Fréttablaðið - 14.12.2016, Blaðsíða 38
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Kristmann Guðmundsson
áður til heimilis að Suðurgötu 18,
Sandgerði,
lést á Vífilsstöðum 10. desember.
Sigfús Kristmannsson
Guðmundur Kristmannsson Anna Marie Pollestad
Sigurlaug Kristmannsdóttir Jón Örn Arnarson
Guðrún Kristmannsdóttir Ómar Pétursson
Kristján Kristmannsson Ragnheiður Sigurðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Þorvaldur Ólafsson
Dvalarheimilinu í Stykkishólmi,
lést laugardaginn 10. desember.
Útför hans fer fram frá Stykkishólms-
kirkju föstudaginn 16. desember kl. 14.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á
líknarfélög í Stykkishólmi.
Nína Erna Eiríksdóttir
Guðný Þorvaldsdóttir Poul Erik Boel
Magni Rúnar Þorvaldsson Valborg Jónsdóttir
Ólafur Þorvaldsson
Guðríður Þorvaldsdóttir Gísli Bj. Konráðsson
Jónína Þ. Þorvaldsdóttir Hörður Þráinsson
Aðalsteinn Þorvaldsson Helga Hilmarsdóttir
barnabörn og langafabörn.
Okkar ástkæra og yndislega móðir,
tengdamóðir, amma, langamma
og langalangamma,
Elísabet Guðrún
Brynjólfsdóttir
Hraunvangi 1, Hafnarfirði,
áður að Austurbrún 29,
andaðist þann 10. desember sl. á Landspítalanum
í Fossvogi. Útförin verður gerð frá Víðistaðakirkju
21. desember kl. 15.
Börn, tengdabörn og aðrir aðstandendur.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Arnheiður Hjartardóttir
lést 9. desember á Landspítalanum
í Fossvogi. Útförin fer fram frá
Langholtskirkju þriðjudaginn
20. desember kl. 13.
Sigrún Hjördís Pétursdóttir Kristinn Kristjánsson
Sigurður J. Pétursson
Sverrir Pétur Pétursson Ólöf Birna Garðarsdóttir
Kristín Pétursdóttir Brynjólfur Smárason
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Sigurbjörg Schram
Kristjánsdóttir
Bláhömrum 2,
lést föstudaginn 9. desember.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju
föstudaginn 16. desember kl. 15.
Sigurður Ágúst Jensson
Sigrún Jensdóttir Larson Gordon Larson
Ásdís Jensdóttir Ísleifur Ingimarsson
Kristjana Ragna Jensdóttir Guðjón Hjartarson
Hafsteinn Viðar Jensson Inga Lára Birgisdóttir
Guðbjörg Jensdóttir Ragnar Antonsson
og fjölskyldur þeirra.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
stjúpfaðir, tengdafaðir og afi,
Hallvarður Einvarðsson
fyrrverandi ríkissaksóknari,
lést 8. desember síðastliðinn. Útförin
fer fram frá Neskirkju þriðjudaginn
20. desember kl. 13.
Erla Magnúsdóttir Kjærnested
Elín Vigdís Hallvarðsdóttir Gísli I. Þorsteinsson
Einar Karl Hallvarðsson Þórhildur Björk
Þórdísardóttir
Sunna Ólafsdóttir Þröstur Jóhannsson
Anna Sigurveig Ólafsdóttir Björn Magnússon
Ragna Ólafsdóttir
Emil Ólafsson
og barnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Erna Gunnarsdóttir
Ofanleiti 19, Reykjavík,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans
miðvikudaginn 7. desember. Útförin fer
fram frá Fossvogskirkju föstudaginn
16. desember kl. 13.
Kristinn Sigurðsson
Agnar Logi Axelsson Ágústa Hallsdóttir
Jóna K. Kristinsdóttir Sigurgeir G. Þórðarson
Sigurður Kristinsson Erla Ósk Guðjónsdóttir
Óskar Kristinsson Sonja Freydís Ágústsdóttir
Ellý Skúladóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, ástvinur,
tengdamóðir, amma og langamma,
Steinunn Finnbogadóttir
ljósmóðir, borgarfulltrúi og
aðstoðarráðherra,
lést föstudaginn 9. desember.
Útför Steinunnar verður gerð
frá Háteigskirkju föstudaginn
16. desember kl. 11.
Steinunn F. Harðardóttir
Einar G. Harðarson Ólöf Anna Ólafsdóttir
Guðrún Alda Harðardóttir Sigurður Þór Salvarsson
Þorsteinn Vigfússon
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Elísabet Guðlaug
Vigfúsdóttir
síðast til heimilis í Hvammi,
heimili aldraðra á Húsavík,
andaðist 6. desember síðastliðinn.
