Víkurfréttir - 12.04.1984, Page 10
10 Fimmtudagur 12. apríl 1984
VÍKUR-fréttir
Blómastofa Guðrúnar:
„Þjónusta og leiðbeiningar
til fólks í fyrirrúmi"
- segir Guðrún Valgeirsdóttir um fyrirtæki sitt, sem
verður 5 ára í næsta mánuði
..Fyrst og fremst er það
þjónustan", sagði Guðrún
Valgeirsdóttir, eigandi
Blómastofu Guðrúnar að
Hafnargötu 36a, þegar við
spuröum hana um rekstur
blómastofunnar, en hana
hefur hún rekið í 5 ár. Hóf
hún rekstur blómastofunn-
ar á neðstu hæð Kyndils að
Hafnargötu 31, 26. mai
1979, flutti síðanyfirgötuna
í húsið nr. 34, en vorið 1981
hóf hún byggingu þess
húss sem verlsunin er nú
rekin í; flutti þar inn og opn-
aði í nóvember sama ár.
Guðrún hefur starfað við
blómasölu og aðra versl-
unarþjónustu við Hafnar-
götuna hátt á annan áratug,
og eins og kemur fram í við-
talinu hér á eftir veitir hún á
margan hátt alveg einstaka
þjónustu og leiðbeiningar
til fólks. Fyrir utan þann þátt
er hún með til sölu i verslun
sinni allt frá fræjum og lauk-
um og upp í afskorin blóm
og pottablóm, þ.m.t. potta,
blómavasa, mold o.fl., auk
þess sem hún hefur til sölu
ýmislegt skreytingarefni
s.s. kerti og annað.
En leyfum Guðrúnu að
hafa orðið um þá þjónustu
sem hún veitir:
,,Ég legg stóra áherslu á
þjónustu við fólk, s.s. ef það
hefur orðiö fyrir ástvina-
missi eða annarri sorg, þá
reyni ég að aðstoða og leið-
beina, ef það fer fram á það.
Ég fer fyrir það í kirkjurnar
hér á Suðurnesjum, skreyti
altari, kistur, útbý kransa.
og nægir í þessum tilfellum
að koma meðóskinatil mín,
siðan sé ég um að útvega
allt sem til þarf og koma
þessu á áfangastað. Þannig
er og um alla þá þjónustu
sem ég veiti. Það nægir að
bera fram óskina, ég sé
síðan um afganginn, án
þess að viðkomandi þurfi
að hafa neinar áhyggjur.
Sé um að ræða brúð-
kaup, fermingar, afmæli,
skírnarveislur eða eitthvað
annað, tek ég að mér að sjá
um allar borðskreytingar,
skreytingar í kirkjunni o.fl.
þ.h. Fólk sem aldrei hefur
áður lent í slíku veit ekki
hvernig það á að standa að
hlutunum og því veiti ég
ráðgjöf varðandi þessi
atriði eða aðrar leiðbein-
ingar um hvernig standa
skuli að málum og er því
bæði með viðskiptavinum
mínum í sorg og gleði.
Sérstaklega vil ég láta
það koma fram, að ég er
með ákaflega þægilegar og
elskulegar stúlkur sem hafa
starfað með mér aftur og
aftur i gegnum árin, og
ásamt þeim leiðbeini ég
þessu fólki. Þá veitum við
leiðbeiningar varðandi
gróðursetningu á fræjum
og laukum, meðhöndlun
pottablóma og er okkur Ijúft
að veita allar þær upplýs-
ingar sem að gagni mætti
koma við blómarækt.
Fermingarbörn!
Til hamingju.
^ f "\
nymynD
,,Þær eru einstaklega þægiiegar og elskulegarstúikurnar",
segir Guðrún Valgeirsdóttir um stúlkurnar sem hjá henni
starfa og eru meö henni á myndinni.
Við pökkum inn gjöfum
fyrir fólk, bæði því sem
keypt er hjá okkur svo og
því sem keypt er annars
staðar, pökkum þessu í
gjafaumbúðir og skreytum
á skemmtilegan hátt að ósk-
um viðskiptavina, en þetta
er mjög vinsæl þjónusta.
Auk þess tökum við að
okkur að koma gjöfinni til
viötakenda, sé þess óskað".
