Víkurfréttir - 04.05.1984, Síða 7
VÍKUR-fréttir
Föstudagur 4. maí 1984 7
Ellert Skúlason vann gerðardómsmálið:
Fær 5 milljónir kr. í skaðabætur
- vegna rangra útboðsgagna við gerð
grjótfyIlingar á Bakkafirði
Gerðardómur Verkfræð-
ingafélagsins hefur kveðið
upp þann úrskurð, að Vita-
og hafnamálastofnun fyrir
hönd Skeggjastaðahrepps í
Norður-Múlasýslu bæri að
greiða verktakafyrirtæki
Ellerts Skúlasonar i Njarð-
vík, 5 milljónir í skaðabæt-
ur vegna rangra útboðs-
gagna við gerð grjótfylling-
ar við hafnarmannvirki á
Bakkafirði.
Eins og áður hefur komið
fram hér í blaðinu hafa
framkvæmdir við grjótvarn-
argarðinn á Bakkafirði, sem
á að vera 200 metra langur,
dregist mikið vegna deilna
Ellerts við heimamenn. Átti
vinna að hefjast snemma sl.
sumar og Ijúka um áramót-
in síðustu. Hófust fram-
kvæmdir ekki fyrr en leið á
haustið og á enn eftir að
bæta nokkru við garðinn.
Að sögn Þjóðviljans var
upphafleg kostnaðaráætl-
un upp á 12 milljónir og nú
bætast við 5 milljónir í
skaðabætur. Og þó Vita- og
hafnamálastofnunin hafi
farið með málið, þá kemur
það í hlut Skeggjastaða-
hrepps að greiða bæturnar,
þó ríkið eigi sjálfsagt eftir
að hlaupa undir bagga með
þeim á Bakkafirði. - epj.
Áttu góða
grein til
birtingar
í blaðinu.
Hafðu þá sam-
band í síma 1717.
mm
jutUi
SUÐURNESJAMENN
i i ■ii n
N Í íii ii
i i iii"
ii ii i ii in 11
!!____
i ii i II iii 11
"bt* ' 1
■ ■
Höfum fengið til sölumeðferðar 2ja og 3ja herb. íbúðir við Heiðarholt í Keflavík, sem skilast
tilbúnar undir tréverk og öll sameign fullfrágengin, þ.m.t. malbik, málun og torf á lóð. Stærð 2ja
herb. íbúðanna er 81,2 m2 og 3ja herb. 101,5 m2, sameign meðtalin. - ATH: Sér þvottahúserfyrir
hverja hæð. Beðið er eftir húsnæðisstjórnarláni, þannig að það er auðveldara að kaupa þessar
íbúðir en nýjan japanskan bíl. - Komið og skoðið líkanið og teikningarnar á skrifstofunni, Hafn-
argötu 57, Keflavík.
1.
l-aar---
mm J
Arkitekt og hönnuður líkans: .... Páll V. Bjarnason
Verkfræðingur: ............... Haukur Margeirsson
Verktaki: ............................ Húsanes sf.
Söluaðili:
EIGNAMIÐLUN SUÐURNESJA