Útför hennar fer fram frá Húsavíkurkirkju
föstudaginn 16. desember kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Vigfús Þór Leifsson
Heimir Leifsson
Freyja Kristín Leifsdóttir
Lovísa Leifsdóttir
tengdabörn, barnabörn og langömmubörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
Kristín Margrét
Guðjónsdóttir
Hvassaleiti 56,
lést á Landspítalanum við Fossvog
laugardaginn 3. desember. Útför verður
gerð frá Áskirkju fimmtudaginn 15. desember kl. 13.00.
Blóm og kransar afþakkaðir.
Ólafur Á. Sigurðsson
Björg Ólafsdóttir Þröstur Guðmundsson
Sigurður Á. Ólafsson
Ólafur Kr. Ólafsson Anna María Bjarnadóttir
barnabörn og langömmubarn.
„Það er nú eitthvert „surprise“ í gangi
hérna sem ég er ekki alveg viss um hvað
er. En það verður eitthvað, mér sýnist
frúin vera búin að skipuleggja einhvern
dekurdag,“ segir Ástvaldur sem rekur tón-
listarskólann Tónheima en er auk þess í
organistanámi. Hann þurfti að hliðra ein-
hverju til, til þess að eiga frí í dag. „Ég átti
nú að vera í skólanum í dag en fékk frí.“
„Meira núna heldur en áður fyrr,“ svarar
Ástvaldur aðspurður hvort hann sé mikið
afmælisbarn. „Áður fyrr var ég minna
að spá í þetta, en núna þegar maður er
að verða 50 ára, þá fer maður aðeins að
ranka við sér. Þetta er svolítið sérstakt
og náttúrulega ánægjulegt því þetta eru
ákveðin tímamót. Ef maður hugsar þetta
út frá stærðfræðinni þá er maður svona
rúmlega hálfnaður með pakkann, ef allt
gengur vel. Og þá fer maður aðeins að spá
í lífið og dagana, hvers virði lífið er og hvað
það er sem skiptir máli. Maður hugsar þá
líka til fjölskyldunnar, vinanna og sam-
ferðamanna.“
Ástvaldur mun svo fagna afmælinu
með pompi og prakt um helgina. „Já, ég
mun halda veislu á laugardaginn í Guð-
ríðarkirkju þar sem fjölskylda og vinir
leggja sitt af mörkum í tali og tónum til
að gera daginn góðan. Við munum spila
og syngja og fá okkur svo eitthvað í gogg-
inn eftir á,“ útskýrir Ástvaldur sem var
óákveðinn í fyrstu hvort hann myndi
halda upp á afmælið. „Ég var búinn að
hætta mörgum sinnum við en ákvað svo
að kýla á þetta.“
Þegar hann rifjar upp eftirminnileg
afmæli þá koma barnaafmælin upp í hug-
ann. „Það var alltaf stemning þegar ég var
lítill. Afmælið var nálægt jóum sem var
skemmtilegur tími. Þá var bakað pipar-
kökuhús sem var hlaðið sælgæti og dóti. Í
afmælinu var það brotið með klossanum
hans pabba og svo ráðist á það,“ segir Ást-
valdur og hlær. „Það var keppst um að ná
bestu bitunum.“
Ástvaldur hefur ekki hugmynd um hvað
hann fær í afmælisgjöf í dag en hann er þó
búinn að setja peysu á óskalistann. „Já, ég
setti lopapeysu á óskalistann frá kórnum
mínum, Álafosskórnum sem ég stjórna.
Það er allavega búið að taka mál þannig að
hver veit hvað verður?“ gudnyhronn@365.is
Stórafmælið vekur hann
til umhugsunar
Tónlistarmaðurinn Ástvaldur Traustason fagnar fimmtíu ára afmæli í dag. Hann veit ekki
hvað bíður hans í dag en hann grunar að það sé verið að undirbúa einhverja óvissuferð fyrir
hann. Á laugardaginn verður hann svo með tónleika og veislu fyrir vini og vandamenn.
Ástvaldur Traustason tónlistarmaður á stórafmæli í dag. fréTTablaðið/valli
1 4 . d e s e m b e r 2 0 1 6 m I Ð V I K U d A G U r22 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A Ð I Ð
tímamót
1
4
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:2
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
A
9
-3
3
1
4
1
B
A
9
-3
1
D
8
1
B
A
9
-3
0
9
C
1
B
A
9
-2
F
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
5
6
s
_
1
3
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K