Fréttablaðið - 09.06.2016, Side 12

Fréttablaðið - 09.06.2016, Side 12
Mannréttindafulltrúi Evrópuráðsins Nils Muižnieks flytur erindið: Current Challenges to Human Rights in Europe Fundarstjóri: Pétur Dam Leifsson, dósent við Lagadeild Háskóla Íslands. Báðir fundirnir verða í Norræna húsinu, 10. og 20. júní nk. og verða erindin á ensku. Boðið verður upp á hádegishressingu að loknum erindum. Allir velkomnir. Framkvæmdastjóri Lýðræðis- og mannréttindastofnunar ÖSE, ODIHR, Michael Georg Link flytur erindið: Human Rights and Security Fundarstjóri: Björg Thorarensen, prófessor við Lagadeild Háskóla Íslands. Utanríkisráðuneytið í samvinnu við Mannréttindastofnun Háskóla Íslands efnir til tveggja funda með fulltrúum alþjóðastofnana í Evrópu um áhrif átaka og hryðjuverka á virðingu fyrir mannréttindum Föstudaginn 10. júní kl. 12-13 í Norræna húsinu Mánudaginn 20. júní kl. 12-13 í Norræna húsinu MANNRÉTTINDASTOFNUN Bandaríkin Hillary Clinton hvetur stuðningsmenn Bernies Sanders til að fylkja sér að baki henni í kosn- ingabaráttunni fram undan. Hún tryggði sér útnefningu Demókrata- flokksins í forkosningum á þriðju- dag. „Hvort sem þið studduð mig eða Sanders eða einhvern repúblikan- anna, þá þurfum við að standa saman við að gera Bandaríkin betri, sanngjarnari og sterkari,“ sagði hún og hrósaði jafnframt Sanders fyrir baráttugleðina: „Kosningabarátta hans og þær áköfu kappræður sem við höfum átt í um það hvernig eigi að hækka tekjur, draga úr ójöfnuði og styrkja félagslegan hreyfanleika upp á við hafa haft mjög góð áhrif á Demókrataflokkinn og Bandaríkin.“ Sanders segist hins vegar enn staðráðinn í að halda áfram barátt- unni þangað til á landsþingi Demó- krataflokksins í lok júlí. „Ég er frekar góður í reikningi og geri mér fulla grein fyrir því að baráttan fram undan verður afar kröpp fyrir okkur,“ sagði hann að kvöldi þriðjudags. „En við ætlum að halda áfram að berjast um hvern einasta fulltrúa.“ Clinton lýsti yfir sigri á fundi með stuðningsmönnum sínum í fyrrakvöld, þar sem hún þakkaði meðal annars móður sinni fyrir að hafa gefið sér gott ráð. „Hún kenndi mér að hopa aldrei undan ofstopa- mönnum,“ sagði hún og uppskar mikil fagnaðarlæti í salnum. Hún beindi síðan spjótum sínum að Donald Trump, forsetaefni Repúbl ikanaflokksins, sem væntan- lega mun keppa við hana í forseta- kosningunum í nóvember. Hún sagði Trump óhæfan til þess að gegna forsetaembættinu, ein- faldlega vegna þess hvers konar skapferli hann væri gæddur: „Hann vill sigra með því að ýta undir ótta okkar og nudda salti í sárin, og minna okkur daglega á það hversu frábær hann er. Við teljum að við eigum að hjálpa hvert öðru upp, ekki rífa hvert annað niður.“ Enn eiga demókratar þó eftir að kjósa sér forsetaefni í höfuðborg- inni Washington. Þær forkosningar fara fram á þriðjudaginn, 14. júní. gudsteinn@frettabladid.is Clinton hrósar Sanders fyrir baráttuna Tryggði sér útnefningu Demókrataflokksins í forkosningum á þriðjudag. Segir Donald Trump ekkert erindi eiga í forsetaembættið. Sanders segist staðráðinn í að halda áfram baráttunni þangað til á landsþingi Demókrataflokksins sem fram fer í næsta mánuði. Hillary Clinton verður forsetaefni Demókrataflokksins í kosningunum í nóvember. Fréttablaðið/EPa danmörk Hæstiréttur Danmerkur hefur svipt Said Mansour ríkis- borgararétti. Þetta er í fyrsta sinn sem dómur af þessu tagi er felldur í Danmörku. Mansour hefur tvisvar verið dæmdur til refsingar fyrir að hvetja til hryðjuverka. Hann er 56 ára gamall, fimm barna faðir og eru öll börnin dansk- ir ríkisborgarar. Mansour er hins vegar einnig með ríkisborgararétt í Marokkó. Ekki er þó víst að honum verði vísað úr landi eða hann framseldur til Marokkó, sem hefur óskað eftir framsali hans. Danska ríkinu er nefnilega óheimilt að senda fólk til landa þar sem hætta er á að það eigi yfir höfði sér pyntingar eða dauða- dóm. – gb Sviptur dönskum ríkisborgararétti Said Mansour hefur tvisvar hlotið dóm fyrir að hvetja til hryðjuverka. Fréttablaðið/EPa StjórnSýSla „Öll þessi Panamamál eru í vinnslu og ekki tímabært að tjá sig um þau sérstaklega,“ svarar Skúli Eggert Þórðarson ríkisskatt- stjóri þegar hann er spurður um gang mála. Í byrjun apríl kom fram í Frétta- blaðinu að ríkisskattstjóri hefði kraf- ist þess að fá Panama-skjölin afhent frá Reykjavik Media á grundvelli 94. greinar tekjuskattslaga. Skúli Eggert segir gagnaopnun Reykjavik Media í byrjun maí, þar sem hægt er að leita í skjölunum, hafa breytt stöðunni. „Aðgangurinn er áhugaverður en nokkuð takmarkaður. Þau gögn voru til fyllingar því sem til var fyrir og að því leyti gagnleg,“ segir hann en bætir við að hann geti ekki tjáð sig frekar um málið. Vinnslan muni taka nokkurn tíma, sennilega út árið, og því ekki frekari upplýsingar að fá að sinni. – ebg Opinberun gagna breytti stöðunni í rannsóknum Fyrir mánuði var opnaður gagnagrunnur byggður á Panama-skjölunum sem Skúli Eggert segir bæta við upplýsingar sem ríkisskattstjóri hafði fyrir. NorDiCPHotoS/aFP Aðgangurinn er áhugaverður en nokkuð tak- markaður. Skúli Eggert Þórðarson, ríkisskattstjóri Hún kenndi mér að hopa aldrei undan ofstopamönnum. Hillary Clinton um móður sína Við ætlum að halda áfram að berjast um hvern einasta fulltrúa. Bernie Sanders 9 . j ú n í 2 0 1 6 F i m m t U d a G U r12 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a ð i ð 0 9 -0 6 -2 0 1 6 0 4 :3 4 F B 0 6 4 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 A F -C B 9 8 1 9 A F -C A 5 C 1 9 A F -C 9 2 0 1 9 A F -C 7 E 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 6 4 s _ 8 _ 6 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.