Fréttablaðið - 05.07.2016, Side 18
Hyundai-bíll í Rússlandi.
AvtoVAZ bílasmiðurinn rússneski
sem framleiðir Lada-bíla hefur
löngum verið söluhæsti bílafram-
leiðandi í Rússlandi. Nú er þó svo
komið að suðurkóreski bílafram-
leiðandinn Hyundai, sem einnig á
stóran hlut í Kia, hefur tekið fram
úr AvtoVAZ sem sá söluhæsti. Á
fyrstu fimm mánuðum þessa árs
hefur Hyundai og Kia selt samtals
109.319 bíla en AvtoVAZ 102.124.
Sala bíla er reyndar mjög dræm
í Rússlandi og hefur minnkað um
helming frá árinu 2012. Á fyrstu
fimm mánuðunum hefur bílasala
fallið um 15 prósent frá fyrra ári.
Kia er söluhærra en Hyundai í
Rússlandi nú og seldi Kia 56.986
bíla á þessum fimm mánuðum, en
Hyundai 52.333. Í fyrra minnkaði
bílasala í Rússlandi um 36 prósent
en sala Hyundai og Kia minnkaði
aðeins um tíu og 16 prósent.
Tvöfaldað markaðshlutdeild
frá árinu 2012
Markaðshlutdeild þeirra hefur
tvöfaldast frá árinu 2012 og
er nú um 20 prósent í Rúss-
landi. Renault á stóran hlut í
AvtoVAZ og fjárfesti fyrir 125
milljarða í fyrirtækinu árið
2008 og ætlaði með því að gera
það sama með AvtoVAZ og
því hefur lukkast svo vel með
Dacia-merkið í Rúmeníu. Það
hefur hins vegar ekki gengið
eftir og hefur Renault niður-
skrifað þessa fjárfestingu sína
um 70 prósent. Hyundai og Kia
ætla að halda áfram að kynna
nýja bíla í Rússlandi og auka
markaðshlutdeild sína meira
þar og í leiðinni að undirbúa
jarðveginn ef ske kynni að
bílasala þar í landi færi að
braggast aftur.
Nýta sér niðursveiflu
Þetta yrði ekki fyrsta skipti sem
Hyundai og Kia hafi nýtt sér
að auka markaðshlutdeild sína
á mörkuðum sem eru í niður-
sveiflu en það gerðu fyrirtækin
einmitt þegar bílasala í Banda-
ríkjunum var í mikilli lægð eftir
efnahagshrunið árið 2008 og á
næstu árum jókst mjög mark-
aðshlutdeild þeirra vestra.
Hyundai og Kia hefur tekist að
halda verði á bílum sínum lágu í
Rússlandi og hefur starfað með
innlendum framleiðendum við
framleiðslu íhluta á bílum þar.
Á meðan hefur Volkswagen flutt
inn dýrari íhluti frá heimamark-
aði og því neyðst til að hækka
verð á bílum sínum meira en
Hyundai og Kia og það hefur
komið niður á sölu Volkswagen,
líkt og annarra framleiðenda.
Hyundai/Kia fram úr
Lada í söLu bíLa
í rússLandi fyrsta sinni
Kia selst betur en Hyundai, en samanlögð sala
systurmerkjanna er meiri en hjá hinu rússneska Lada.
Citroen C3 svipar nú mikið til stærra bróðursins, Citroën C4 Cactus.
Citroën kynnti nýjan C3 bíl sinn
í lok síðasta mánaðar og kom það
flestum á óvart að útlitið hefur
hann að stórum hluta erft frá
hinum vinsæla Citroën C4 Cact-
us og er kominn með sams konar
hnjaskbólur á hliðarnar. Bíllinn
er einnig með annan lit á þak-
inu og vindkljúf að aftan. Bíll-
inn er 399 mm langur og nú með
stærra 300 lítra skott. Ein af nýj-
ungunum sem kynntar eru í þess-
um bíl er myndbandskerfi sem
fer í gang ef kerfið skynjar hættu
og hugsanlegan árekstur. Nýtt
upplýsingakerfi verður í bílnum
með Android og Apple CarPlay
möguleikum. Hægt verður að fá
blindpunktsviðvörun og akreina-
skiptivara í bílinn, sem ekki er
algengt með svo litla bíla. Bensín-
vélar bílsins verða frá 82 til 110
hestöfl og dísilvélarnar 75, 99 og
120 hestafla.
Nýr Citroën C3 með Cactus-útliti
BMW-bíll settur saman í Kína.
Því hefur verið hreyft í Kína að
hömlum á meirihlutaeignarhaldi
erlendra bílaframleiðenda í bíla-
verksmiðjum í Kína verði aflétt.
