Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.04.1984, Blaðsíða 9

Víkurfréttir - 12.04.1984, Blaðsíða 9
VÍKUR-fréttir Fimmtudagur 12. apríl 1984 9 Tekur virkan þátt í þéttingu byggðar Oft vill svo verða að víða í þéttbýliskjörnum sé mikið af óbyggðum lóðum á tvist og bast. Svo hefur m.a. verið í Keflavík. Hefur það þvi nokkuð verið rætt að þétta byggðina, en svo er það kallað þegar byggt er á þessum auðu lóðum, sem annars eru staðsettar í löngu frágengnum hverf- um. Einn er sá verktaki sem sérstaklega hefur lagt upp úr því að byggja á þessum lóðum íbúðarhús, sem síð- an eru seldar á frjálsum markaði. Er það Hilmar Haf- steinsson úr Njarðvík. Má t.d. nefna lóðirnar að Faxa- braut 32, Birkiteig 4-6, Vesturgötu 14 og nú það síðasta, að Suðurgötu 26. f síöasta blaði auglýsti hann íbúðir til sölu í síðast- nefnda húsinu, en bygg- ingaframkvæmdir við það hús eru ekki enn hafnar en áætlað er að afhenda það hús síðari hluta næsta árs. Þá er hann nú með í bígerð að hefja byggingu á fjölbýl- ishúsi með 2ja og 3ja herb. íbúðum að Brekkustíg 29 í Njarðvík, en báðir þessir staðir eru lóðir sem áður voru nýttir að takmörkuðu leyti og er því búið að fjar- lægja húsið sem var við Suðurgötuna, en það hús sem nú er á lóðinni við Brekkustíginn verður fjar- lægt þegar nýja húsið verður byggt. - epj. SVEFNPOKAR OG BAKPOKAR nýkomnir. Tilvalin fermingargjöf. Teikning af götuhlið þess húss sem reist verður að Suður- götu 26. 3000 bílar óku í hvora áttina Sl. fimmtudag fór fram j og að sögn Magnúsar Guð- umferðakönnun i Njarðvík I mannssonar, byggingafull- trúa, sem hafði yfirumsjón með könnuninni gekk hún vel, flestir ökumenn svöruðu skilmerkilega spurningum og krakkarnir úr Grunnskólanum stóðu vel að sínu verki. Alls óku 6000 bílar um á þeim tíma sem talningin stóð þ.e. 12 tímum og voru jafn margir í báðar áttir eða 3000. Nánar verður fjallað um niðurstöð ur siðar ásamt niðurstöðum úr talningu sem fór fram sama dag víða um Keflavík. epj- Myndatökur við allra hæfi. Skiliö lyklunum aftur - annars birtum viö lýsinguna á ykkur Um klukkan eitt aðfara- ^aSðV Föstudagur: Opið frá kl. 22-03. Hljómsveitin Upplyfting leikur fyrir dansi. Laugardagur: v ' Opið frá kl. 22-03. Hljómsveitin Upplyfting leikur fyrir dansi. Snyrtilegur klæðnaður. Aldurstakmark 20 ára. nótt laugardags varð húsmóðir við Ásabraut var við að hendi kom inn um svefnherbergisgluggann hjá sér og um hálfri klukku- stund síðar kom hendin aftur og um leið sá hún til tveggja drengja sem sviptu niður gardínum ásamt fest- ingum áður en þeir hurfu út í myrkrið. Þegar betur var að gáð kom i Ijós að þeir höfðu einnig rifið upp baðglugg- ann og sprautað sjampói út um allt og grytt grjóti um gólfið í baðherberginu. Þá höfðu þeir farið inn í tvo bíla sem stóðu fyrir utan og í öðrum skemmdu þeir 1 hátalarafestingar, en í hin- um stálu þeir kassettu ásamt bíllyklunum, sem gleymdust í bílnum. Þar sem tapið á bíllyklun- um er hvað tilfinnanlegast. er hér með skorað á við- komandi að skila lyklunum tafarlaust til eiganda, eða Lukkudagar blaðsins, eða láta vita hvar megi finna þá. Verði þetta ekki gert verður lýsing kon- unnar á þjófnum birt hér i blaðinu, en lýsingin er all nákvæm því að hún sá þá greinilega. - epj. nymynD Hafnargötu 26 - Keflavik - Simi 1016 Gengiö inn frá bílastæöi. 1. apríl 2. apríl 3. apríl 4. apríl 5. apríl 6. apríl 7. apríl 8. apríl 9. apríl 57343 10005 41832 22240 24312 43510 34403 43617 20008 FERMINGARGJÖFIN FÆST í HLJÓMVAL VASADISKÓ SJÓNAUKAR á mjög góðu verði. ALLT FYRIR LJÓSMYNDARANN: Ódýrar myndavélar MAMIYA - YASHICA Sjálfframkallandi myndavélar POLAROID og KODAK. Myndaalbúm og myndavélatöskur Útvörp og kassettutæki frá SANYO og fleirum. PLÖTUR OG KASSETTUR. Hjá okkur færöu filmuna framkall- aða samdægurs. HLJÓMVAL Hafnargötu 28 - Keflavik - Sími 3933

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.