xavier Bertrand, umsjónarmanns
búðanna. Þar að auki ættu Bretar að fá
að færa vegabréfaeftirlit sitt frá landa-
mærunum og til Calais. Til þess að það
væri hægt þyrfti að gera breytingar á
Touquet-sáttmálanum, sáttmála á
milli Frakka, Belga og Breta um landa-
mæraeftirlit við Ermarsund. Bertrand
greindi frá mati sínu í viðtali við BBC.
Segir hann að ef hægt væri að sækja
um hæli í Bretlandi frá Frakklandi
myndu Frakkar geta vísað þeim sem
Bretar neita um hæli beint úr landi til
heimalands síns.
Breska innanríkisráðuneytið telur
hins vegar að flóttamenn eigi að sækja
um hæli í fyrsta örugga landi sem þeir
komast til líkt og Dyflinnarreglugerðin
kveður á um.
Um níu þúsund flóttamenn búa nú í
Frumskóginum, flóttamannabúðum í
Calais, og á hverju kvöldi reyna flótta-
menn að komast hjá vegabréfaeftirliti
á landamærum Bretlands og Frakk-
lands með því að fela sig til dæmis í
sendibílum. Bertrand vonar að með
tilfærslu vegabréfaeftirlits myndi það
vandamál að mestu leysast.
Sjálfur hefur Bertrand ekki vald til
þess að framkvæma hugmyndir sínar.
Hins vegar gætu ráðamenn landanna
komið breytingunum á. Forsetafram-
bjóðandinn franski, Nicolas Sarkozy,
hefur til að mynda lýst yfir stuðningi
sínum við áformin.
„Þeir sem eru hér í Calais og vilja
fara yfir til Englands ættu að sækja um
hæli sem fyrst og Englendingar ættu
að úrskurða í málum þeirra,“ sagði Sar-
kozy um helgina.
Peter Ricketts, fyrrverandi sendi-
herra Breta í Frakklandi, lýsti sig
hins vegar andvígan hugmyndunum
í viðtali við BBC. Hann sagði að þær
myndu þýða aukinn flóttamanna-
straum bæði til Frakklands og Eng-
lands. Hundruð þúsunda flóttamanna
væru nú að koma til Grikklands og
Ítalíu en aðeins brot af þeim kæmi til
Calais.
„Um leið og þú stingur upp á því
myndast stór segull sem togar þús-
undir á þúsundir ofan til Calais sem
reyna svo að fá hæli í Bretlandi,“ sagði
Ricketts og bætti við: „Ég held að það
myndi ekki hjálpa Frökkum að kljást
við vandamálið. Ég held að þessar hug-
myndir myndu auka á vandann, nær
örugglega.“
Samkvæmt heimildum BBC hyggst
innanríkisráðherrann Amber Rudd
ferðast til Parísar, höfuðborgar Frakk-
lands, í vikunni til að ræða mögulegar
breytingar á Touquet-sáttmálanum.
thorgnyr@frettabladid.is
Vilja að flóttamenn sæki um
hæli í Bretlandi frá Frakklandi
Umsjónarmaður flóttamannabúða við Ermarsund vill að flóttamenn geti sótt um hæli í Bretlandi þótt þeir
séu staddir í Frakklandi. Forsetaframbjóðandi hefur lýst yfir stuðningi við hugmyndina. Fyrrverandi sendi-
herra Breta í Frakklandi segir hana munu auka á vandann. Um níu þúsund flóttamenn eru í Calais.
Frumskógurinn
í tölum
9.106 búa nú í flóttamanna-
búðum í Calais sem kallast Frum-
skógurinn
5.178 bjuggu í sömu
búðum í maí
10.000 er áætlaður
fjöldi íbúa í næsta mánuði
8 hið minnsta hafa látið
lífið í eða við búðirnar á árinu
24 hið minnsta létu
lífið í eða við búðirnar í fyrra
Íbúi Frumskógarins gengur fram hjá kömrum sem þar má finna. Nordicphotos/AFp
Þeir sem eru hér í
Calais og vilja fara
yfir til Englands ættu að
sækja um hæli
sem fyrst.
Nicolas Sarkozy,
forsetaframbjóð-
andi og fyrrverandi
forseti
Alda Credit Fund slhf., kt. 531114-0510, Borgartúni 27, 105 Reykjavík,
Íslandi hefur birt lýsingu vegna umsóknar um töku skuldabréfa sem út-
gefin eru af félaginu til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf.
Lýsingin er á íslensku og er birt á rafrænu formi á vef Alda Credit Fund
slhf. www.acfslhf.is. Fjárfestar geta einnig nálgast útprentuð eintök af
lýsingunni sér að kostnaðarlausu hjá Alda Credit Fund ehf., Borgartúni
27, 105 Reykjavík.
