Fréttablaðið - 05.07.2016, Síða 9

Fréttablaðið - 05.07.2016, Síða 9
Læknisfræðin á að heita að vera í sífelldri framför með nýjum rannsóknaraðferðum, lyfjum, þræðingum, speglunum og skurð- aðgerðum til að bæta eða lækna sjúkdóma. Þær standast ekki allar tímans tönn. Læknar kalla yfir sig hetjuljóma þegar eitthvað nýtt heppnast en minna þegar illa fer eða þegar djarf- legar ákvarðanir eru teknar um að beita ekki nýjum aðferðum vegna áhættu, vonlausra horfa, og viður- kenna þarf að lofaðar nýjungar hafa ekki reynst vel. Forystumenn eru yfirleitt leið- andi á sínu sviði, ráðgjafar stjórn- valda, fulltrúar út á við og með- mælendur ungra lækna til sérnáms erlendis. Sú „nýjung“ sem hvað mesta athygli vakti og í hvers sviðljósi læknar m.a. íslenskir böðuðu sig í var plastbarkaígræðsla sem reyndist einhver mestu afglöp svo- kallaðra framfara. Aðgerðin var gerð undir forystu ítalsks læknis á Karólínska sjúkrahúsinu, einhverri virtustu heilbrigðisstofnun Evrópu, jafnvel heimsins, án nokkurra fyrri dýratilrauna né formlegrar viður- kenningar vísinda- og siðanefnda. Grein um afrekið var birt í einu áhrifamesta læknatímariti í heim- inum og gagnrýnendur segja nú fara með rangfærslur. Karólínska stofnunin telur þetta vera mikla hneisu og hafa skaðað álit sitt og kappkostar að reyna að endurreisa orðstír sinn. Fjölmargir forystumenn í sænskri læknisfræði svo sem for- maður Nóbelsnefndarinnar og rektor Karólínska hafa sagt af sér. Lögreglan rannsakar starf ítalska læknisins í nokkrum löndum. Nokkrir íslenskir læknar í áhrifa- stöðum hérlendis og erlendis voru lykilmenn í þessu athæfi og hafa sagt skilmerkilega frá sinni þátt- töku og stjórnun. Hátíðarsam- koma var haldin í Háskóla Íslands þeim til heiðurs. Þeir sitja enn sem fastast í sínum ráðgjafastöðum um sjúkrahús- og heilbrigðismál og láta ljós sitt skína. Er þetta dæmigert fyrir ábyrgð og siðferði í Háskóla Íslands, sjúkra- húsi og heilbrigðiskerfinu. Íslenskt siðferði – ein myndin enn Birgir Guðjónsson sérfr. í lyflækning- um og meltingar- sjúkdómum. MACP, FRCP, AGAF. Fv. assistant professor við Yale School of Medicine. Framhaldsmenntun í tónlist hefur verið í deiglunni að und-anförnu. Af því tilefni langar mig að ræða stöðu mála í menntun á háskólastigi á Íslandi þ.e. innan tón- listardeildar Listaháskóla Íslands, LHÍ. Nokkuð hefur verið rætt um fjárskort og aðstöðuleysi en hér er ætlunin að fjalla í nokkrum greinum um þá uppbyggingu og framþróun náms sem á sér stað innan LHÍ. Á síðustu árum hefur LHÍ leikið lykilhlutverk í þróun meistaranáms í tónlist undir heitinu New Audien- ces and Innovative Practice, NAIP, í samvinnu við erlenda tónlistarhá- skóla. Ég hef tekið þátt í þessari námsþróun sem að mínu mati er með því merkasta sem á sér stað í tónlistarmenntun á háskólastigi á Íslandi. Í niðurstöðum nýlega útgefinnar langtímarannsóknar frá Tónlistar- háskólanum í Vínarborg (Uni- versität für Musik und darstellende Kunst Wien) er m.a. bent á að NAIP- meistaranámið gagnist nemendum vel að námi loknu. Í niðurstöðum er jafnframt bent á að þær áherslur sem sé að finna í NAIP-meistara- náminu séu æskilegar í öllu tón- listarnámi á háskólastigi. Kennarar LHÍ hafa unnið með mörgum helstu sérfræðingum Evr- ópu á sviði tónlistarmenntunar