Fréttablaðið - 09.06.2016, Blaðsíða 60
Söguhetja Doom hefur yfirleitt verið kölluð því frumlega nafni Doomguy.
Skotleikir
PS4 Doom
HHHHH
Mars hefur orðið fyrir innrás djöfla
frá helvíti og aðeins einn maður
stendur í vegi þeirra. Doom er
ekkert að flækja hlutina. Skjóttu
allt sem hreyfist og haltu svo áfram.
Það segir sitt um Doom að það er
enginn sérstakur takki til að hlaupa
hratt. Spilarar hlaupa alltaf hratt.
Doom er endurgerð af hinum
upprunalega Doom sem kom út
árið 1993 og er frá sama fyrirtæki.
Þó grafíkin hafi breyst töluvert í
millitíðinni er margt við leikinn
sem minnir á gamla tíma. Spilari
er í hlutverki hermanns sem notar
stórar og kraftmiklar byssur til að
ganga frá djöflum og uppvakningum
í massavís.
Keðjusögin fræga er komin aftur
sem og BFG-byssan. Doom er stút-
fullur af vísunum í gömlu leikina og
aðra poppmenningu.
Í stað þess að hægt sé að fara í
skjól og safna lífi áður en haldið
er áfram þarf að finna meira líf og
brynklæði. Þá fæst líf fyrir að drepa
djöfla með svokölluðum Glory Kills.
Það felur í sér að skjóta djöfulinn þar
til hann missir jafnvægið, hlaupa að
honum og ganga frá honum á mjög
ofbeldisfullan hátt. Þannig eru spil-
arar hvattir til að taka sénsa þegar
þeir eru að dauða komnir.
Spilarar eru hvattir til þess að
skoða hvern krók og kima í Doom
þar sem kraftmiklar uppfærslur
leynast víða og þær borga sig veru-
lega þegar líður á leikinn. Það sem
þetta gerir hins vegar er að draga úr
hraða leiksins og oft á tíðum verja
spilarar miklum tíma í að hlaupa
um borð leiksins og leita að földum
hlerum og öðrum leyndarmálum.
Það sem gerir Doom skemmtileg-
an er einmitt áðurnefndur hraði og
hasar. Því er skringilegt að framleið-
endur leiksins leggi á sig að hægja á
framför spilara. Grafík leiksins er
mjög flott. Spilunin er einföld, hröð
og skemmtileg og það er eitthvað
lúmskt skemmtilegt við hve ofbeld-
isfullur og blóðugur þessi leikur er.
samuel@365.is
Helvíti á Mars: Upprisa
Doom er vel heppnuð
ÍSLENSKT TÍSKUTÍMARIT
KOMIÐ Í ALLAR HELSTU VERSLANIR
Mér finnst í alvöru að para-ferðir ættu að vera uppá-skrifaðar af lækni,“ segir
Sigga Dögg kynfræðingur sem ásamt
kollega sínum, Áslaugu Kristjáns-
dóttur, hefur tekið til við að ferja
íslensk pör til Berlínar. Hyggjast þær
hefjast handa við að koma fólkinu
yfir á meginlandið með haustinu.
Stefnan er tekin á að leiða pör um
Berlín, fara yfir kynlífssögu borgar-
innar ásamt því að veita sérvalin
kynlífsráð.
„Við tökum á móti fólki með
gjafapoka, bækur og æfingar sem
það getur nýtt sér í ferðinni og svo
þegar það kemur heim,“ útskýrir
Sigga upprifin. Hún segir Berlín
henta vel í svona ferðir, enda sé um
afar áhugaverða borg að ræða sé
horft til kynlífssögu borgarinnar.
„Svo hefur verið sýnt fram á að
það í fjölda rannsókna, að það
að breyta um umhverfi hafi mjög
jákvæð áhrif á sambönd. Sjálf mæli
ég með að pör fari í sleikferð einu
sinni á ári. Við viljum með þessu fá
fólk til að hlæja svolítið, fara í sleik
og aðeins að klípa hvort annað í
rassinn,“ segir hún sposk og bætir
við að fólk hafi gott af að gera eitt-
hvað annað stöku sinnum en að
eyða utanlandsferðinni í H&M
verslunum.
Sjálf hefur Sigga gengið lengi
með þessa hugmynd í kollinum.
„Ég þorði ekki að vaða í þetta fyrr
en ég bar pælinguna undir Áslaugu.
Við erum andstæður, á góðan hátt.
Hún svona róleg og yfirveguð og ég
meira eins og flugeldur.“
Spurð hvort fólk sé ekkert feimið
við að skrá sig í sérlegar kynlífsferðir
svarar hún því til að henni þyki það
ólíklegt. „Ég held ekki. Þetta er
nefnilega alls engin meðferðar-ferð.
Það þarf ekkert að vera að hjá fólki.
Ég veit ekki um eitt einasta par sem
ekki gæti haft gott af því að rækta
rómantíkina aðeins. Auk þess sem
fólk þarf ekki að vera hrætt við að
þetta sé ferð sem fari yfir öll vel-
sæmismörk. Það eru kynlífssöfn úti
um allan heim og þau eru virkilega
áhugaverð í sögulegu samhengi.“
Þetta er sumsé engin perraferð.
Sigga segist raunar telja megin-
þorra þeirra sem fylgi þeim Áslaugu
til Berlínar vera barnafólk og fólk
sem komið er af léttasta skeiði og
ungarnir flognir úr hreiðrinu. „Við
vitum ekki til þess að svona ferðir
séu í boði annars staðar í heiminum
svo nú sjáum við ekki annað fyrir
okkur en heimsyfirráð,“ segir hún
glaðleg í lokin. gudrun@frettabladid.is
Sleikferðir ættu að
vera uppáskrifaðar
Kynfræðingarnir Sigríður Dögg og Áslaug Kristjánsdóttir ætla sér
að ferja íslensk pör til Berlínar með það fyrir augum að dusta rykið
af rómantíkinni. „Þetta er engin meðferðar-ferð,“ segir Sigga Dögg.
Sigga Dögg og Áslaug eru afar spenntar fyrir komandi tímum og segja þetta aðeins
upphafið að heimsyfirráðum. Fréttablaðið/Hanna
Hvernig á að halda
lífi í glæðunum?
1. Heilsist og kveðjist alltaf með
kossi.
2. Sofið nakin að minnsta kosti
einu sinni í viku. Í sama rúmi.
3. Verið dugleg að segja takk
hvort við annað.
9 . j ú n í 2 0 1 6 F i M M t U D A G U r48 l í F i ð ∙ F r É t t A B l A ð i ð
0
9
-0
6
-2
0
1
6
0
4
:3
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
A
F
-C
B
9
8
1
9
A
F
-C
A
5
C
1
9
A
F
-C
9
2
0
1
9
A
F
-C
7
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
6
4
s
_
8
_
6
_
2
0
1
6
C
M
Y
K