Fréttablaðið - 30.08.2016, Blaðsíða 32
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
Jóns Sigurðar
Eyjólfssonar
Bakþankar
Þegar ég var ungur dreymdi mig oft rómantíska drauma þar sem föngulegar stúlkur
voru í aðalhlutverki. Sá hængur var
þó á að þessar stúlkur áttu það allar
sameiginlegt að hafa á mér ímugust
mikinn og töldu mig jafnvel hálf-
vita. Ég lét þó oft á það reyna hvort
draumarnir hefðu kynt undir
einhverri hylli gagnvart mér en það
varð yfirleitt bara til þess að komast
að því að þær höfðu þó nokkuð til
síns máls.
Ekki skildi ég hvað verið var að
espa mann upp í svona óra sem
enga stoð áttu í raunveruleikanum.
Varð ég alvaldinu illur og taldi
það ábyrgt fyrir öllum hugarburði
mínum. Draumfarir héldu áfram
að angra mig og vitjuðu mín jafnvel
meðan ég var vakandi. Þær sneru
þó í minni mæli að stúlkum en meir
að einhvers konar ævintýrum. Af
þessum sökum fékk ég þá fárán-
legu hugmynd að flytja til Grikk-
lands. Kunni ég þá hvorki grísku
né nokkra iðju sem greitt gæti götu
mína þar. Þegar innfæddir spurðu
mig hvað ég hefði til brunns að
bera, gat ég einungis sagt að ég væri
vel liðtækur í íslenskum kvæða-
söng. Töldu þeir ólíklegt að ég fengi
vinnu á mínu sviði. Þá vissi ég að
draumarnir höfðu leitt mig á villi-
götur.
Ég reyndi síðan að vera svo-
lítið hagsýnn og ákvað að setjast
á skólabekk og ná mér í háskóla-
gráðu. Ég var ekki fyrr búinn að
taka ákvörðunina en draumórarnir
umluktu mig löngum armi sínum
á ný með þeim afleiðingum að ég
skráði mig í mannfræði. Síðan þá
hefur hvert óráðið rekið annað.
Vitleysan náði nýjum hæðum
þegar ég ákvað að skrifa pistil um
þessa draumsýki mína. Sem betur
fer sagði ég þó ekkert frá því hversu
skemmtilegt er að búa við þennan
kvilla.
Í draumi
sérhvers manns
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla,
Vesturbergi og
Arnarbakka
ENDALAUS
2.990 KR.*
Endalaust sumar
1817 365.is
GSM
ÓTAKMARKAÐ TAL, SMS
OG 30 GB GAGNAMAGN*
*Greitt er aukalega fyrir farsímanotkun erlendis, til útlanda og í upplýsinganúmer.
Nánari upplýsingar er að finna í GSM skilmálum á 365.is
*30 GB gagnamagn er innifalið í hverjum mánuði en endalaust gagnamagn fyrir
2.000 krónur bætist við ef farið er umfram 30 GB
3
0
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:2
6
F
B
0
3
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
6
5
-0
0
A
4
1
A
6
4
-F
F
6
8
1
A
6
4
-F
E
2
C
1
A
6
4
-F
C
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
3
2
s
_
2
9
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K