Fréttablaðið - 14.12.2016, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 14.12.2016, Blaðsíða 28
Magnús Karl Magnússon, prófessor og forseti Læknadeildar HÍ, og Valgerður Bjarnadóttir, formaður Félags læknanema. Læknadeild HÍ og Félag læknanema standa fyrir málþinginu sem fram fer á föstudag. Mynd/GVA „Upp úr miðri 19. öld var lækna- skortur mikill í landinu. Enginn stundaði læknanám á Íslandi, fáir Íslendingar lögðu land undir fót til að nema læknisfræði og enn færri sneru heim með gráðu í farteskinu. Þrátt fyrir að stjórn- völd ívilnuðu að ýmsu leyti Íslend- ingum sem vildu leggja stund á læknanám ytra, voru aðeins tólf sem luku læknaprófi í Kaup- mannahöfn fyrstu sex áratugi ald- arinnar og fjórir þeirra ílentust ytra.“ Þannig lýsir Magnús stöð- unni um það leyti sem nýr land- læknir, Jón Hjaltalín (1807-1882), tók við embætti árið 1855 en Jón Thorstensen, þáverandi landlækn- ir, hafði sýnt innlendri lækna- kennslu lítinn áhuga. Metnaðarfullur Jón HJaltalín „Jón Hjaltalín beitti sér fyrir því að nýendurreist Alþingi samþykkti bænaskrá til konungs um stofnun læknaskóla á Íslandi. Þegar þeirri beiðni var hafnað gafst Jón Hjalta- lín ekki upp og sótti fast að taka upp eldri sið og fá leyfi til þess að landlæknir mætti mennta unga sveina til læknaprófs,“ lýsir Magn- ús en það leyfi fékkst árið 1862. „Hófst þá uppbygging læknanáms með fjölbreyttu og metnaðarfullu námi, þar sem kennd voru meðal annars líkskurðarfræði, lífs- eðlisfræði, sjúkdómafræði, hand- læknis fræði, yfirsetukvenna fræði, chemie, heilbrigðisfræði, meðal- averkunarfræði og fleiri greinar.“ Þetta metnaðarfulla starf Jóns Hjaltalíns þótti sýna fram á getu Íslendinga til að mennta lækna og á næsta hálfa öðrum áratug lögðu þrettán ungir menn stund á nám og útskrifuðust sem kandídatar. Þar með var konungi ekki leng- ur stætt að neita kröfum Íslend- inga um stofnun læknaskóla. „Árið 1876 var Læknaskóli Reykjavíkur því stofnaður með konungsbréfi og eru því 140 ár liðin frá stofnun læknaskóla á Íslandi í ár.“ lík Þórðar Malakoff Í upphafi voru ráðnir þrír kenn- arar og fyrstu árin var skólinn rekinn í Sjúkrahúsi Reykjavík- ur við enda Aðalstrætis en flutti síðar í Þingholtin í hús sem nú kallast Farsóttarhúsið. „Metnað- ur var mikill en stundum var erf- itt að fá þann efnivið er til þurfti. Þannig var ávallt skortur á líkum til líkskurðarkennslu og er fræg sagan af Þórði malakoff Árna- syni, þekktum brennivínsberserk í borginni, sem seldi lík sitt Lækna- skólanum með fyrirframgreiðslu og tórði svo árum saman lækna- nemum og kennurum skólans til nokkurs ama. Þegar Þórður mala- koff loks dó árið 1897 var umtal- að að læknanemar hafi tekið svo „sleitilega og frómlega“ til verks að dómkirkjuprestur hafi flutt lík- ræðu yfir nánast tómri kistunni,“ segir Magnús glettinn. Á þeim 35 árum sem Lækna- skólinn starfaði jókst kennara- fjöldinn úr þremur í átta og alls útskrifuðust 62 kandídatar frá skólanum. Læknaskóli Reykjavík- ur var síðan ein grunnstoð í stofn- un Háskóla Íslands árið 1911 og hófst þá nýr kafli í læknanámi á Íslandi. Heildarendurskoðun á læknanáMi Magnús segir mikið hafa breyst á þeim 140 árum sem liðin eru frá upphafi læknanáms á Íslandi og enn sé mikil þróun fram undan. „Á þessu afmælisári er að hefjast heildarendurskoðun á læknanámi til að bregðast við auknum kröf- um um gæði náms og til að undir- búa nýja kynslóð lækna fyrir þær fjölmörgu áskoranir sem við okkur blasa,“ segir Magnús en í nýlegri sjálfmatsskýrslu læknadeildarinn- ar voru greind þau atriði í nám- inu sem bæta má. „Endurskoðun á læknanámi mun leitast við að tengja enn betur saman grunn- nám og klínískt nám, auka veru- lega á fjölbreytni kennsluaðferða, auka möguleika á rannsóknar- námi, svo sem samtengdu lækna- og doktorsnámi. Einnig verður hugað að því að mennta enn frek- ar þá lækna sem samfélagið þarfn- ast, svo sem með aukinni áherslu á heilsugæslu, persónumiðaða læknis fræði og heilsu aldraðra.