Fréttablaðið - 05.07.2016, Síða 4
Beltone Legend™
Enn snjallara
heyrnartæki
Nýja Beltone Legend™ heyrnartækið tengist þráðlaust
beint í iPhone, iPad og iPod touch. Komdu í ókeypis
heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki
lánað til reynslu.Bel
to
ne
L
eg
en
d
ge
ng
ur
m
eð
iP
ho
ne
6
s
og
e
ld
ri
ge
rð
um
, i
Pa
d
A
ir,
iP
ad
(4
. k
yn
sl
óð
),
iP
ad
m
in
i m
eð
R
et
in
a,
iP
ad
m
in
i
og
iP
od
to
uc
h
(5
. k
yn
sl
óð
) m
eð
iO
S
eð
a
ný
rr
a
st
ýr
ik
er
.
A
pp
le
, i
Ph
on
e,
iP
ad
o
g
iP
od
to
uc
h
er
u
vö
ru
m
er
ki
s
em
ti
lh
ey
ra
A
pp
le
In
c,
s
kr
áð
í
Ba
nd
ar
ík
ju
nu
m
o
g
öð
ru
m
lö
nd
um
.
Kringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is
HEYRNARSTÖ‹IN
Bretland Nigel Farage tilkynnti í gær
að hann myndi hætta sem formaður
Sjálfstæðisflokks Bretlands (UKIP).
Í viðtali við BBC sagðist Farage ætla
að hætta núna þar sem pólitískum
metnaði hans hafði verið fullnægt
auk þess sem flokkur hans stæði vel.
Vísaði hann þar til þess að Bretar
kusu að skilja sig frá Evrópusam
bandinu í þjóðaratkvæðagreiðslu
fyrir tveimur vikum, svokallað Brexit.
Farage hafði sjálfur barist fyrir Brexit
í um tuttugu ár. „Á meðan kosninga
baráttan stóð sagðist ég vilja fá landið
mitt til baka. Nú vil ég fá líf mitt til
baka,“ sagði Farage í gær.
Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem
Farage segir af sér formennsku en það
hefur hann gert tvisvar áður. Hann
var fyrst kosinn til formennsku árið
2006 og sinnti því embætti til 2009.
Hann sneri aftur fyrir þingkosningar
árið 2010 og sagði af sér eftir að hafa
ekki náð inn á þing árið 2015. Þrátt
fyrir að hafa fengið um þrettán pró
sent atkvæða fékk flokkur hans
aðeins eitt þingsæti af 650. Á meðan
fékk Skoski þjóðarflokkurinn (SNP)
4,7 prósent atkvæða en 56 þingsæti.
Farage dró þó afsögn sína til baka
fljótlega í það skiptið og sneri aftur
til að berjast fyrir Brexit.
Farage hefur gegnt þingmennsku
á Evrópuþinginu frá árinu 1999 en
búist er við því að hann láti einnig
af því embætti innan skamms þar
sem Bretar hyggjast yfirgefa Evrópu
sambandið og munu því ekki eiga
nein sæti á þingi þess. Skrautlegum
ferli Farage í stjórnmálum virðist því
vera að ljúka en hann útilokaði í gær
að hann myndi snúa aftur í stjórn
mál. Þó sagðist hann geta hugsað sér
að sitja í samninganefnd Bretlands
þegar samið verður um skilmála
útgöngunnar.
Enginn meðlima UKIP greip
gæsina í gær og lýsti yfir formanns
framboði. Þá útilokaði eini þing
maður UKIP, Douglas Carswell, for
mannsframboð. „Líkurnar á því eru
á milli þess að vera engar og núll,“
sagði Carswell við BBC en hann setti
mynd af broskalli á Twitter um leið
og Farage tilkynnti um áform sín.
Ósætti hefur verið á milli Farage og
Carswells undanfarið vegna þess
hvernig flokknum hefur verið stýrt
en þeir sammæltust þó í gær um að
helsta sóknarfæri flokksins lægi í því
að sækja í kjósendur Verkamanna
flokksins. thorgnyr@frettabladid.is
Pólitískum metnaði fullnægt
Skrautlegum ferli Nigels Farage er að ljúka. Segir pólitískum metnaði sínum fullnægt og að flokkur hans
standi vel eftir þjóðaratkvæðagreiðslu um Brexit. Eini þingmaður flokksins ætlar ekki í formannsframboð.
Nigel Farage var kampakátur þegar ljóst varð að Bretar hefðu samþykkt Brexit. Nordicphotos/AFp
Leadsom ætlar í formanninn
Orkumálaráðherrann Angela Lead-
som lýsti í gær yfir framboði sínu til
formanns Íhaldsflokksins. Leadsom,
sem barðist fyrir Brexit, sagði þjóð-
aratkvæðagreiðsluna stórmerkilega
stund í heimssögunni. „Mögulega sú
stærsta síðan Berlínarmúrinn féll,“
sagði Leadsom.
Hún lofaði því að ef hún næði
kjöri myndi hún samstundis virkja
fimmtugustu grein Lissabonsátt-
málans og þar með hefja aðskiln-
aðarferlið. Næsti formaður flokksins
mun jafnframt taka við forsætisráð-
herraembættinu af David Cameron.
Þá sagðist hún ekki myndu vísa
neinum með vegabréf frá löndum
innan Evrópusambandsins úr landi.
