Víkurfréttir - 12.04.1984, Síða 11
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 12. apríl 1984 11
Góð mæðravernd skilar sér í:
Færri dauðsföllum við meðgöngu
og fæðingu
- segir í ályktun frá Suðurnesjadeild LMSÍ
Aðalfundur Suðurnesja-
deildar Ljósmæðrafélags-
ins var haldinn 21.mars sl.
Kom fram á fundinum að
aðal verkefni deildarinnar á
árinu hafi verið foreldra-
fræðsla fyrir verðandi
foreldra. Voru haldin 8 slík
námskeið.
Ásamt Ijósmæðrum hefur
Sigriður Þórarinsdóttir,
sjúkraþjálfari annast þessa
fræðslu og nú nýverið hafa
komið til starfa þær Svala
Björgvinsdóttir félagsráð-
gjafi og Arnheiður Ingólfs-
dóttir, hjúkrunarfræðingur.
Stjórn Suðurnesjadeildar
LMSÍ er þannig skipuð:
Anna Sveinþjörnsdóttir,
formaður. Einhildur Einars-
dóttir, varaformaður,
Hulda Bjarnadóttir, gjald-
keri og Guðrún Guðbjarts-
dóttir, ritari.
Á fundinum voru eftirfar-
andi ályktanir samþykktar:
„Fundurinn fagnar góðri
mæðravernd á svæðinu, en
telur æskilegt að ungbarna-
eftirlit yrði einnig komið á í
heimahúsum fyrst eftir
heimkomu barns.
Þá lýsir fundurinn einnig
sérstakri ánægju sinni yfir
því að Sjúkrahúsinu hefur
verið fært sónartæki að
gjöf, sem eykur öryggi
verðandi mæðra til mikilla
muna. Þá fögnum við því að
veitt hefur verið stöðugildi
við sjúkrahúsið".
„Fundurinn fagnar því frum
varpi sem lagt hefur verið
fyrir Alþingi um lengingu
fæðingarorlofs úr 3 mánuð-
um í 6 mánuði".
„Fundurinn varar viðafleið-
ingum af sparnaðarráðstöf-
unum ríkisstjórnarinnar í
heilbrigðismálum, hann vill
minna á að góð mæðra-
vernd hafi skilað sér í
fækkun dauðsfalla og alvar-
Sjúkrahúsiö i Keflavik
Vorveiði hafin í Geir-
landsá og Vatnamótum
l.apríl hófst veiði í Geir-
landsá. Miklir vatnavextir í
ánni spilltu fyrir veiðinni,
því var aðeins hægt að
veiða fyrsta morguninn. Þá
komu á land 15 sjóbirtingar
og veiddust þeir allir í Ár-
mótum. Eftir hádegi fór að
rigna og óx þá svo í ánni, að
hún varð óveiðanleg. Er
annað hollið mætti á
staðinn, leist þeim ekki á
blikuna, þvi áin varsem haf-
sjór yfir að líta. Létu þeir því
fyrirberast í veiðihúsinu þar
til síðasta morguninn en þá
var farið að sjatna dálítið í
ánni. Fóru þeir niður í
Ármót og fengu þar 4 sjó-
birtinga. Er þriðja hollið tók
við var áin enn i miklum
vexti. Þó var reynt að veiða
en lítið gekk, fengust þó 3
sjóbirtingar. Tveir í Ármót-
um og einn ofan við nýju
brú. Urðu þeir lítið varir við
fisk í ánni. Veiði var ekki
hægt að hefja í Vatnamót-
um fyrr en 6.apríl, vegna
ótryggra aðstæðna. Var
það einkum ís er olli töfinni.
En opnunarhollið fékk 18
sjóbirtinga og töldu þeir að
þó nokkuð væri af fiski, þó
veiðiaðstæður væru í lakara
lagi, vegna íshröngls og
vatnavaxta. Stærsti fiskur
sem kominn er á land úr
Geirlandsá í vor er 9 pund.
Stærsti fiskur úr Vatnamót-
um fram að þessu er6 pund.
Er þetta er skrifað spáir veð-
urstofan kólnandi veðri, og
er því von til þess að sjatni í
ánum og fiskurinn leiti aftur
á hefðbundna staði.Þá er
ekki að efa að vel veiðist.
st.bj.-
legra afleiðinga tengt með-
göngu og fæðingu".
„Ljósmæður vilja hvetja
mæður til að hafa börn sin á
brjósti eins lengi og nokkur
tök eru á“.
Fundurinn samþykkir að
beita sér fyrir stofnun
áhugafélags um brjósta-
gjöf. Tilgangurfélags þessa
er að fólk sem hefur áhuga
fyrir brjóstagjöf myndi með
sér félag sem hjálpar
konum við að hafa börn sin
á brjósti með því að veita
stuðning vegna eigin
reynslu. Félagsskapur af
þessu tagi hefur verið
stofnaður hérlendis og víða
erlendis. Þeir sem áhuga
hafa hér á Suðurnesjum
hafi samband við Fæðingar
deild sjúkrahússins í Kefla-
vík og Auði á Heilsugæslu-
stöð Suðurnesja.
Stjórnin.
Úrval talstöövaloftneta og fylgihlutir fyrir
CB talstöðvar frá
Höfum Suðurnesjaumboð fyrir
D i. , i i r
Holtsgötu S - Ytri-Njarövik - Simar 2869, 2362