Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.04.1984, Blaðsíða 1

Víkurfréttir - 12.04.1984, Blaðsíða 1
Launadeilan í Fjölbrautaskólanum: Skólanefnd samþykkir skýrslu skólameistara - Skólameistari segir viðkomandi kennara hafa unnið aukavinnuna án sinnar vitundar og samþykkis Fjölbrautaskóli Suöurnesja Víkur-fréttum hefur borist afrit úr fundargerð skólanefndar Fjölbrauta- skóla Suðurnesja frá 5. apríl, sem fjallar um grein þá er birtist á forsíðu Víkur- frétta 29. mars sl., og fjall- aði um launadeilu í Fjöl- brautaskólanum. Bókun fundarins um málið er svohljóðandi: „Skólameistari lagði fram í Ijósriti grein úr Víkur-frétt- um frá 29. mars sl., sem virðist gerð eftir viðtali við Tekið á móti gámi hjá Hafskip-Suðurnes. KEFLAVÍK: Föst áætlunarhöfn hjá Hafskip í framtíðinni - í framhaldi af opnun vöruafgreiðslunnar Hafskip-Suðurnes Að undanförnu hafa ýmis skipafélög gert sér það Ijóst að aukin iðnframleiðsla og verslun á Suðurnesjum, krefjast betri þjónustu farm- flytjenda á svæðinu og meiri hagræðingu við að leysa út vöruna og einföld- un á útflutningi. Með þetta í huga var vöruafgreiðsla sú sem nefnist Hafskip-Suður- nes og sagt var frá í síðasta blaði, sett á stofn. Mismæli var í þeirri grein að hér væri á ferðinni toll- vörugeymsla, því hér er á Iauglýsendur ATHUGIÐ: iNæsta blaö kemur út| miövikudaginn 18. apríl. Auglýsingar þurfa þvi aö berast fyrir kl. 16 á mánudag. ferðinni vöruafgreiðsla, en meiningarmunur á þessu tvennu er sá, að í tollvöru- geymslu eins og þeirri sem er að Hafnargötu 90, er varan í eigu erlendra fyrir- tækja, en síðan getur innflytjandi leyst út eitt og eitt stykki úr farminum. En í vöruafgreiðslu eins og þeirri sem nú hefur verið sett á stofn, er allur farm- urinn í eigu innflytjandans, enda leysir hann út allt í einu, eins og á sér stað í vörugeymslum skipafélag- anna í Reykjavík. Méð sérstakri vöruaf- greiðslu eru allar þær vörur sem fluttar eru með Hafskip komnar hingað degi eftir uppskipun í Reykjavík og síðan má ganga frá farm- gjöldum og tolli hér fyrir sunnan á mun skemmri tíma, en það tekur í Reykja- vík. Sama er með útflutn- ing t.d. á sjávarafurðum, nú þarf ekki að aka þeim til Reykjavíkur, því hægt er að fá gáma heim að húsunum og fylla þá þar og ganga Framh. á 8. síðu einn af fastráðnum kennur- um skólans í verknáms- deild, ónafngreindan, þar sem kvartað er undan því, að skólameistari hafi neit- að honum um greiðslu á 327 vinnustunda reikningi frá sumrinu 1983, fyrir ,,frá- gang á vélum", allt i auka- vinnu á meistarakaupi og svarar til um tveggja mán- aða vinnu í sumarleyfinu. Skólameistari kveður þessa ,,vinnu‘‘ hafa verið án sinnar vitundar og sam- þykkis, enda öllum sem til þekkja kunnugt að frágangi og niðursetningu véla átti að vera, og er, löngu lokið, og á sínum tíma greitt fullt verð fyrir það, sem óskað var eftir að framkvæma í því efni. Skólameistari kvaðst í fyrra sumar hafa gert þeim verknámskennurum sem um vinnu spurðu í sumar- leyfinu Ijóst, að fé yröi ekki fyrir hendi til sérstakra aukagreiðslna i farmanrit- uðu sambandi. Af þessu gefna tilefni verða verknámshúsin á Iða- völlum lokuð í sumar, en undanfarin ár munu sumir kennarar, ekki síst sá sem hér um ræðir, hafa unnið þar fyrir sjálfan sig, án þess að að því væri fundið sér- staklega. Skólanefnd var samþykk skýrlsu skólameistara um mál þetta". - epj. VARNARLIÐSFLUTNINGARNIR TIL NJARÐVÍKUR? Nú stefnir allt í það að Njarðvík verði aðai innflutningshöfn fyrir Varnarliðsvörur án tillits til hvaða skipafélag ftytji þær fyrst skapast umræðu- grundvöllur um málið. Þá hefur komið fram í þessum viðræðum áhugi Varnar- liðsins í þá átt að nota Njarðvíkurhöfn frekar en Reykjavíkurhöfn í þessu skyni. Mun blaðið fylgjast með þróun mála og flytja fréttir af því um leið og eitthvað fréttnæmt skeður. - epj. Var einhver aö tala um smáfiskadráp? Ljósm. pket. Flutningar á vörum til Varnarliðsins hafa mikið verið í brennidepli að und- anförnu, ekki síst vegna frétta um að bandarískt skipafélag ætli sér að yfir- taka þá flutninga af Eimskip og Hafskip. En hvað sem líður þeim málum eru nú taldar miklarlíkuráaðflutn- ingarnir færist yfir í Njarðvíkurhöfn, án tillits til þess hvaða flustningsaðili verði aðili að málum. Skipaafgreiðsla Suður- nesja fór sl. haust fram á það við Samband sveitarfé- laga á Suðurnesjum, að það beitti sínum áhrifum fyrir því að flutningarnir yrðu fluttir á ný í gegnum hafnir hér syðra og gáfu viðræður við Varnarliðið strax já- kvæða svörun við þeirri málaleitan. Síðan hafa mál- in verið rædd milli ýmissa aðila sem þeim tengjast og m.a. hafa átt sér stað fastar viðræður milli aðila, og eru nú taldar miklar líkur fyrir því að Njarðvíkurhöfn verði í framtíðinni aðaluppskip- unarhöfn fyrir vörurtil Varn- arliðsins og um leið útskip- unarhöfn fyrir þær vörur sem fara aftur út. Það sem hingað til hefur staðið í vegi fyrir að flutn- ingar færu fram héöan, er m.a. aðstöðuleysi í Njarð- víkurhöfn, en nú eru taldar líkur á því að þeim fram- kvæmdum muni jafnvel Ijúka í vor og þvi hefur nú

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.