Víkurfréttir - 15.09.1983, Qupperneq 1
Veiða kindur og fugla
í þorskanet
Alvarlegur trassaskapur hjallaeigenda
Þaö var Ijót sjón sem
blasti við okkur blaðamönn-
um, er við vorum á ferð
ásam Theódóri Guðlaugs-
syni smala, um hjallasvæð-
ið ofan við Háabjalla. Þarna
höfðu naelon-net varið vafin
umhverfis hjallana til að
forða því að fuglinn kæmist
i skreiðina. En þrátt fyrir að
engin skreið væri til staðar
voru netin látin hanga uppi
og í þeim hékk mikill fjöldi
dauðra fugla, auk þess sem
ein rolla hafði flækst i neti
og soltið til bana.
Sagði Theodór að sumir
hjallaeigendur notuðu gróf-
ara efni s.s. troll, og virtust
dýrin ekki fesíast í þeim
eins og nælon-netunum. Á
stuttum tima hafa Theodór
og systir hans bjargað 3
lömbum sem voru föst í
nælon-netunum og biðu
dauða sína.
„Fiskverkendur sem eiga
þessa hjalla eiga ekkert
með að drepa fuglinn og
kindurnar á þennan hátt. Ég
hef komið hér að fuglum
sem hafa verið búniraðvera
það lengi flæktir í netin, að
þau hafa veriö komin inn í
þá og varð ég þá að aflífa
þá,“ sagði Theodór. „Það
versta við þetta er að hjalla-
eigendurnir taka netin
aldrei í burtu aftur og ýmist
hangandi uppi eða liggj-
andi á jörðinni veiöa þau í
sig fugla og rollur.
Dæmi eru fyrir því að
Dauður fugl hangandi i þorskaneti.
Dagmömmuskortur
í Keflavík
Þrátt fyrir að á þriðja tug
kvenna taki að sér dagvist-
un barna á einkaheimilum í
Keflavík, er enn nokkur
skortur á dagmömmum, að
sögn Maríu Valdimarsdótt-
ur á skrifstofu Félagsmála-
fulltrúa. Þessar konur eru
með frá einu barni og upp i
5 i pössun, en sú tala er há-
mark sem barnaverndar-
nefnd gefur leyfi fyrir. Frá
þeirri tölu dragast þau börn
frá sem konur eiga sjálfar
og eru í pössun á sama
tíma.
Barnaverndarnefnd gefur
út reglur fyrir þessa dag-
vistun þar sem getið er
hvaða skilyrði þarf að upp-
fylla til að fá að kallast dag-
mæður. Þau eru þessi:
1. Börn séu eigi fleiri en 5
undir skólaaldri að heim-
ilisbörnum meðtöldum.
2. Leikrými sé nóg með
góðri loftræstingu og
eingöngu ætlað börnun-
um og auðþrifið, einnig
afgirt útileiksvæði.
3. Leikföng verða að vera
fyrir hendi sem henta
hverju aldursskeiði.
4. Heilbrigðisvottorð frá
héraðslækni fyrir allt
Aðalfundur Sjóefnavinnslunnar hf.:
2.61% verðmætaaukning ef
saltað er með Reykjanessalti
I inn á Glóöinni sl. laugar-
| dag. Þar kom fram ýmislegt
fróðlegt um starfsemi fyrir-
tækisins og grípum við hér
nokkur atriði úr skýrslu
Guðmundar Einarssonar,
formanns fyrirtækisins,
sem hann flutti á fundinum
varðandi framkvæmdir og
rekstur á árinu:
„Borun holu nr. 9 var
lokið á 27 dögum og varð
hún 1440 m djúp, en áætlað
var að bora 40 daga og allt
Framh. á 10. siðu
Aðalfundur Sjóefna- I arið 1982, sem var fyrsta
vinnslunnar hf. fyrir starfs- | starfsár félagsins, var hald-
stióri.
Fyrir rúmum tveim mánuðum var þetta spræk kind.
hjallar sem ekki hafa veriö í
notkun í 2 ár, séu umgirtir
netum sem enn veiöa í sig.
Því álít ég að þetta falli und-
ir dýraverndunarlögin, því
þeir eiga ekkert með þetta.
Fuglinn kemst í fiskinn
ofan frá í hjöllunum, þrátt
fyrir netin á hliðunum, og
því verða þeir að passa
hjallana á einhvern annan
hátt. Annað lamb, nokkuð
ofar, hefur eftir verksum-
merkjum að dæma verið í
fleiri vikur að drepast flækt í
neti. Málum þessum hef ég
vísað til lögreglunnar og
verður gaman að fylgjast
með málum þar,“ sagði
Theodór Guðlaugsson
smali, að lokum.
Til að fá nánari upplýs-
ingar um þetta viðbjóðs-
lega mál höfðum við sam-
band við rannsóknarlög-
regluna. Þar fengum við
þær upplýsingar að málið
væri i rannsókn, væri m.a.
veriö að kanna hverjir ættu
þessa hjalla og hvers vegna
ekki væri betur gengið frá
þessu. - epj.
Fyrirmyndar aóstaóa fyrir börn i dagvistun, aó Vallargötu 16.
heimilisfólk (sérstaklega |
berklapróf) endurnýist
árlega. Einnig skulu heil-
brigðisvottorð frá hverju
aðslækni fylgja hverju
barni sem tekið er inn á
heimilið.
5. Gæta skal þess, að hvers
konar ráöstafanir í sam-
bandi við brunahættu
séu í fullkomnu lagi t.d.
brunavarnir, björgunar-
tæki og slökkvitæki. Ef
um er að ræða húsnæði
á annari hæð, skulu
gerðar strangari kröfur
til allra brunavarna.
Dagmæður þessar leysa
hið svokallaða vöggustofu-
vandamál, því meiri hluti
þeirra sem þarna eru í pöss-
un eru of ung til að fá inni á
dagheimilum, og að sögn
Maríu þá greiðir bærinn nið-
ur kostnaö við þessa gæslu
til handaeinstæöum mæðr-
um. Er þar um að ræða 70%
af mismuni á dagheimilis
gjaldi og dagmömmugjaldi.
Skrifstofa Félagsmálafull-
trúa fylgist siðan meö þess-
um heimilum, en til hennar
þarf að sækja um leyfi til að
taka að sér pössun í heima-
húsi.
( haust mun Félagsmála-
ráð standa fyrir námskeiði
fyrir þessar konur, en nán-
ari upplýsingar um það er
veitt á skrifstofu félags-
málafulltrúa, aðHafnargötu
32, III. hæð, og vildi María
að lokum hvetja konur til að
taka að sér dagvistun og
sækja því námskeiöið. - epj.
Datt út úr
flutningabíl
á ferð
f síðustu viku varö það
óhapp, að drengur sem var
aftan í flutningabíl, féll út
um hliöarhurð og lenti meö
höfuöið í götunni. Átti slys
þetta sér stað á Vatnsnes-
veginum viö Hringbraut-
ina. Þar sem líkur voru á að
drengurinn hefði hlotið höf-
uðáverka var hann fluttur til
rannsóknar ( sjúkrahús í
Reykjavík. - epj.