Það er nú takmarkað við minna
en 50% eignarhald þeirra. Með
því mættu erlendir bílaframleið-
endur eiga meirihluta eða að fullu
bílaverksmiðjur í Kína. Þessi
breyting er af mörgum talin auka
heilbrigða samkeppni á bílamark-
aði í Kína og það myndi gagnast
kaupendum bíla þar. Á hinn bóg-
inn óttast forsvarsmenn China
Association of Automobile Manu-
facturers að þessi breyting gæti
leitt til hruns innlendra bílafram-
leiðenda og að þeir erlendu, sem
eru enn stærri bílaframleiðend-
ur, gætu stefnt framtíð þeirra
innlendu í hættu. Kína er stærsti
bílamarkaður í heimi og sá mikil-
vægasti fyrir langflesta bíla-
framleiðendur. Margir framleið-
endanna hafa stofnað til sam-
eiginlegrar eigu kínverskra
bílaverksmiðja og þar eru gjarn-
an framleiddir einstaka gerðir
þeirra til sölu í Kína. Þær yrðu
vafalaust fleiri ef erlendum bíla-
framleiðendum myndi leyfast að
eiga verksmiðjur sínar einir.
Kína gæti leyft ráðandi
eignarhald bílaframleiðenda
Þau eru ekki mörg mótorhjólin
sem ná 400 km hraða, en Kawa-
saki Ninja H2R er ekkert venju-
legt mótorhjól og kostar svo
mikið sem 50.000 dollara, eða
eitthvað á sjöundu milljón króna.
Þannig hjóli ók Tyrkinn Kenan
Sofuoglu fyrir stuttu og kom
því á 400 hraða og það á um það
bil 26 sekúndum og er sá stutti
tími einn og sér hreint með ólík-
indum. Þetta gerði hann ekki
á akstursbraut, heldur á Izmit
Bay-brúnni í Tyrklandi, en hún
er með einstaklega slétt yfir-
borð og heppileg til hraðakst-
urs. Brúnni var lokað á meðan
á þessum magnaða akstri Sofu-
oglu stóð, en hann var skipulagð-
ur af Kawasaki-fyrirtækinu.
Með afl á við sportbíl
Kawasaki Ninja H2R er 300
hestöfl og ekki löglegt á al-
mennum vegum, heldur ætlað
að glíma við keppnisbrautir. Það
er hins vegar Kawasaki Ninja
H2 hjólið, með ekkert R í end-
ann og er það 200 hestöfl og ætti
það afl að duga flestum. Kawa-
saki hafði veitt Kenan Sofuoglu
þær upplýsingar að Kawasaki
Ninja H2R hjólið væri með upp-
gefinn hámarkshraða upp á 380
km/klst. en það væri engu að
síður draumur margra hjá fyrir-
tækinu að hægt væri að koma
því í 400 km hraða. Það sann-
aði Kenan Sofuoglu og á nú fyrir
vikið hraðaheimsmet á mótor-
hjóli.
Náði 400 km hraða á mótorhjóli
Sala á nýjum fólksbílum frá 1. jan-
ú ar til 30. júní hefur aukist um
38% miðað við sama tíma á síð-
astliðnu ári, en nýskráðir fólksbíl-
ar á þessu tímabili voru 12.125 á
móti 8.784 miðað við sama tíma-
bil 2015 eða aukning um 3.341 bíl.
Sú jákvæða og ánægjulega þróun
heldur áfram er kemur að endur-
nýjun bílaflota landsmanna enda
full þörf á því að fækka gömlum,
óöruggum og mengandi bílum
á götunum. Með áframhaldandi
góðri sölu nýrra og sparneytinna
bíla er ljóst að losun óæskilegra
efna út í andrúmsloftið minnk-
ar og öryggi allra í umferðinni
eykst. Stór hluti, eða nánast helm-
ingur, nýskráðra bíla fer til bíla-
leiga enda kallar mikil fjölg-
un ferðamanna á meiri þjónustu
ferðaþjónustuaðila. Þeir bílar
skila sér svo út á almennan mark-
að eftir u.þ.b. 15 mánuði, þá sem
ódýrari kostur fyrir þá sem vilja
yngja upp fjölskyldubílinn, segir í
frétt frá Bílgreinasambandinu.
Sala nýrra bíla 38% meiri en í fyrra
12.125 bílar hafa selst á fyrri hluta ársins, en um 14.500 bílar allt árið í fyrra.
bíLar
Fréttablaðið
4 5. júlí 2016 ÞRIÐJUDAGUR
0
5
-0
7
-2
0
1
6
0
4
:5
7
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
E
A
-5
6
2
4
1
9
E
A
-5
4
E
8
1
9
E
A
-5
3
A
C
1
9
E
A
-5
2
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
0
s
_
4
_
7
_
2
0
1
6
C
M
Y
K