Fréttablaðið - 09.06.2016, Side 62
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Snapchat hefur
verið að vinna með
hátíðum á borð við coach
ella og tomorrowland,
nema hvað að þar eru um
hundrað þúSund tónleika
geStir Samanborið við þá
fimmtán þúSund Sem komaSt
fyrir á SolStice.
DAGSKRÁIN
ER KOMIN ÚT!
Nældu þér í
Secret Solstice
appið og skoðaðu
dagskrána!
Appið er fáanlegt
á Android og
iPhone
Það er auðvitað frábært að fá að vera í samstarfi við samfélagsmiðlarisa á borð við Snapchat. Við erum
gríðarlega stolt,“ segir Ósk Gunn-
arsdóttir, kynningarfulltrúi Secret
Solstice-hátíðarinnar sem fram fer
í Laugardalnum dagana 16. til 19.
júní. Snapchat er einn vinsælasti
samfélagsmiðill í heimi og sem
dæmi má nefna eru um níu þúsund
skilaboð send um allan heim á
hverri einustu sekúndu.
Solstice-hátíðin mun hafa eigið
„live story“, eða beint streymi, svo
þær hundrað og fimmtíu milljónir
sem skráðar eru sem notendur á
Snapchat um allan heim geta fylgst
með því sem þar gerist í rauntíma.
Mun streymt úr Laugardalnum á
laugardeginum, þann 18. júní.
„Gestir hátíðarinnar geta sem sagt
sent inn sín eigin myndskeið sem
birtast í „live story“, sem Snapchat
velur svo úr til að birta í streyminu.
Við fáum líka starfsmenn frá Snap-
chat sem gera svokallaða „geofilt-
era“,“ útskýrir Ósk og bendir á að
Snapchat hafi verið duglegt við að
heimsækja stóra viðburði úti í heimi,
en þetta sé í fyrsta skipti sem íslenskt
vörumerki dettur í lukkupottinn.
„Í september í fyrra var Ísland
sem heild valið til að vera með
beint streymi svo þetta er virkilega
ánægjulegt. Sé dæmið sett í sam-
hengi má sjá að Snapchat hefur
verið að vinna með hátíðum á borð
við Coachella og Tomorrowland,
nema hvað þar eru um hundrað
þúsund tónleikagestir saman-
borið við þá fimmtán þúsund sem
komast fyrir á Solstice,“ útskýrir
Ósk og bendir á að sú staðreynd
að streymt verði frá hátíðinni með
þessum hætti gefi ansi góða mynd af
því hve vinsæl hátíðin sé að verða á
heimsvísu.
Spurð um hvað hafi heillað
þennan gríðarlega vinsæla sam-
félagsmiðil segir hún: „Í rauninni
allt. Hugmyndin um að sólin setj-
ist aldrei, fallegt landið, auðvitað,
böndin sem koma fram og svo fólk-
ið, þeir segja að íslenska stemningin
og heildarmynd hátíðarinnar hafi
náð þeim strax frá byrjun.“
gudrun@frettabladid.is
Solstice verður
í beinu streymi
á Snapchat
Fetað verður í fótspor hátíða á borð við Coachella
er samfélagsmiðlarisinn Snapchat opnar fyrir beint
streymi frá Secret Solstice. Þá geta hundrað og fimmtíu
milljónir manna fylgst með gangi mála í Laugardalnum.
Secret Solstice-hátíðin verður í beinni um allan heim þann 18. júní. Það verður að teljast ágætis snerting við umheiminn.
Ósk Gunnarsdóttir, kynningarfulltrúi hátíðarinnar.
Níu þúsund
snöpp eru
send á hverri
sekúndu, sé
allur heimurinn
skoðaður.
9 . j ú n í 2 0 1 6 F I M M T U D A G U R50 L í F I ð ∙ F R É T T A B L A ð I ð
0
9
-0
6
-2
0
1
6
0
4
:3
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
A
F
-B
7
D
8
1
9
A
F
-B
6
9
C
1
9
A
F
-B
5
6
0
1
9
A
F
-B
4
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
6
4
s
_
8
_
6
_
2
0
1
6
C
M
Y
K