Fréttablaðið - 09.06.2016, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 09.06.2016, Blaðsíða 28
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar- efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson | Umsjónarmenn efnis: Sólveig gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351, Vera einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357 | Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 2447, Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434, Jóhann Waage, johannwaage@365.is, s. 512 5439, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 Berglind Ómarsdóttir klæðskera- og kjólameistari heldur tískusýn- ingu á Oddsson ho(s)teli í kvöld klukkan sex þar sem hún sýnir vörur sem hún hefur unnið að að undanförnu. Sýningin er haldin í tilefni útskriftar Berglindar sem meistari í klæðskurði og kjóla- saumi. „Ég opnaði eigin sauma- stofu fyrir um fjórtán árum og var þá nær eingöngu í sérsaums- verkefnum, eins og brúðarkjólum og öðrum samkvæmisfatnaði. Ég flutti svo til Lúxemborgar árið 2008, var þar með saumastofu og byrjaði þá fyrst fyrir alvöru að hanna og framleiða mína eigin línu. Það góða við að búa í Mið- Evrópu er að það er svo auðvelt að verða sér úti um alls kyns efni. Ég flutti aftur heim til Íslands síðasta haust og kom mér upp vinnustofu og hef aðeins verið að koma mér á kortið aftur,“ útskýr- ir Berglind. Sýningin í kvöld verður fjórða einkasýning Berglindar á rúmum fjórum árum en hún hefur tekið þátt í nokkrum samsýningum í gegnum tíðina. „Fyrstu einka- tískusýninguna hélt ég fyrir full- um sal af fólki í Lúxemborg 2012. Ég fékk mjög góð viðbrögð bæði í blöðum og sjónvarpi þar sem aðal tískumógúll Lúxemborg- ar hélt víst ekki vatni yfir hönn- uninni minni og ég skildi ekkert hvað hann var að tala um mig í sjónvarpinu,“ segir hún og hlær. Hún nefnir að hún sé frá Eyjum en þar hefur hún haldið tvær sýn- ingar, aðra í Eldheimum rétt eftir opnun og í vetur var hún einnig með stóra tískusýningu þar. Berglind lýsir hönnun sinni sem líflegri, litríkri, klæðilegri, töff og aðeins öðruvísi. „Það sem allar mínar flíkur eiga sameigin- legt er að engar tvær eru eins. Ég reyni alltaf að hafa hverja flík ein- staka enda sauma ég og hanna allt sjálf og engin fjöldaframleiðsla í gangi. Í kvöld verða til sýnis föt sem ég hef verið að vinna í síðustu vikurnar, um er að ræða toppa, pils, buxur, kjóla, vesti og kápur. Klassísk hönnun í mínum stíl fyrir konur á öllum aldri.“ Hugmyndir að hönnuninni fær Berglind alls staðar að. Henni finnst gott að fara út í góðan göngutúr og pæla í alls konar formum og litum. „Hugmyndirn- ar poppa líka upp þegar maður fer í efnaleiðangur. Auðvitað fylgist ég svo með tísku og straumum líka og fæ hugmyndir úr blöðum og myndum. Ég hef alltaf haft áhuga á fallegum og skemmti- legum fötum hvort sem þau eru í tísku eða ekki. Þannig að segja má að ég hafi líklega alltaf pælt í tískunni.“ Spurð að því hvernig hennar eigin stíll sé segir hún að hann hafi tónast aðeins niður með ár- unum. „Ég var miklu duglegri að nota liti hérna áður fyrr. Núna er ég meira í dekkri litum hversdags en skelli mér í litríka kjóla eða toppa við betri tækifæri. Auð vitað klæðist ég mestmegnis minni hönnun,“ segir Berglind brosandi. Hún segist ekki eiga neinn einn uppáhaldshönnuð. „Það eru svo margir að gera flotta hluti, en þeir eru jú mannlegir og geta verið að gera rosa flotta línu eitt tímabilið og svo jafnvel ekkert spennandi það næsta.“ Nánari upplýsingar um hönnun Berglindar má finna á Facebook- síðu hennar, Berglind Clothing. litríkt og töFF Hönnun Berglindar Ómarsdóttur, klæðskera- og kjólameistara, er lífleg, litrík, töff, klæðileg og aðeins öðruvísi. Hún hefur alla tíð pælt í tísku og heldur sína fyrstu einkatískusýningu í Reykjavík í kvöld.   Berglind segir að það sem allar hennar flíkur eigi sameiginlegt sé að engar tvær þeirra séu eins. Berglind Ómarsdóttir, klæðskera- og kjólameistari, heldur tískusýningu á Oddsson ho(s)teli í kvöld klukkan sex þar sem hún sýnir vörur sem hún hefur unnið að að undanförnu. Sýningin er haldin í tilefni útskriftar Berglindar sem meistari í klæðskurði og kjólasaumi. MYND/HANNAGréta Boða kynnir CHANEL í Sigurboganum 9. – 11. Júní. 20% afsláttur af CHANEL alla helgina. Fa rv i.i s // 0 61 6 KJÓLL 4.995 kr. SKÓR 7.995 kr. Kemur líka í græ nu Endalaust ENDALAUST NET 1817 365.is 9 . j ú n í 2 0 1 6 F I M M T U D A G U R2 F ó l k ∙ k y n n I n G A R b l A ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ k y n I n G A R b l A ð ∙ T í s k A 0 9 -0 6 -2 0 1 6 0 4 :3 4 F B 0 6 4 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 A F -D 5 7 8 1 9 A F -D 4 3 C 1 9 A F -D 3 0 0 1 9 A F -D 1 C 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 6 4 s _ 8 _ 6 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.