Fréttablaðið - 16.06.2016, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 16.06.2016, Blaðsíða 2
Frá kr. 66.895 COSTA DEL SOL 20. júní í 10 nætur Netverð á mann frá kr. 66.895 m.v. 2 fullorðna og 1 barn í stúdíó. Netverð á mann frá kr. 79.995 m.v. 2 fullorðna í stúdíó. Aguamarina Aparthotel Bir t m eð fy rir va ra um pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé r r étt til le iðr étt ing a á sl íku . A th. að ve rð ge tur br ey st án fy rir va ra . Allt að 56.000 kr. afsláttur á mann Veður Hæg suðlæg átt í dag og skúrir víða um land sem þýðir að það mun sjást eitt- hvað í sólina á milli þess sem gróður- inn er vökvaður. Sjá Síðu 28 Fyrsti dagur Secret Solstice Undirbúningur hefur gengið vel fyrir Secret Solstice tónlistarhátíðina sem hefst í dag í Laugardal, en hátíðin er nú haldin í þriðja sinn. Alls troða 177 listamenn upp á hátíðinni og búist er við hátt í fimmtán þúsund gestum. Fréttablaðið/SteFán Frakkland Íslendingar stóðu sig ekki einvörðungu frábærlega innan vallar þegar íslenska landsliðið gerði 1-1 jafntefli við Portúgal í fyrsta leik sínum á EM í Frakklandi, heldur var hegðun fjölmargra stuðningsmanna Íslands í Saint- Étienne í fyrradag til fyrirmyndar. Þetta segir Víðir Reynisson, öryggisfulltrúi KSÍ, við Fréttablaðið sem ræddi við hann í Annecy, bæki- stöðvum íslenska liðsins, í gær. „Það var ótrúlegt að horfa á þá meðan á leiknum stóð en ekki var síðra að ræða við þá sem sjá um öryggismál á vellinum. Yfirmaður- inn í Saint-Étienne var í skýjunum yfir framferði íslensku stuðnings- mannanna,“ segir Víðir en reikna má með að minnst sjö þúsund stuðningsmenn Íslands hafi verið á leiknum. „Þeir voru ekki bara háværir og hvöttu liðið áfram, heldur voru þeir til sóma. Við fengum líka frábærar umsagnir um þá frá þeim sem sjá um opnu stuðningsmannasvæðin (e. fan zone). Ég er því stoltur Íslendingur í dag.“ Víðir segir að hann hafi enga til- kynningu fengið um mál sem hafi komið upp í tengslum við íslenska áhorfendur í Saint-Étienne. Fjöl- margir stuðningsmenn lögðu leið sína í miðbæ borgarinnar strax um hádegisbilið og nutu blíðunnar þar til þeir héldu á leikvanginn undir kvöldið. „Það getur vel verið að einhver mál hafi komið upp sem ég hef ekki heyrt um. En það eru engin stórmál í gangi og allir þeir öryggisaðilar sem við erum í samskiptum við eru mjög ánægðir,“ segir Víðir og bætir við að stuðningsmenn Portúgals hafi einnig sýnt sínar bestu hliðar. „Það var enginn aðskilnaður á milli stuðningsmanna í stúkunni. Portúgalar voru í okkar hópi og öfugt. En það komu engin vanda- mál upp, sem er meiriháttar. Það virtist öllum vel til vina.“ Ísland á næsta leik sinn á laugar- dag, gegn Ungverjalandi í Mar- seille. Þar létu rússneskar og enskar fótboltabullur öllum illum látum fyrir leik liðanna um síðustu helgi. Víðir segir að sú uppákoma muni ekki hafa áhrif. „Allt sem snýr að Íslandi liggur ljóst fyrir. Undirbúningurinn fyrir þá ferð hefst í dag [í gær] og leik- menn í liðinu munu þá fá allar upplýsingar um hvernig málum verði háttað. Við eigum ekki von á að neitt sem gerðist í Marseille um helgina hafi áhrif á það sem við munum gera, hvorki fyrir leikmenn né stuðningsmenn.