Víkurfréttir


Víkurfréttir - 01.11.1984, Qupperneq 1

Víkurfréttir - 01.11.1984, Qupperneq 1
 FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA: FELLDI BYGGINGARLEYFIÐ ÚR GILDI - fyrir verslunar- og skrifstofuhúsinu aðTjarnargötu 2 í Keflavík Á mánudag i siðustu viku kvað Alexander Stefánsson, félagsmála- ráðherra upp svofelld- an úrskurö i deilumálinu varðandi nýbygginguna að Tjarnargötu 2 í Kefla- vík: ,,Byggingarleyfi fyrir verslunar- og skrifstofu- hús á lóðinni nr. 2 við Tjarnargötu í Keflavík, er úr gildi fellt að svo stöddu. Jafnframt verð- ur lagt fyrir skipulags- stjórn að eiga nú þegar frumkvæði að gerð deili- skipulags fyrir miðbæ Keflavíkur í samráði við bæjarstjórn Keflavíkur". Áður en þessi ákvörð- un var tekin var leitað umsagnar Skipulags- stjórnar ríkisins og var sú umsögn birt hér í næst síðasta blaði. en þar kom m.a. tram ao Skipulagsstjórn lagði til að byggingarleyfið yrði numið úr gildi. Þá láfyrir greinargerð m.a. frá bæj- arlögmanni og lög- manni eigenda Hafnar- götu28. (greinargerðfrá bæjarlögmanni var m.a. því haldið fram að lög- mætur 3ja mánaða kærufrestur kærenda hafi verið liðinn þann 29. sept. sl. og því bæri að vísa kærunni frá. En í bréfi félagsmála- ráðuneytisins þar sem úrskurðurinn er birtur, segir m.a. varðandi nið- urstöður málsins: ,,Með því að bygging- aryfirvöld gáfu eigi kær- endum kost á að tjá sig um fyrirhugaða bygg- ingarframkvæmd, svo sem þeim bar, sbr. bygg- ingareglugerð, og að sáttatilraunir hafa farið fram milli deiluaðila allt fram á þennan dag, verður ekki á það fallist að kæran sé of seint fram komin". Jafnframt kemur fram að nýtingarhlutfall húss- ins sé of hátt og ekkert deiliskipulag hafi verið gert fyrir viðkomandi byggingarreit. Vegna þessa verði ekki hjá því komist að fella bygging- arleyfið úr gildi að svo stöddu. Er Ijóst samkv. fram- antöldu, að framkvæmd- ir verða nú stöðvaðar a.m.k. þar til gert hefur verið deiliskipulag fyrir viðkomandi svæði og það hlotið löglega með- ferð á opinberum vett- vangi. Er því Ijóst að hús- byggjandinn lendir i Um þetta stendur deitan. miklu tjóni vegna mis- taka bygginganefndar Keflavíkur í máli þessu, en á þessu stigi er ekki séð fyrir endann á því. Þar sem hér er um mjög óvenjulegt mál að ræða var rætt við nokkra þeirra aðila sem málinu tengjast, og birtast svör þeirra inni í blaðinu. epj./pket. Innbrot í vöruskemmu Skipaafgreiðslunnar: Stálu áfengi, fatnaði o.fl. úr gámum - Logsuðu göt á gámana til að komast í þá Aðfaranótt fimmtudags- ins í síðustu viku var brotist inn í vöruafgreiðslu Skipa- afgreiðslu Suðurnesja, þar sem mjölgeymsla Fiskiðj- unnar var áður til húsa. Var brotist inn baka til og síðan voru logskorin göt á þrjá gáma sem í geymslunni voru. Vegna verkfalls BSRB hefur enn ekki verið hægt að komast í tollskjöl til að kanna hvað i gámunum var, en þó liggur Ijóst fyrir að stolið var 10 kössum af áfengi sem var í eigu Frí- hafnarinnar á Keflavíkur- flugvelli. Einnig var stolið einhverju af tískufatnaði og þó nokkru magni af skó- fatnaði bæði fyrir dömur og herra. Innbrot þetta er það þriðja í röðinni á þessum stað nú á stuttum tíma; en mjög litlu sem engu var stolið í hinum fyrri. Er málið nú í rannsókn hjá rannsókn- arlögreglunni í Keflavík. Á föstudagskvöld í síð- ustu viku voru 3 menn staðnir að verki við vöru- geymsluna, en þá voru þeir að leita að áfengi í gámum fyrir utan. Eru þeirekki tald- ir grunaðir um þátttöku í innbrotunum. - epj. Eitt af götunum sem iogskorin voru á gámana. STÓRFELLD SKEMMDARVERK - Hundruðum þúsunda varið í viðgerðir á glitstikum ár hvert Ár hvert eru eknar niður glitstikur á vegum hér á skaganum svo hundruöum skiptir. Kostnaður við lag- færingar nemur hundruð- um þúsunda króna, að sögn Vegagerðar ríkisins. Glitstikur eru mjög mikil- vægar fyrir akandi vegfar- endur og þá sérstaklega i slæmu skyggni og vondum veðrum.Því er hér um að ræða ótrúlegt hugsunar- leysi þeirra sem þennan leik stunda. Fólk er hvatt til að láta yfirvöld vita ef það sér til einhverra sem stunda þessi skemmdarverk. pket.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.