Sótt hefur verið um töku skuldabréfa í flokknum ACF 15 1 að nafnverði
3.340.000.000 krónur til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf.
Nasdaq Iceland hf. mun birta tilkynningu um töku skuldabréfanna til
viðskipta og hvenær viðskipti með þau geti hafist með a.m.k. eins við-
skiptadags fyrirvara.
Reykjavík, 30. ágúst 2016
Birting lýsingar Alda Credit
Fund slhf.
SVÍÞJÓÐ Sífellt fleiri flóttamenn
iðrast nú komu sinnar til Svíþjóðar.
Það sem af er árinu hafa 4.500 flótta-
menn dregið hælisumsókn sína
til baka miðað við 3.800 allt árið í
fyrra. Samkvæmt Dagens Nyheter
eru hertar reglur og löng bið meðal
ástæðnanna.
Meðal Íraka, sem eru þriðji stærsti
hópur hælisleitenda á eftir Sýrlend-
ingum og Afgönum, hafa rúmlega
2.000 dregið umsókn sína um hæli
til baka. .
Í fyrra komu 51.338 hælisleitendur
frá Sýrlandi til Svíþjóðar, 41.564 frá
Afganistan og 20.857 frá Írak. – ibs
Fleiri hætta við
hælisumsókn
Flóttamenn við komuna til svíþjóðar.
FrÉttABLAÐiÐ/EpA
BraSilÍa Dilma Rousseff, forseti Bras-
ilíu, sagðist í gær saklaus af öllum
ásökunum. Hún var sett tímabundið
af á dögunum, grunuð um að hafa
falsað tölur í fjárlögum Brasilíu til að
fela rekstrarhalla ríkisins. „Samviska
mín er algjörlega hrein. Ég hef ekki
framið neinn glæp,“ sagði Rousseff
í gær þegar öldungadeild Brasilíu-
þings réttaði yfir henni.
Þingmenn munu kjósa um það
síðar í vikunni hvort eigi að reka
Rousseff endanlega úr embætti eða
skipa hana í embætti á ný.
Rousseff hóf vörn sína á því að
minna þingmenn á að hún hafi
verið endurkjörin árið 2014 með
atkvæðum rúmlega 54 milljóna
kjósenda. Hún sagðist þá alltaf hafa
haft stjórnarskrána að leiðarljósi og
minnti á fortíð sína sem baráttu-
maður gegn herforingjastjórninni
sem réð ríkjum frá 1964 til 1985. – þea
Segir samvisku
sína vera hreina
ViÐSkipti Íslensk-hollenska
hátæknifyrirtækið Mint Solutions
hefur tilkynnt um 650 milljóna
króna fjárfestingu sem gerir fyrir-
tækinu kleift að hraða markaðs-
setningu og innleiðingu lyfjaörygg-
iskerfisins MedEye á sjúkrahúsum
og heilbrigðisstofnunum í Evrópu
og í Bandaríkjunum. Fjárfesting í
fyrirtækinu er samtals rétt um 10,4
milljónir evra, jafnvirði 1.360 millj-
óna króna og verða stærstu einstöku
hluthafarnir eftir þessa síðustu
umferð LSP og Seventure.
Fjármagnið kemur frá hópi fjár-
festa undir forystu BOM Capital
í Hollandi og tveggja núverandi
hluthafa, LSP og Seventure Partners,
ásamt Nýsköpunarsjóði atvinnulífs-
ins og íslenskum einkafjárfestum.
Mint Solutions var stofnað á
Íslandi árið 2009 og hefur síðan þá
unnið að þróun lyfjaöryggiskerfisins
MedEye. Kerfið stórbætir lyfjaöryggi
á sjúkrahúsum og öðrum heilbrigð-
isstofnunum með því að gera hjúkr-
unarfræðingum kleift að skanna öll
lyf sjúklinga, rétt áður en þau eru
gefin. Þannig er tryggt að lyfjagjöf
sé í samræmi við lyfseðil og fyrir-
mæli lækna.
Öll þróunarvinna fer fram á
Íslandi. Fyrirtækið er nú með 18
starfsmenn, níu hér á landi og níu
í Hollandi, sem er stærsti markaður
þess. Með fjárfestingunni stefnir
Mint Solutions á frekari landvinn-
inga á alþjóðlegum mörkuðum,
m.a. í Belgíu, Bretlandi og Banda-
ríkjunum. – sg
Búið að setja hátt í 1.400
milljónir í Mint Solutions
MedEye lyfjaöryggiskerfið í notkun. MyNd/MiNt soLutioNs
3 0 . á g ú S t 2 0 1 6 Þ r i Ð J U d a g U r10 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a Ð i Ð
3
0
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:2
6
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
6
5
-0
F
7
4
1
A
6
5
-0
E
3
8
1
A
6
5
-0
C
F
C
1
A
6
5
-0
B
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
3
2
s
_
2
9
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K