Víkurfréttir - 03.02.1983, Blaðsíða 1
Hvar er Atvinnumála-
nefnd Suðurnesja?
I síðasta blaöi var rætt
um 54% aukningu atvinnu
leysisdaga milli áranna
1981 og 1982. Allt síðasta
ár var hér eitthvert at-
vinnuleysi, þó sem betur
fer hafi það verið hverf-
andi litið suma mánuðina.
Ástand þetta hefur ávallt
mátt rekja að öllu eða
mestu leyti til sjávarút-
vegsins, þar til nú.
Nú eru aðrar blikur á
lofti, þvi að af 153 á at-
vinnuleysisskrá föstudag-
inn 21. jan. sl. í Keflavík,
voru 65 eða 42% atvinnu-
lausir af öðrum ástæðum
en frá sjávarútvegi. Er þar
með komin upp ný staða í
atvinnumálum okkar, og
þess vegna hafði blaöið
samband við Ingólf Fals-
son, formann Atvinnu-
málanefndar Keflavíkur.
Ingólfur sagði að und-
anfarið hefðu þeir starfað
ásamt nýskipuðum iðn-
þróunarfulltrúa, Jóni
Unndórssyni, að könnun í
framhaldi af samþykkt at-
vinnumálanefndar Kefla-
víkur frá þvi í haust um at-
vinnutækifæri og hvað
gera megi til að bæta þau.
Spannar þessi samþykkt
yfir öll Suðurnesin, enda
er ekki hægt annað en að
líta svo á að Suðurnesin
sé eitt atvinnusvæði.
Framh. á 12. síðu
Hávaði frá flugvellinum
yfir æskilegum mörkum
Hér í blaöinu var í haust
sagt frá hávaöamælingum
sem heilbrigöiseftirlitiö í
samráöi viö fleiri aðila létu
framkvæma varðandi flug-
umferö, þ.e. hávaðafráflug-
vélunum yfir íbúðabyggð.
Nú hefur komið í Ijós að
hávaði er yfir þeim mörkum
sem talin eru æskileg, að
sögn Jóhanns Sveinssonar
heilbrigöisfulltrúa, og er því
Einn navaoavaiaurinn
t
Haraldur
Gíslason
látinn
Aðfaranótt sunnu-
dags 30. jan. sl. lést að
heimlli slnu Haraldur
Gfslason, framkvæmda-
stjóri Sambands sveitar-
félaga á Suðurnesjum.
Haraldur fæddist I
Reykjavik 28. sept. 1928.
Hann lauk prófi í við-
skiptafræðum frá Bost-
on Universíty og fram-
haldsnámi í stjórnvisind-
um frá Columbia Uni-
versity og skóla Samein-
uðu Þjóðanna i Banda-
rikjunum. Að námi loknu
gegndi hann ýmsum
störfum, var m.a. fram-
kvæmdastjóri hjá Gísla
Jónssyni og Co., Bifreið-
um og Landbúnaðarvél-
um og starfsmaður í
verslunar- og hagdeild
Bandaríska sendiráðs-
ins í Reykjavik. Haraldur
var ráðinn sveitarstjóri á
Vopnafirði árið 1967 og
gegndi því til 1974, er
hann var ráðinn sveitar-
stjórí Gerðahrepps.
1978 er hann ráðinn
fyrsti framkvæmdastjóri
Sambands sveitarfélaga
á Suðurnesjum og
gegndi því starfi til
dauðadags.
Eftirlifandi eiginkona
hans er Björg Ingólfs-
dóttir.
Vikur-fréttir votta eftir-
lifandi eiginkonu og
börnum, svo og öðrum
aðstandendum samúð
sfna.
von til þess að þegar málið
verður tekið upp aftur í
framhaldi af þessum niður-
stöðum, verði reynt að haga
málum eftir þessum niður-
stöðum.
Taldi Jóhann að ýmislegt
væri hægt að gera til að
draga úr þessum hávaöafrá
flugvélunum, og hafa þau
mál þegar verið tekin til at-
hugunar.
„Hægt er að lagfæra
þessi mál með misjöfnum
hætti, t.d. má fara frekar í
lágu flugtaki yfir byggðina,
það er líka hægt að hækka
flugið fyrr og fara þá ekki
eins mikið yfir byggð.
Myndi þetta hvort tveggja
hafa áhrif til bóta, ef fram-
kvæmt yrði," sagði Jóhann.
Það svæði í byggð sem
mældist með mestan háv-
aða, var í Njarðvík, eins og
flestir áttu von á, vegna legu
aðalbrautanna.
Að lokum sagði Jóhann
aö hann ætti von á aö þessi
mál yrðu tekin upp aftur
með vorinu. - epj.
Umferöaróhapp á Hafnargötu
500 umferðaróhöpp
Á síðasta ári urðu 500 um-
ferðaróhöpp sem komu til
kasta lögreglunnar hár á
Suðurnesjum, að undan-
skildu Grindavík og Kefla-
víkurfl ugvelli.
Að sögn Karls Hermanns-
sonar rannsóknarlögreglu-
manns umferðardeildar,
voru aðalorsakir fyrir
óhöppunum þær, að um
fjórðungur, eða 129 sinn-
um var ógætilega ekið aftur
á bak. (54 tilfellum varaðal-
brautarréttur ekki virtur,
þrengsli og hálka ollu
mörgum árekstrum, t.d.
voru 73 árekstrar i desem-
ber af þessum orsökum.
Ekið var á mannlausar bif-
reiðar 106 sinnum. í 39 til-
fellum var stungið af af
árekstrarstað án þess að til-
kynna óhapþiö, sem er að
sjálfsögðu mjög slæmt.
12 sinnum lenti barn fyrir
bifreið, 4 sinnum voru lítil
meiðsli en einu sinni mikil.
Tvær konur lentu fyrir bif-
reið og í öðru tilfellinu varð
mikið slys, karlmenn lentu
fyrir bifreið tvisvar og var
lítið slys í öðru tilfellinu en
mikið í hinu. 8 sinnum lentu
vélhjól í umferðaróhappi og
var lítilsháttar slys í einu til-
fellanna. 12 sinnum lentu
reiðhjól í umferðaróhöpp-
um, en aldrei urðu nein slys.
Einu sinni varðslysá vinnu-
vél og urðu mikil meiðsli.
13 ökumenn slösuðust, í
6 tilfellum lítið en í 7 mikið.
12 farþegarslösuðust í þess
um umferðarslysum og þar
af voru 8 lítil slys, 2 mikið
slasaðir og 2 létust. Er því
heildartalan sú að í 22 til-
fellum voru um lítil meiðsli
að ræða, i 11 mikil meiðsli
og í 2 banaslys.
Ef athugaður er tíminn
sem þessi óhöpp verða á,
þá eru þau flest á daginn
milli kl. 13-14 (45 árekstrar),
kl 17-18 (44 árekstrar) og
milli kl. 15-16 urðu 42
árekstrar, þannig að
háslysatíminn er á tímabil-
inu frá kl. 11 til 21, með þó
þessum ákveðnu toppum.
20 ökumenn sem lentu í
umferðaróhappi voru ölv-
aðir undir stýri. Athygli
vekur að í 94 tilfellum er um
gáleysi að ræða eða ókunn
orök. - epj.
Næsta blað
kemur út
17. febrúar.