Fréttablaðið - 09.06.2016, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 09.06.2016, Blaðsíða 27
fólk kynningarblað Mér finnst konur alltaf ele gant og smart í síðum kjól. Það er formlegur fatnaður og glæsilegur. Yfirleitt er þó léttara yfir konum í stutt- um kjól. Olga Soffía Einarsdóttir 9 . j ú n í 2 0 1 6 F I M M T U D A G U R Olga Soffía segir að reglan sé sú að klæðast ekki hvítum kjól í brúð­ kaupi. „Ég hef nokkrum sinnum verið í brúðkaupi þar sem konur hafa verið í hvítu. Það er ekki æskilegt nema brúðurin biðji um það sérstaklega. Klæðnaðurinn fer auðvitað svolítið eftir aðstæð­ um, hvort brúðkaupið sé að vetri eða sumri, í sólskini eða rigningu. Sum brúðkaup eru haldin uppi í sveit en þá er allt í góðu lagi að vera í strigaskóm við sparikjólinn. Þegar veðrið er gott að sumarlagi er um að gera að mæta prúðbúin en sumarleg. Konur ættu að vera meira í litum,“ segir Olga Soffía og bætir við að íslenskar konur gangi of mikið í svörtu. „Kjólarnir geta verið síðir eða stuttir, jafnvel sparileg buxna­ dragt. Stundum eru brúðhjónin með þema og þá fylgir fólk beiðni þeirra. Mér finnst konur alltaf ele­ gant og smart í síðum kjól. Það er formlegur fatnaður og glæsilegur. Yfirleitt er þó léttara yfir konum í stuttum kjól,“ segir hún. Olga Soffía bjó lengi í Bretlandi og segir mikinn mun á brúðkaups­ tísku þar í landi eða hér. „Allar konur koma með hatt í enskt brúð­ kaup og þær eru miklu formlegri í klæðaburði en íslenskar konur. Hér gengur engin kona með hatt. Þær bresku leggja til dæmis mikið upp úr því að vera með veski í stíl við hatt og skó. Íslenskar konur eru frekar kasjúal og dressa sig svolítið niður,“ segir Olga Soffía sem heldur námskeið í fatastíl sem sjá má á heimasíðu hennar, olga.is. „Það er rosalega gaman að vera fínn,“ segir hún. „Við eigum að notfæra okkur tilefni eins og brúð­ kaup, leikhúsferð eða afmæli til að vera fín. Mér finnst líka að fallegir litir mættu vera sjáanlegri í kjóla­ tískunni hér á landi. Einu sinni fór ég í írskt brúðkaup og þar voru allar konur í síðum kjólum, mjög sparilegar. Því miður er ekki mikið úrval af flottum, síðum sparikjól­ um í íslenskum verslunum. Svo er líka allt í lagi að skoða vin­ tage kjóla eða fara í skápinn henn­ ar ömmu. Ef kalt er í veðri ættu konur að taka fram loðkraga með kjólunum eða hafa pels yfir sér, sérstaklega að vetri. Við erum allt of feimnar við að vera spariklædd­ ar,“ segir Olga Soffía og bendir á að gallabuxur séu nánast einkenn­ isklæðnaður á Íslandi. elin@365.is Litir ættu að sjást meira hjá ísLenskum brúðkaupsgestum Nú er tími brúðkaupa og flottra veislna. Það getur verið höfuðverkur að finna rétta klæðnaðinn fyrir brúðkaupsveisluna. Olga Soffía Einarsdóttir stílisti segir konur á Íslandi of feimnar við að nota liti og klæða sig í glæsikjóla. Gestir í konunglegu brúðkaupi í Stokkhólmi mættu prúðbúnir. Kjóllinn er í fallegum lit. Herrann er í kjólfötum. Mary, krónprinsessa Danmerkur, og eiginmaður hennar, Friðrik krón- prins, mættu í brúðkaup Karls Filipps Svíaprins og Sofiu í fyrrasumar í sparifötunum. Mary var í ljósfjólubláum síðkjól. Olga Soffía Einarsdóttir stílisti segir að í sumarbrúðkaupi ættu konur að vera meira í litum. Glerártorg verslunarmiðstöð | Akureyri | www.glerartorg.is GLÆSILEG GLERÁRHLAUPSTILBOÐ Í VERSLUNUM GLERÁRTORGS 9. - 13. JÚNÍ KOMDU OG GERÐU GÓÐ KAUP Í SKEMMTILEGUM FÉLAGSSKAP –af lífi & sál– TILBOÐ SDAGA R GLERÁ R- HLAUP 0 9 -0 6 -2 0 1 6 0 4 :3 4 F B 0 6 4 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 9 A F -D A 6 8 1 9 A F -D 9 2 C 1 9 A F -D 7 F 0 1 9 A F -D 6 B 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 6 4 s _ 8 _ 6 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.