Á þessu sést að Blóma-
stofa Guðrúnar veitir alveg
einstaka þjónustu á sínu
sviði, en auk þess hefur
Guðrún eins og áður hefur
komið fram, fylgst með
blómasölu og veisluvenjum
Suðurnesjamanna í gegn-
um þetta starf hátt á annan
áratug, og því þótti eðlilegt
að fá álit hennar á því hvort
einhverjar breytingar hafi
orði varðandi þessi atriði á
þessum árum.
„Það hefur orðið svolítil
breyting", sagði Guðrún,
„meðan fiskurinn var alls
ráðandi hér áður fyrr og
mikið varaf vertíðarfólki hér
um slóðir, komu ungu kon-
urnar og krakkarnir úr fisk-
inum í kaffitímunum á
föstudögum og keyptu
blómvendi. Þetta hefur
mikið lagst af, enda er nú
minna að gera hjá þessu
fólki, því fylgist það að. En í
staðinn hefur orðið sú
ánægjulega breyting, að nú
er töluvert um að það kem-
ur ungt fólk og kaupir
kannski eina rós, sem við
pökkum fallega inn. Síðan
færir það móður sinni eða
vinafólki þetta að gjöf, og
eins hefur það færst í vöxt
að það gerir þetta þegar
það er að fara sem gestir í
hús og færir það gestgjafa
eina til tvær rósir, eða eitttil
tvö önnur blóm. Þetta er
notalegt, enda er það ekki
mergurinn málsins að gefa
ofsalega stóra vendi, nema
þá kannski á stórafmælum.
Svona gjafir af tilefnislausu
er mjög ánægjuleg þróun,
en þettaálíkaviðþegareig-
inmaðurinn vill brjóta
hversdagsleikann og gefur
því frúnni eitt eða tvö blóm,
skemmtilega pökkuðum
inn. En með þessu njótum
við blómanna í fleiri tilfell-
um en á tyllidögum eða við
sérstök tilefni.
Þó hér áður fyrr hafi allt
fyllst af stúlkum á föstudög-
um sem voru að kaupa
blómvendi í kaffitímum sín-
um, eftir að hafa fengið
kaupið sitt útborgað, má
segja að enn sé sama
hugsunin fyrir hendi, þó
hún sé nú í breyttri mynd.
Þá finnst mér nú vera orðin
mikil og almenn notkun á
blómum, t.d. gerir fólk
einnig mikið af því að kaupa
pottablóm og setja þau i
skemmtileg ílát sem passa
við, og nota síðan sem
gjöf".
En lokaorð Guðrúnar
voru ósk um að það kæmi
fram, hve Suðurnesjabúar
hafi verið elskulegir við sig
persónulega og tekið sér
vel, sýnt sér virkilega elsku,
enda væri það svo, að ef
maður sýndt einhverjum
gott hugarfar og elskulegt,
þá fengi maður það marg
endurgoldið. Þá sagði hún
að ávallt hefði hún haftein-
staklega gott starfsfólk.
epj.
Skipaviðgerðir í Njarðvík
Að undanförnu hefur sú
þróun farið vaxandi að við-
gerðir á ýmsum stórum
fiskiskipum og jafnvel
minni kaupskipum, fari
fram i Njarðvík. Eru þær
bæði framkvæmdar við
bryggju svo og uppi í slipp.
Er hér á ferðinni allt frá
venjulegum viðhaldsstörf-
um og upp í yfirbyggingar,
breytingar eða vélaskipti.
Er það t.d. orðið algengt
að unnið sé að stórviðgerð-
um á nokkrum skipum í
einu jafnvel við bryggju. Ný-
lokið er yfirbyggingu á Jóni
á Hofi ÁR, langt er komið
yfirbyggingu á Þórkötlu II.,
unnið er að endurnýjun á
innrásapramma frá Varn-
arliðinu, og svona má lengi
telia.
I síðustu viku kom græn-
lenskur rækjutogari til við-
gerðar, en hann hafði sigltá
ís út af Norðurlandi og því
var gert til bráðabirgða við
gat sem kom á skipið. Þá
kom björgunarskipið Goð-
inn með togarann Sölva
Bjarnason almyrkvaðan til
hafnar sl. fimmtudag, en
bæði Ijósavél og aðalvél
skispins stöðvuðust er
skipið var að veiðum út af
Suðurlandi.
Flestar þessar viðgerðir
eða breytingar eru unnar af
Vélsmiðjunni Herði eða
Skipasmíðastöð Njarðvík-
ur, en þess fyrir utan koma
margir aðilar inn í ýmis
verkefni. - epj.