Fréttablaðið - 14.12.2016, Blaðsíða 28
Magnús Karl Magnússon, prófessor og forseti Læknadeildar HÍ, og Valgerður Bjarnadóttir, formaður Félags læknanema.
Læknadeild HÍ og Félag læknanema standa fyrir málþinginu sem fram fer á föstudag. Mynd/GVA
„Upp úr miðri 19. öld var lækna-
skortur mikill í landinu. Enginn
stundaði læknanám á Íslandi, fáir
Íslendingar lögðu land undir fót
til að nema læknisfræði og enn
færri sneru heim með gráðu í
farteskinu. Þrátt fyrir að stjórn-
völd ívilnuðu að ýmsu leyti Íslend-
ingum sem vildu leggja stund á
læknanám ytra, voru aðeins tólf
sem luku læknaprófi í Kaup-
mannahöfn fyrstu sex áratugi ald-
arinnar og fjórir þeirra ílentust
ytra.“ Þannig lýsir Magnús stöð-
unni um það leyti sem nýr land-
læknir, Jón Hjaltalín (1807-1882),
tók við embætti árið 1855 en Jón
Thorstensen, þáverandi landlækn-
ir, hafði sýnt innlendri lækna-
kennslu lítinn áhuga.
Metnaðarfullur
Jón HJaltalín
„Jón Hjaltalín beitti sér fyrir því
að nýendurreist Alþingi samþykkti
bænaskrá til konungs um stofnun
læknaskóla á Íslandi. Þegar þeirri
beiðni var hafnað gafst Jón Hjalta-
lín ekki upp og sótti fast að taka
upp eldri sið og fá leyfi til þess að
landlæknir mætti mennta unga
sveina til læknaprófs,“ lýsir Magn-
ús en það leyfi fékkst árið 1862.
„Hófst þá uppbygging læknanáms
með fjölbreyttu og metnaðarfullu
námi, þar sem kennd voru meðal
annars líkskurðarfræði, lífs-
eðlisfræði, sjúkdómafræði, hand-
læknis fræði, yfirsetukvenna fræði,
chemie, heilbrigðisfræði, meðal-
averkunarfræði og fleiri greinar.“
Þetta metnaðarfulla starf Jóns
Hjaltalíns þótti sýna fram á getu
Íslendinga til að mennta lækna og
á næsta hálfa öðrum áratug lögðu
þrettán ungir menn stund á nám
og útskrifuðust sem kandídatar.
Þar með var konungi ekki leng-
ur stætt að neita kröfum Íslend-
inga um stofnun læknaskóla. „Árið
1876 var Læknaskóli Reykjavíkur
því stofnaður með konungsbréfi
og eru því 140 ár liðin frá stofnun
læknaskóla á Íslandi í ár.“
lík Þórðar Malakoff
Í upphafi voru ráðnir þrír kenn-
arar og fyrstu árin var skólinn
rekinn í Sjúkrahúsi Reykjavík-
ur við enda Aðalstrætis en flutti
síðar í Þingholtin í hús sem nú
kallast Farsóttarhúsið. „Metnað-
ur var mikill en stundum var erf-
itt að fá þann efnivið er til þurfti.
Þannig var ávallt skortur á líkum
til líkskurðarkennslu og er fræg
sagan af Þórði malakoff Árna-
syni, þekktum brennivínsberserk í
borginni, sem seldi lík sitt Lækna-
skólanum með fyrirframgreiðslu
og tórði svo árum saman lækna-
nemum og kennurum skólans til
nokkurs ama. Þegar Þórður mala-
koff loks dó árið 1897 var umtal-
að að læknanemar hafi tekið svo
„sleitilega og frómlega“ til verks
að dómkirkjuprestur hafi flutt lík-
ræðu yfir nánast tómri kistunni,“
segir Magnús glettinn.
Á þeim 35 árum sem Lækna-
skólinn starfaði jókst kennara-
fjöldinn úr þremur í átta og alls
útskrifuðust 62 kandídatar frá
skólanum. Læknaskóli Reykjavík-
ur var síðan ein grunnstoð í stofn-
un Háskóla Íslands árið 1911 og
hófst þá nýr kafli í læknanámi á
Íslandi.
Heildarendurskoðun
á læknanáMi
Magnús segir mikið hafa breyst á
þeim 140 árum sem liðin eru frá
upphafi læknanáms á Íslandi og
enn sé mikil þróun fram undan.
„Á þessu afmælisári er að hefjast
heildarendurskoðun á læknanámi
til að bregðast við auknum kröf-
um um gæði náms og til að undir-
búa nýja kynslóð lækna fyrir þær
fjölmörgu áskoranir sem við okkur
blasa,“ segir Magnús en í nýlegri
sjálfmatsskýrslu læknadeildarinn-
ar voru greind þau atriði í nám-
inu sem bæta má. „Endurskoðun
á læknanámi mun leitast við að
tengja enn betur saman grunn-
nám og klínískt nám, auka veru-
lega á fjölbreytni kennsluaðferða,
auka möguleika á rannsóknar-
námi, svo sem samtengdu lækna-
og doktorsnámi. Einnig verður
hugað að því að mennta enn frek-
ar þá lækna sem samfélagið þarfn-
ast, svo sem með aukinni áherslu
á heilsugæslu, persónumiðaða
læknis fræði og heilsu aldraðra.“
Í sjálfsmatsskýrslunni komu
einnig í ljós atriði sem lækna-
deild getur verið stolt af að sögn
Magnúsar. „Til dæmis eru yfir
90 prósent nemenda í heildina
ánægð með nám sitt. Þá eiga ís-
lenskir læknar greiða leið í sér-
nám til bestu sjúkrahúsa austan
hafs og vestan,“ upplýsir Magnús.
