Víkurfréttir - 12.04.1984, Blaðsíða 16
16 Fimmtudagur 12. apríl 1984
VIKUR-fréttir
Videoskipti eða sala
Til solu Betamax video, SANYO. Skipti á
VHS tæki koma til greina. - Upplysingar í
síma 98-2334.
Pökkunarstúlkur
Vantar stúlkur í pökkun og snyrtingu, einn-
ig hálfs dags konur. Unnið eftir bónuskerfi.
BRYNJÓLFUR HF.
Simar 1264 og 1404 ð kvöldin.
Ra ktun lýds og lands
Ungmennafálag íslands 75 ára
1907-1982
Gunnar Kristjánsson tók saman
í bókinni „Ræktun lýðs og lands“ er rakin
75 ára saga ungmennafélagshreyfingar-
innar. Bókin er 360 síður með um 350
myndum. I bókinni er fjallað um marga
Suðurnesjamenn, þátttöku þeirra í Lands-
mótum UMFÍ og fjöldi myndatengdarung-
mennafélögunum á Suðurnesjum.
Sölumenn í Keflavík og Njarðvík:
Jóhann Geirdal, Hafnargötu 49, sími 1054
Gunnar Þór Jónsson, Heiðarbóli 7, s. 3017
Jón Halldórsson, Sunnubraut 18, s. 3633.
Krabbameinsfélag Suðurnesja
minnist 30 ára afmælis síns
- með hátíðarfundi á laugardaginn
Nú á laugardaginn, 14.
apríl, heldur Krabbameins-
félag Suöurnesja sérstakan
hátíðarfund í tengslum viö
aðalfund félagsins. Sam-
koman verður í Glóðinni í
Keflavík og hefst kl. 14. Þar
verður þess minnst að í
vetur voru 30 ár liðin síðan
félagið var stofnað.
Eyþór Þórðarson, formað-
ur félagsins, rekur sögu
þess, lýst verður kjöri heið-
ursfélaga, Ragnheiður
Guðmundsdóttir söngkona
og Gróa Hreinsdóttir píanó-
leikari flytja nokkur lög, og
Þorvarður örnólfsson,
framkvæmdastjóri Krabba-
meinsfélags Reykjavíkur,
segir frá starfi krabba-
meinssamtakanna að reyk-
ingavörnum í grunnskól-
um, m.a. á Suðurnesjum.
Samkomunni stjórnar Jó-
hann Líndal.
Það var 15. nóvember
1953 sem félagið var stofn-
að, en það var í upphafi
nefnt „Krabbameinsvörn
Keflavíkur og nágrennis".
Þá voru aðeinsfjögurönnur
krabbameinsfélög starf-
andi, en nú eru þau orðin
24. Rotaryklúbbur Keflavik-
ur beitti sér fyrir stofnun
þess. Fyrsti formaður þess
var Karl G. Magnússon hér-
aðslæknir, en að þremur ár-
um liðnum tók Alfreð Gísla-
son bæjarfógeti við for-
mennskunni. Kjartan Ólafs-
son héraðslæknir, varsíðan
formaðurfélagsins í áratug,
þá var Johan Ellerup lyfsali,
formaður í tvö ár, en svo
gegndi Kjartan aftur for-
mennsku í tíu ár. Síðustu
fimm árin hefur Eyþór Þórð-
arson vélstjóri, verið
formaður Krabbameinsfé-
lags Suðurnesja. Undanfar-
in ár hefur fjöldi félags-
manna aukist úr 40 manns í
1040 manns.
Verkefni Krabbameinsfé-
lags Suðurnesja hafa eink-
um verið á sviði almenn-
ingsfræðslu um krabba-
mein. ( því sambandi hafa
Hressir og traustir
fréttaritarar óskast
VÍKUR-fréttir óska eftir hressum og traustum fréttariturum um
öll Suðurnes. Þurfa að geta tekið myndir. Greiðslur fyrir hvert
verk.
Umsóknir skal sendatil Víkur-frétta hf., Hafnargötu 32, pósthólf
125, 230 Keflavík, og skulu þær ekki berast seinna en 15. apríl
n.k., merkt: „SUÐURNES“.
verið haldin námskeið fyrir
þá sem vilja hætta að reykja
og síðustu árin hafaaðjafn-
aði verið þrír almennir
fræðslufundir á ári. Sumir
þeirra hafa verið í framhaldi
af fundum Rotaryklúbbs
Keflavíkur, sem í tilefni af
þrjátíu ára afmælinu hefur
ákveðið að gerast formleg-
ur verndari félagsins.
Krabbameinsfélag Suð-
urnesja er nú eitt af fjöl-
mennustu og öflugustu
aðildarfélögum Krabba-
meinsfélags íslands. - jr.
Stjórn Krabbameinsfélags Su&urnesja. f aftari rö& t.v.: Knútur
Höiriis gjaldkeri, Jón Sæmundsson varaformaöur, og Margeir
Jónsson meðstjórnandi. Fremri röö t.v.: Jón Tómasson, sem verið
hefur ritari félagsins í aldarfjóróung, og Eyþór Þórðarson, formað-
ur félagsins.
Innbrot í hundageymsluna við Vesturbraut:
Brutust inn og
frelsuðu fangana
Aðfaranótt miðvikudags-
ins í síðustu viku var brotist
inn í hundageymslu Heil-
brigðiseftirlitsins við Vest-
urbraut í Keflavík og tveim
hundum sem voru þar í
geymslu hleypt út. Eins og
sést á mynd voru unnar
skemmdir á hurð bakatil við
innbrotið.
Að sögn hundaeftirlits-
manns hafði um nokkurt
skeið verið vitað um tvo
hundaergengu lausiruppi í
Grindavík og voru þeir
einnig óhreinsaðir, þó
ákvæði væru um það í
lögum, en hvort tveggja er
ólöglegt. Voru hundarnir
þvi gripnir á ferð hans þar
upp frá á þriðjudeginum og
settir í geymslu rétt fyrir kl.
17. Er starfsmenn komu í
húsið á miðvikudagsmorg-
uninn kom í Ijós að hurð
bakatil hafði verið brotin
upp og hundarnir þvi á bak
og burt.
Taldi hundaeftirlitsmað-
urinn að grunur beindist að
eigendum hundanna, og að
sögn Rannsóknarlögregl-
unnar sl. mánudag lá málið
nokkuð skýrt fyrir. - epj.
Afleiöing freisunarinnar
Flóamarkaður
og kökubasar
hjá Lionessum
N.k. laugardag 14. apríl,
heldur Lionessuklúbbur
Keflavikur sinn árlega
kökubasar í Holtaskóla.
Jafnframt verður klúbbur-
inn með flóamarkað á sama
stað. Mun þar verða hægt
að fá marga góða muni fyrir
lágt verð. - pket.
/X\FERMINGARSKEYTA AFGREIÐSLAN 1
í Skátahúsinu og Víkurbæ, Hólmgarði, alla fermingar- 1
1 dagana kl. 10 - 19. Heiðabúar - Hringbraut 101