Víkurfréttir - 18.08.1983, Page 11
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 18. ágúst 1983 11
Samstarf iðnfyrir-
tækja á Suðurnesjum
á iðnsýningunni í Laugardalshöll,
19. ágúst til 4. september 1983
Þessi glæsilega mynd
sem hér fylgir, sýnir árang-
ur af þróttmiklu samstarfi
stærstu framleiðslufyrir-
tækjanna á Suðurnesjum.
Myndin sýnir sameiginlegt
sýningarsvæði Suöurnesja-
fyrirtækjanna á iðnsýning-
unni, sem halda á í Laugar-
dalshöll á tímabilinu 19.
ágúst til 4. september n.k.
SSS (Samband sveitarfé-
laga á Suðurnesjum) átti
frumhugmynd að þessu
samstarfi og hefur skaffað
húsnæði vegna vinnufunda
SuOumesjabásinn á lónsýningunni ’83
íslandsmót yngri flokka:
3. flokkur í úrslit
4. og 5. fl. vantaði aðeins 1 stig
3. flokkur (BK tryggði sér
fyrir nokkru sæti i úrslita-
keppni íslandsmótsins í
knattspyrnu. Fer úrslita-
keppnin fram á vegum
knattspyrnuráðs ÍBK. Hefst
hún í dag og stendur fram á
sunnudag. Leikið verður á
grasvöllunum í Keflavik og
Njarðvík. Verður hér án efa
um skemmtilega og fjör-
uga leiki að ræöa, um það
geta þeir sem horft hafa á
yngri flokka fótboltans í
sumar vitnað.
Árangur 3. fl. er sá besti
sem yngri fl. náði hjá Kefla-
vík í sumar. Léku þeir piltar í
A-riðli, sem eins og nafnið
ber með sér er sterkasti rið-
illinn af átta. Hafnaði flokk-
urinn í 1.-3. sæti og hlaut 14
stig. Uröu úrslitieinstökum
leikjum 3. fl. þannig:
(BK-Víkingur ... 3:0
(BK-Þróttur.... 4:1
Fylkir-ÍBK ..... 0:1
UBK-ÍBK ........ 0:3
ÍBK-(R ......... 6:1
(BK-Fram ....... 1:3
Valur-ÍBK ...... 0:1
KR-ÍBK ......... 1:2
ÞÓR V.-ÍBK .... 4:2
Á þessu má sjá að árang-
urinn er síður en svo lakur,
sjö vinningsleikir gegn
tveimur töpum og marka-
hlutfallið 23:10. Eru hér án
efa efnilegustu drengir á
ferö og verður spennandi
að fylgjast með þeim í úr-
slitunum sem og í framtíð-
inni.
4. og 5. flokkur ÍBK stóðu
sig einnig með sóma á (s-
landsmótinu, léku báðir
flokkarnir i A-riðli og höfn-
uröu báöir í fjóröa sæti, en
dódó
hringii*
þrjú fyrstu liöin komast i úr-
slit.
Þegar 4. fl. átti eftir
óleikna þrjá leiki höföu þeir
9 stig. (tveim næstu leikjum
gerðu þeirsvojafntefli gegn
(A, 4:4, og gegn ÍK, 1:1. Meö
því aö tapa síöan gegn Vík-
ingi í sínum síöasta leik, 4:1,
misstu þeir af lestinni og úr-
slitunum um leið.
Sömu sögu er næstum
hægt að segja af 5. fl. Þeir
höfðu 8 stig að óloknum
þremur leikjum og áttu því
góðan möguleika á úrslita-
sæti. Gerðu þeir þá jafn-
tefli við (R, 1:1 og sigruðu
KR svo 2:1. í sínum siðasta
leik nægöi þeim þájafntefli,
en í stað þess töpuðu þeir
stórt gegn Fram, 4:1.
Áf þessari upptalningu
má sjá, að Keflvíkingar voru
óheppnir að eiga ekki lið í
úrslitum i öllum þessum
flokkum.