Þeir sem væru með atvinnu í Bret-
landi mættu búa þar áfram.
Innanríkisráðherrann Theresa
May nýtur nú mests stuðnings
innan þingflokks Íhaldsmanna. 110
þingmenn styðja hana. Þá styður
31 þingmaður dómsmálaráðherr-
ann Michael Gove og þrjátíu styðja
Leadsom.
Stjórnmál Vigdís Hauksdóttir, for
maður fjárlaganefndar Alþingis, ætlar
að hætta á þingi eftir næstu kosning
ar. Í tilkynningu segist hún hafa tekið
þessa ákvörðun í samráði við sína
nánustu. Hún segist stolt af verkum
sínum á Alþingi þar sem hún hafi lagt
allt undir fyrir land og þjóð. „Ég þakka
framsóknarmönnum í Reykjavík og
kjósendum mínum í Reykjavíkurkjör
dæmi suður fyrir stuðninginn. Einn
ig þakka ég mikinn og áþreifanlegan
stuðning í starfi mínu frá fólki hvað
anæva af landinu og Íslendingum
búsettum erlendis langt, langt út fyrir
flokksraðir,“ segir Vigdís. Hún segir að
stuðningurinn sé ómetanlegur og hafi
drifið hana áfram í baráttunni fyrir
land og þjóð. - jhh
Vigdís hættir á
þingi í haust
Vigdís hauksdóttir segist vera stolt af
verkum sínum á Alþingi.
reykjavík Verið er að merkja tólf
rútustoppistöðvar í miðborginni
og er það gert til að auðvelda ferða
mönnum að komast í og úr hópferða
bílum nú þegar takmarkanir hafa
verið gerðar á akstri þeirra um íbúa
byggð og þröngar götur. Þetta kemur
fram á vef Reykjavíkurborgar. Þá segir
að markmiðið með nýju stæðunum
sé að vernda íbúabyggð fyrir óþarfa
umferð en um leið auka þjónustu við
rútufyrirtækin og gististaði innan
þeirra svæða þar sem takmarkanir
eru á akstri stórra bíla. – ngy
Ný rútustæði
í miðbænum
Ellen segir dóminn fordæmisgefandi.
dómSmál „Við upplifum það oft að
mannréttindi náist ekki fram nema
í gegn um dómstóla,“ segir Ellen
Calmon, formaður Öryrkjabanda
lagsins, en nýlega féll dómur Hæsta
réttar í máli sem Öryrkjabandalag
Íslands (ÖBÍ) rak fyrir konu gegn
Reykjavíkurborg en henni hafði
verið neitað um sérstakar húsa
leigubætur vegna þess að hún leigir
húsnæði af hússjóði ÖBÍ en ekki hjá
Félagsbústöðum eða á almennum
markaði.
Niðurstaðan var sú að borgin
mætti ekki neita leigjendum Brynju
– hússjóðs ÖBÍ um sérstakar húsa
leigubætur. ÖBÍ skoðar nú að sækja
frekari rétt til handa konunni fyrir
dómstólum. „Svo vonum við auð
vitað að það verði fordæmisgefandi
fyrir fleiri í sömu stöðu,“ segir Ellen
en í fyrra leigðu um 460 einstak
lingar hjá hússjóði ÖBÍ.
ÖBÍ hefur barist fyrir því í sjö ár
að reglum borgarinnar um bæt
urnar verði breytt. Innanríkisráðu
neytið komst að þeirri niðurstöðu
árið 2010 að reglurnar væru til þess
fallnar að mismuna fólki og beindi
þeim tilmælum til Reykjavíkurborg
ar að breyta reglunum. Ellen segir
að Öryrkjabandalagið hafi reynt að
ná samningi við Reykjavíkurborg en
það ekki gengið.
Ellen segir dóm Hæstaréttar for
dæmisgefandi og að sveitarfélög
verði að breyta reglum sínum í
samræmi við hann. Akureyrarbær
sé annað dæmi um sveitarfélag sem
hafi neitað fólki um bæturnar á
sama grundvelli.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
segir að nú vinni starfshópur að því
að skýra reglurnar og muni niður
staða hans líklegast liggja fyrir í
haust. Dómurinn muni hafa áhrif
sem og ný lög um húsnæðisbætur.
Þá segir Dagur ástæðu þess að
ekki hafi náðst samkomulag við
ÖBÍ á sínum tíma vera að borgar
lögmaður hafi talið rétt að fá niður
stöðu dómstóla varðandi málið.
nadine@frettabladid.is
Skoða að sækja bætur til Reykjavíkurborgar
Á meðan kosninga-
baráttan stóð sagðist
ég vilja fá landið mitt til
baka. Nú vil ég fá líf mitt til
baka.
Nigel Farage, formaður UKIP
ÖBÍ hefur barist fyrir því
í sjö ár að reglum borgarinn-
ar um bætur verði breytt.
5 . j ú l í 2 0 1 6 Þ r I Ð j U d a G U r4 f r é t t I r ∙ f r é t t a B l a Ð I Ð
0
5
-0
7
-2
0
1
6
0
4
:5
7
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
E
A
-3
D
7
4
1
9
E
A
-3
C
3
8
1
9
E
A
-3
A
F
C
1
9
E
A
-3
9
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
4
_
7
_
2
0
1
6
C
M
Y
K