“ Í sjálfsmatsskýrslunni komu einnig í ljós atriði sem lækna- deild getur verið stolt af að sögn Magnúsar. „Til dæmis eru yfir 90 prósent nemenda í heildina ánægð með nám sitt. Þá eiga ís- lenskir læknar greiða leið í sér- nám til bestu sjúkrahúsa austan hafs og vestan,“ upplýsir Magnús. Hann tekur dæmi um að íslenskir nemendur taki bandarískt stöðu- próf í lok náms og nái frábærum árangri, skori að meðaltali 80-82 stig en meðaltal bandarískra læknanema á lokaári sé 75 stig. „Á þessum tímamótum í lækna- námi á Íslandi væri engin betri af- mælisgjöf en að stjórnvöld vökn- uðu úr dvala og svöruðu ákalli háskólayfirvalda og samfélags um stóraukin fjárframlög til að tryggja komandi kynslóðum gæða- menntun sem mun tryggja heilsu, hamingju og hagsæld til framtíð- ar,“ segir Magnús með áherslu. Málþingið 140 ára læknanám á Íslandi, hefst í Öskju, stofu 132, föstudaginn 16. desember klukk- an 16 og stendur í tvo tíma. nánari dagskrá má finna á www.hi.is. læknanáM á íslandi í 140 ár Málþing um 140 ára afmæli læknanáms á Íslandi verður haldið í Öskju föstudaginn 16. desember. Læknadeild Háskóla Íslands og Félag læknanema standa fyrir viðburðinum. Þar verður meðal annars fjallað um aðdraganda og upphaf Læknaskólans en Magnús Karl Magnússon, prófessor og forseti læknadeildar, fer hér yfir söguna í stórum dráttum. „Læknanemar eru að mínu mati almennt ánægðir með læknis- fræðinámið og hefur það komið vel út á alþjóðlegum stöðlum,“ segir Valgerður Bjarnadóttir, formaður Félags læknanema, og útskýrir að námið sé uppbyggt þannig að fyrstu þrjú árin ein- kennist aðallega af fræðilegu námi og síðari þrjú af verknámi á heilbrigðis stofnunum. „Styrk- leikar námsins felast meðal ann- ars í mörgum góðum kennurum, öflugu vísindastarfi og gæðum verknámsins og hlutfallslega miklu verknámi. Í verknám- inu hafa læknanemar tækifæri til að kynnast fjölbreyttum til- fellum og læra af sérfræðilækn- um en Ísland sker sig úr mörg- um öðrum löndum hvað nálægð milli sérfræðinga og lækna- nema varðar. Það er gulls ígildi að læra af reyndum læknum,“ segir hún. ástráður, BJargráður og Hugrún Valgerður segir að einnig fari fram fjölbreytt nám utan veggja skólans og spítalans. „Meðal ann- ars í þeim verkefnum á vegum læknanema er tengjast sam- félagslegri ábyrgð. Þar má nefna Bangsaspítalann sem læknar ár- lega á annað þúsund bangsa og einnig ýmis fræðslu- og forvarn- arfélög er standa fyrir fyrirlestr- um í framhalds- og grunnskólum. Elst af þeim félögum er Ástráður sem fræðir nemendur víðs vegar um landið um kynheilbrigði. Árið 2013 bættist við félagið Bjargráður sem kennir skyndi- hjálp og endurlífgun og er um- fang þeirrar fræðslu stöðugt að aukast. Nýjasta félagið var stofn- að á þessu ári og heitir Hugrún. Það er samstarfsverkefni lækna- nema, hjúkrunarfræðinema og sálfræðinema og hefur að mark- miði að fræða íslensk ungmenni um geðheilbrigði. Það er afar lærdómsríkt fyrir nemendur að taka þátt í verkefnum sem þess- um.“ ákall uM fJölBreyttari kennsluHætti En er eitthvað sem betur má fara? „Baráttumál læknanema varðandi kennslumál eru ekki ósvipuð baráttumálum ann- arra nema við Háskóla Íslands. Ákall um fjölbreyttari kennslu- hætti, svo sem vandamálamiðaða nálgun, vendikennslu og hermi- kennslu einkennir þá umræðu. Þá er mikilvægt að láta fyrri þrjú árin og þau seinni styðja vel við hvert annað, þ.e. að fræði- lega námið sé góður undirbún- ingur fyrir það verklega og að í verknáminu nái nemendur aftur að auka skilning sinn á fræðun- um. Það eru ýmsar hugmyndir í deiglunni um hvernig megi bæta þetta,“ svarar Valgerður. Gulls íGildi að læra af reyndum læknum Í verknáminu hafa læknanemar tækifæri til að kynnast fjölbreyttum tilfellum og læra af sérfræðilæknum en Ísland sker sig úr mörgum öðrum löndum hvað nálægð milli sér- fræðinga og læknanema varðar. Valgerður Bjarnadóttir Sólveig Gísladóttir solveig@365.is Súpan er fullelduð og aðeins þarf að hita hana upp Við notum ekki MSG í súpuna okkar. Hún fæst í öllum helstu matvöruverslunum og stórmörkuðum landsins. 1 4 . d e s e m b e r 2 0 1 6 m I Ð V I K U d A G U r4 F ó l K ∙ K y n n I n G A r b l A Ð ∙ X X X X X X X X ∙ K y n n I n G A r b l A Ð V I Ð b U r Ð I r 1 4 -1 2 -2 0 1 6 0 4 :2 9 F B 0 5 6 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B A 9 -1 F 5 4 1 B A 9 -1 E 1 8 1 B A 9 -1 C D C 1 B A 9 -1 B A 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 5 6 s _ 1 3 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.