á háskólastigi (e. Higher Music Education) að þessari námsþróun og hefur sú þekking og reynsla haft áhrif á aðrar námsbrautir í LHÍ. Lofsamleg umsögn Nýverið hlaut nýtt verkefni um áframhaldandi þróun NAIP-meist- aranámsins 270.090 evrur í styrk frá ERASMUS+ eða rúmlega 37 milljónir króna. Styrkveitingunni fylgir lof- samleg umsögn óháðra sérfræðinga sem veittu umsókninni 91 stig af 100 mögulegum. Listaháskóli Íslands stýrir verkefninu. Þátttakendur auk tónlistar- og sviðslistadeildar LHÍ eru: Guildhall School of Music & Drama London, Stockholms konstnärliga högskola, Universität für Musik und Darstellende Kunst Wien, Konink- lijk Conservatorium Den Haag, Prins Claus Conservatory of Music & Aca- demia Minerva Groningen og Yong Siew Toh Conservatory of Music Singapore. Einnig taka Íslenska óperan og evrópsk samtök tónlistar- skóla, AEC, þátt sem samstarfsaðilar úr atvinnulífinu. Markmið verkefnisins er að þróa námsumhverfi lista á háskólastigi í gegnum þverfaglega vinnu milli tón- listar og sviðslista. Áhersla verður lögð á að efla áræði og dug nemenda til að gerast leiðtogar á sínu sviði, nálgast nýja áheyrendur og þróa nýjar aðferðir í sköpun og flutningi, í gegnum einstaklingsmiðað nám með áherslu á þverfagleg samstarfs- verkefni. Mikilvægt er að háskólastofnanir tengist atvinnulífi og samfélagi. LHÍ vinnur í samstarfi við fjölda lista- stofnana, tónlistarhátíða, skóla og annarra stofnana. Til dæmis má nefna Tectonics, Iceland Airways, Myrka Músíkdaga, Sinfóníuhljómsveit Íslands, Íslensku óperuna og List- vinafélag Hallgrímskirkju en nem- endur á öllum námsstigum skólans hafa komið fram á tónleikum í sam- starfi við þessar stofnanir. Einnig hafa meistaranemar í NAIP og í listkennslu unnið með fjölda skólabarna sem og með fjölbreyttum hópum s.s. fólki með fötlun, fólki án atvinnu og fólki með heilabilun. Þannig hefur LHÍ leit- ast við að tengjast samfélaginu, starfa í samstarfi við heilbrigðisstarfsfólk, skóla og aðrar stofnanir, miðla og hvetja til tónsköpunar á fjölbreyttan hátt. Styrkveiting ERASMUS+ er mikil- væg viðurkenning á starfi LHÍ á sviði tónlistar og sviðslista. Um háskólamenntun í tónlist – alþjóðleg samvinna Þóra Einarsdóttir söngkona og aðjúnkt við Tón- listardeild LHÍ Á síðustu árum hefur LHÍ leikið lykilhlutverk í þróun meistaranáms í tónlist undir heitinu New Audiences and Innovative Practice, NAIP, í samvinnu við erlenda tónlistarháskóla. Volkswagen GOLF GTE er tvíorkubíll sem gengur bæði fyrir rafmagni og bensíni. Raforkan kemur þér allt að 50 kílómetra og með sparneytnu bensínvélinni er drægnin yfir 900 kílómetrar. Hann er umhverfisvænn og með framúrskarandi aksturseiginleika. Komdu í rafmagnaðan reynsluakstur og leyfðu þér að falla fyrir honum! 4.290.000 kr. Verð frá: Golf GTE. Jafnvígur á rafmagn og bensín. HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirðiwww.volkswagen.is s k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 9Þ R i ð J u D A G u R 5 . J ú L í 2 0 1 6 0 5 -0 7 -2 0 1 6 0 4 :5 7 F B 0 4 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 9 E A -3 D 7 4 1 9 E A -3 C 3 8 1 9 E A -3 A F C 1 9 E A -3 9 C 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 0 s _ 4 _ 7 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.