“ eirikur@frettabladid.is Íslendingarnir sagðir vera til fyrirmyndar Víðir Reynisson, öryggisfulltrúi KSÍ, var í skýjunum yfir hegðun stuðnings- manna íslenska liðsins á Stade Geoffroy-Guichard í Saint-Étienne í fyrrakvöld. Veit ekki til að lögregla hafi þurft að hafa nokkur afskipti af Íslendingum. landsliðsmaðurinn birkir bjarnason með íslenska áhangendur í baksýn að loknum leik Íslands og Portúgals á eM í fótbolta. Fréttablaðið/VilhelM Portúgalar voru í okkar hópi og öfugt. En það komu engin vanda- mál upp, sem er meiriháttar. Það virtist öllum vel til vina. Víðir Reynisson, öryggisfulltrúi KSÍ alþingi Samkvæmt drögum að frumvarpi til breytinga á manna- nafnalöggjöfinni verður núverandi mannanafnanefnd lögð af og engar takmarkanir verða á notkun ættar- nafna hér á landi. Drögin gjörbreyta löggjöfinni með róttækum hætti en þau voru birt af innanríkisráðuneytinu í gær. Ráðuneytið óskar nú eftir rökstuddum tillögum eða athuga- semdum um þau. Í drögunum kemur einnig fram að felld verða á brott ákvæði um að eiginnöfn skuli fallbeygjast og sam- ræmast íslenskri málfræði, um að nöfn skuli fylgja líffræðilegu kyni og um takmarkanir á notkun erlendra nafna. Verði drögin samþykkt verða einu kröfurnar sem gerðar yrðu til eiginnafna þær að þau skuli vera nafnorð, auðkennd með stórum upphafsstaf og án greinis. Guðrún Kvaran, formaður Íslenskrar málnefndar, segir for- dæmi nágrannalanda okkar sýna að verði lögin um ættarnöfn afnumin muni íslenska föðurnafnakerfið leggjast af. Grunnhugsunin að baki frum- varpinu er sú að réttur einstak- lingsins til að ráða eigin nafni og barna sinna sé ríkari en hagsmunir samfélagsins til að takmarka þann rétt. Rekja má aðdraganda draganna til dóms Héraðsdóms Reykjavíkur frá 2013 þar sem dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að rétturinn til nafns falli undir friðhelgi einkalífs og skuli ekki takmarkast með lögum nema brýna nauðsyn beri til. – þv Leggja til gjörbreytt manna– nafnalög Guðrún Kvaran, prófessor og for- maður Íslenskrar málnefndar SviSS Starfsmaður tölvudeildar panamísku lögfræðistofunnar Moss ack Fonseca hefur verið hand- tekinn í Sviss. Maðurinn er grun- aður um að hafa lekið yfir ellefu milljónum leyniskjala úr gagna- grunni stofunnar og sakar lögfræði- stofan starfsmann sinn um þjófnað og trúnaðarbrot. Talið er að hann hafi lekið gögn- unum frá Genf, höfuðborg Sviss, en hann hafði aðgang að öllum skjöl- um stofunnar frá skrifstofu sinni. Gerð var húsleit á skrifstofum Mossack Fonseca í Genf og lagði svissneska lögreglan hald á tölvu- búnað. Maðurinn neitar öllum ásökunum. Hinum svokölluðu Panama- skjölum var lekið til þýska blaðsins Süddeutsche Zeitung og er um að ræða stærsta gagnaleka til fjölmiðla frá upphafi. Í gögnunum er að finna upplýsingar um eignir fjölmargra einstaklinga í aflandsfélögum. – þv Handtekinn vegna lekans Hátíðin undirbúin 1 6 . j ú n í 2 0 1 6 F i M M T u d a g u r2 F r é T T i r ∙ F r é T T a B l a ð i ð 1 6 -0 6 -2 0 1 6 0 4 :1 4 F B 0 5 6 s _ P 0 5 5 K _ N Ý. p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 5 5 K _ N Ý. p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 C 0 -C C 0 0 1 9 C 0 -C A C 4 1 9 C 0 -C 9 8 8 1 9 C 0 -C 8 4 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 5 6 s _ 1 5 _ 6 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.