Víkurfréttir - 01.11.1984, Side 5
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 1. nóvember 1984 5
Körfuknattleikur, UMFN-ÍS 114:68
Stúdentarnir féllu á prófinu
lUJ
Njarðvíkingar í banastuði
frá Laugdælum. Ég get ekki
,,Ég er virkilega ánægður
með strákana. Við misstum
5 af 10 fastamönnum í lið-
inu frá því í fyrra og höfðum
fyllt að mestu upp í það
skarð með nýliðum frá
okkur auk þess sem við
fengum Ellert Magnússon
annað en verið ánægður
með liðið með hliðsjón af
þessari endurnýjun, en það
er samt ekki enn komin full
reynsla á liðið", sagði
Gunnar Þorvarðarson, hinn
góðkunni þjálfari og leik-
maður UMFN.
AÐALFUNDUR
Skákfélags Keflavíkur verð-
ur haldinn miðvikudaginn
7. nóvember kl. 20 í Sjálf-
stæðishúsinu við Hafnar-
götu.
Tekur Steini
Bjarna við
þjálfun ÍBK?
Þorsteinn Bjarnason er
mjög líklegur arftaki Björns
Víkings í þjálfarastól Kefl-
víkinga í körfubolta. Steini
hefur ekkert leikið með á
þessu tímabili. Sagði sl. vor
að hann væri hættur.
í leiknum gegn Fram
stjórnaði hann liðinu af
bekknum ásamt Sigurði
Valgeirs, og hefur séð um
æfingar eftir þann leik í
þessari viku.
Forráðamenn ÍBK vildu
þó ekki gefa afdráttarlaust
svar, hvort Steini tæki við
þjálfun liðsins, og þá jafn-
vel léki einnig með. Þetta
mun líklega skýrast um
helgina. - pket.
Já, NjarðVíkingar virðast
afar sterkit* þessa dagana.
Stórsigur Igegn ÍS á föstu-
dag þar sem Njarðvíkingar
sýndu allt sem gott körfu-
knattleikslið má prýða. Mik-
ill hraði, góð hittni og
skemmtilegar fléttur, auk
grimmdar í vörninni. Það
virtist ekki skipta neinu máli
hvaða 5 leikmenn voru inn á
í það og það skiptið, stúd-
entarnir áttu ekkert svar við
hæfi. Ungu Ijónin, Teitur,
Helgi og Hreiðar, voru
ákveðnir í að sanna að þeir
eru fullgildir úrvalsdeildar-
menn (menn með mönn-
um).
Allir leikmenn UMFN
komust á blað þótt Valur
Ingimundar væri efstur á
lista sem endranær. Hjá (S
stóð Björn Leósson upp úr
en það verður að segjast
sem er, að sumir leikmenn
stúdentanna hafa ekkerter-
indi í úrvalsdeild. Sennilega
er óhætt að afskrifa liðið
strax, fyrst þeir skítféllu
svona á fyrsta prófinu.
( hálfleik var staðan 66:29
og voru kröfuharðir áhang-
endur Njarðvikinga farnir
að tala um stigamet, en
lokatölur urðu ,,aðeins“
114:68, enda erfitt að halda
fullri einbeitingu heilan leik
gegn svo slökum andstæð-
ingi sem (S er. Sennilega
mun baráttan um bikarinn
standa á milli UMFN, Vals
og Hauka. Lið Njarðvíkinga
hefur staðið sig vel á þess-
um „skyndiprófum" gegn
(R og (S, en fullnaðarprófin
verða við Hauka og Val. Þá
verður gaman í „gryfjunni".
Stig UMFN: Valur 40, Ell-
ert 14, Hreiðar 11, Teitur 10,
Helgi 8, Gunnar 8, Jónas 6,
Árni 6, Hafþór 6, ísak 5.
Stig ÍS: Björn Leóss. 18,
puðmundur Jóh. 13, Árni
Guðm. 13.
- ehe.
„Víðismenn þurfa að
styrkja liðið“
Frammistaða Víðismanna
á síðasta tímabili kom veru-
lega á óvart, er liðið tryggði
sér 1. deildar sæti á næsta
ári. Leikmannaskipti hafa
borið á góma og 3 Skaga-
menn verið nefndir við liðið,
þeir Bjarni Sigurðsson, Sig-
urður Lárusson og Svein-
björn Hákonarson.
Víst er, eins og kemur
fram annars staðar í blað-
inu, að Bjarni fer ekki í Víði
og samkvæmt heimildum
blaðsins hafa þeir Sigurður
og Sveinbjörn ekki ákveðið
neitt í þeim efnum, en þeir
starfa báðir við flugstöðina
á Keflavíkurflugvelli.
BLAÐ SEML> HITTIR í MARK 1
fytitUi - |
„Ég tel mikilvægt fyrir
Víðismenn að styrkja lið sitt
með alla vega tveimur
reyndum leikmönnum.
Þetta er ekki vantraust á lið-
ið, en 1. deildin er miklu
harðari skóli og liðiðvantar
meiri breidd", sagði Bjarni
Sigurðsson. - pket.
Sími 1540
Sími 1540
m
TILBOÐ:
FATADEILD:
Tilboð:
Fleskesteik kr. 149,00 pr. kg
Súpukjöt . kr. 119,90 pr. kg
Sængur .... kr. 995,00
Koddar.... kr. 295,00
VÖRUKYNNING Á SYKURSNAUÐUM APPELSÍNU
SAFA FRÁ SÓL HF. - Kynningarafsláttur.
SAMKAUP
Simi1540
E ISAMKAUP
EUROCARD Sími 1540