Hann tekur dæmi um að íslenskir
nemendur taki bandarískt stöðu-
próf í lok náms og nái frábærum
árangri, skori að meðaltali 80-82
stig en meðaltal bandarískra
læknanema á lokaári sé 75 stig.
„Á þessum tímamótum í lækna-
námi á Íslandi væri engin betri af-
mælisgjöf en að stjórnvöld vökn-
uðu úr dvala og svöruðu ákalli
háskólayfirvalda og samfélags
um stóraukin fjárframlög til að
tryggja komandi kynslóðum gæða-
menntun sem mun tryggja heilsu,
hamingju og hagsæld til framtíð-
ar,“ segir Magnús með áherslu.
Málþingið 140 ára læknanám á
Íslandi, hefst í Öskju, stofu 132,
föstudaginn 16. desember klukk-
an 16 og stendur í tvo tíma. nánari
dagskrá má finna á www.hi.is.
læknanáM á
íslandi í 140 ár
Málþing um 140 ára afmæli læknanáms á Íslandi verður haldið í Öskju
föstudaginn 16. desember. Læknadeild Háskóla Íslands og Félag
læknanema standa fyrir viðburðinum. Þar verður meðal annars fjallað
um aðdraganda og upphaf Læknaskólans en Magnús Karl Magnússon,
prófessor og forseti læknadeildar, fer hér yfir söguna í stórum dráttum.
„Læknanemar eru að mínu mati
almennt ánægðir með læknis-
fræðinámið og hefur það komið
vel út á alþjóðlegum stöðlum,“
segir Valgerður Bjarnadóttir,
formaður Félags læknanema, og
útskýrir að námið sé uppbyggt
þannig að fyrstu þrjú árin ein-
kennist aðallega af fræðilegu
námi og síðari þrjú af verknámi
á heilbrigðis stofnunum. „Styrk-
leikar námsins felast meðal ann-
ars í mörgum góðum kennurum,
öflugu vísindastarfi og gæðum
verknámsins og hlutfallslega
miklu verknámi. Í verknám-
inu hafa læknanemar tækifæri
til að kynnast fjölbreyttum til-
fellum og læra af sérfræðilækn-
um en Ísland sker sig úr mörg-
um öðrum löndum hvað nálægð
milli sérfræðinga og lækna-
nema varðar. Það er gulls ígildi
að læra af reyndum læknum,“
segir hún.
ástráður, BJargráður
og Hugrún
Valgerður segir að einnig fari
fram fjölbreytt nám utan veggja
skólans og spítalans. „Meðal ann-
ars í þeim verkefnum á vegum
læknanema er tengjast sam-
félagslegri ábyrgð. Þar má nefna
Bangsaspítalann sem læknar ár-
lega á annað þúsund bangsa og
einnig ýmis fræðslu- og forvarn-
arfélög er standa fyrir fyrirlestr-
um í framhalds- og grunnskólum.
Elst af þeim félögum er Ástráður
sem fræðir nemendur víðs vegar
um landið um kynheilbrigði.
Árið 2013 bættist við félagið
Bjargráður sem kennir skyndi-
hjálp og endurlífgun og er um-
fang þeirrar fræðslu stöðugt að
aukast. Nýjasta félagið var stofn-
að á þessu ári og heitir Hugrún.
Það er samstarfsverkefni lækna-
nema, hjúkrunarfræðinema og
sálfræðinema og hefur að mark-
miði að fræða íslensk ungmenni
um geðheilbrigði. Það er afar
lærdómsríkt fyrir nemendur að
taka þátt í verkefnum sem þess-
um.“
ákall uM fJölBreyttari
kennsluHætti
En er eitthvað sem betur má
fara? „Baráttumál læknanema
varðandi kennslumál eru ekki
ósvipuð baráttumálum ann-
arra nema við Háskóla Íslands.
Ákall um fjölbreyttari kennslu-
hætti, svo sem vandamálamiðaða
nálgun, vendikennslu og hermi-
kennslu einkennir þá umræðu.
Þá er mikilvægt að láta fyrri
þrjú árin og þau seinni styðja vel
við hvert annað, þ.e. að fræði-
lega námið sé góður undirbún-
ingur fyrir það verklega og að í
verknáminu nái nemendur aftur
að auka skilning sinn á fræðun-
um. Það eru ýmsar hugmyndir í
deiglunni um hvernig megi bæta
þetta,“ svarar Valgerður.
Gulls íGildi að
læra af reyndum
læknum
Í verknáminu hafa
læknanemar
tækifæri til að kynnast
fjölbreyttum tilfellum og
læra af sérfræðilæknum
en Ísland sker sig úr
mörgum öðrum löndum
hvað nálægð milli sér-
fræðinga og læknanema
varðar.
Valgerður Bjarnadóttir
Sólveig
Gísladóttir
solveig@365.is
Súpan er fullelduð og aðeins þarf að hita hana upp
Við notum ekki MSG í súpuna okkar.
Hún fæst í öllum helstu matvöruverslunum
og stórmörkuðum landsins.
1 4 . d e s e m b e r 2 0 1 6 m I Ð V I K U d A G U r4 F ó l K ∙ K y n n I n G A r b l A Ð ∙ X X X X X X X X ∙ K y n n I n G A r b l A Ð V I Ð b U r Ð I r
1
4
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:2
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
A
9
-1
F
5
4
1
B
A
9
-1
E
1
8
1
B
A
9
-1
C
D
C
1
B
A
9
-1
B
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
5
6
s
_
1
3
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K