Vikur-fréttir vilja svo loks
skora á alla þá sem vettlingl
geta valdið, að mæta á gras-
völlinn og hvetja okkar
verðandi meistaraflokks-
menn til sigurs. ÁFRAM,
KEFLAVlKl - gæl.______
Ósamþykkt í
sveitar-
stjórnum
Misskilnings gætti nokk-
urs í síðasta tbl., þegar rætt
var um skiptingu á kostn-
aði vegna reksturs Bruna-
varna Suðurnesja. Var sagt
aö þessi furðulega tillaga
Njarðvíkinga heföi hlotið af-
greiðslu í flestum byggðar-
lögunum.
Svo er ekki, tillagan hefur
fengið mótbyr á flestum
stöðum, og t.d. í stjórn B.S.
var aðeins fulltrúi Njarðvík-
inga meðmæltur henni.
epj.
og starfsmann til að sam-
ræma hugmyndir fyrirtækj-
anna. Að hálfu SSS hefur
starfaö iðnráögjafi Suður-
nesja, Jón Egill Unndórs-
son verkfræöingur.
Hönnuður að sýningar-
svæðinu er Sævar Helga-
son málarameistari, og
blómaskreytingar annast
Blómastofa Guðrúnar.
Framkvæmdastjóri iðn-
sýningarinnar, Bjarni Þór
Jónsson lögfræðingur,
hefur sýnt þessu samstarfi
mikinn áhuga og hefur setið
alla vinnufundi, sem haldn-
ir hafa verið hér á Suöur-
nesjum.
Fyrirtækin sem um ræðir
eru þrjú tréiðnaðarfyrir-
tæki: Rammi hf., Njarðvík,
með glugga, útihuröir og
svalahuröir. Trésmiðja
Þorvaldar Ólafssonar, Kefla
vík, með innihurðir og við-
arþiljur. Trésmiðja Kefla-
víkur með eldhúsinnrótt-
ingar. önnur fyrirtæki eru:
Ofnasmiðja Suöurnesja,
með ofna í öllum stærðum
og litum, Álnabær, með
staðlaðar og sérsaumaöar
gluggagardínur og gardfnu-
kappa, Ragnarsbakarí,
Keflavík, með brauð og
kökur, og Plastgerð Suður-
nesja, með nýjan einangr-
aðan klæöningarstein utan
á útiveggi húsa (sér í lagi
gamalla húsa).
Á meðan á sýningunni
stendur verður hægt að
panta og kaupa framleiöslu-
vörur umræddra fyrirtækja.
Jón E. Unndórsson
Frá Grunnskóla
Njarðvíkur
Staða skólaritara er laus til umsóknar.
Upplýsingar veitir Gylfi Guðmundsson í
skólanum, fimmtudag og föstudag frá kl.
17-19.
Skólastjóri
Fjölbrautaskóli Suöurnesja
Öldungadeild
Lokaskráning á haustönn ’83 fer fram á
skrifstofu skólans fram til 25. ágúst.
Til að kennsla í ákveðnum áföngum sé
möguleg, verður að vera fyrir hendi ákveð-
inn fjöldi nemenda.
Nauðsynlegt er því að væntanlegir nem-
endur skrái sig sem fyrst svo að hægt séað
taka ákvörðun um hvaða áfangar verði í
boði.
Samkvæmt ákvörðun menntamálaráðu-
neytisins er gjaldið 1600kr. ef borgaðervið
innritun, en 1700 kr. ef greitt er við upphaf
kennslu.
Aðstoðarskólameistari
PLUSIAN
ÞU SAFNAR OG BANKINN BÆTIR VIÐ
Þú getur haft þrefalt til fjórfalt fé
í höndum eftir umsaminn sparnaö.
Öllum er frjálstaö opna
Plúslánsreikning,
hvort sem þeir hafa skipt viö
Útvegsbankann hingaö til eöa ekki.
Er ekki Útvegsbankinn
einmitt bankinn fyrir þig.
ÚTVEGSBANKINN
HAFNARGÖTU 60 KEFLAVÍK SÍM11199