Víkurfréttir - 01.11.1984, Qupperneq 7
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 1. nóvember 1984 7
Negri á „rússa“
og kennir „break“
Það eru breyttir tímar i
dansmenningunni. Allir
dansskólar eru nú yfir-
fullir af strákum í
„break-dansi" á meðan
stelpurnar láta sér
nægja venjulega dans-
kennslu. Þeir sem eru
hvað iðnastir við „break-
ið“ æfa hér á gangstétt-
um bæjarins alla daga
og þá oft undir leiðsögn
,,break-ara“ af dekkri
tegundinni af Vellinum.
Þykir sá ansi sleipur og
ekki nóg með það,
heldurekursá hinnsami
um á rússneskum LADA-
bíl!
Sjást þeir oft saman
(rússinn og kaninn) fyrir
framan aðsetur ungling-
anna í Keflavík í dag,
Casino leiktækjasalinn.
Þar er „breakað" af
krafti, jafnt (slendingar
sem ,,negrakossar“
(nema að sjálfsögðu
rússinn, hann horfir á).
Bjartmar kom
á óvart
Brennivín og
sígarettur á
okurverði
Vegna verkfalls BSRB
er nú svo til allt brenni-
vín á þrotum og sama má
segja um sígarettur og
annað tóbak. Þó eru allt-
af nokkrir sem ,,luma“ á
og selja á svörtum mark-
aði. Heyrst hefur að
flaskan sé komin í
2500-3000 kr. og síga-
rettupakkinn i 100 kr.
Samkvæmt heimild-
um Mola hefur ásóknin í
dollara verið mikil að
undanförnu og fólk
óspart reynt að útvega
sér áfengi og tóbak á
Keflavíkurflugvelli. Þar
fást þessar „nauðsynj-
ar“ að sjálfsögðu á mun
ódýrara verði ef þú hefur
sambönd . . .
Bjartmar Guðlaugs-
son, söngvarinn kunni,
kom heldur betur á óvart
skömmu fyrir verkfall. Á
Rás 2 kom ósk um lag
eftir Bjartmar með af-
mæliskveðju, og var það
síðan flutt og allt í lagi
með það. En okkar mað-
ur gerði betur. Hann þef-
aði uppi hvaðan óskin
kom, bankaði upp stuttu
síðar í húsi hér í Njarð-
vík með gitarinn í hend-
inni. Þar var fólk saman
komið í gleðskap og
fagnaði það komu
söngvarans.
Bjartmar bauð upp á
,,live“-flutning og söng
nokkur lög við mikinn
fögnuð. Kvaddi hann
síðan og fór.
Vakti þetta uppátæki
söngvarans kunna mikla
lukku.
,,Landinn“
blívur
Menn deyja ekki ráða-
lausir þó ekki fáist
brennivín. Þar koma
bruggararnir að góðum
notum, það er að segja
þeir sem eru svo heppnir
að þekkjaslíkaaðilasem
stunda þá iðju. Þeir
losna létt við „landann"
núna þó verðið sé ekki
eins hátt og á alvöru
miði. - pket.
Molar
„Verð áfram með ÍBK“
- segir Sigurður Björgvinsson,
knattspyrnumaður
„Ég er ákveðinn í að vera
áfram með (BK. Það hefur
aldrei staðið til hjá mér að
ég færi í annaðfélag", sagði
Sigurður Björgvinsson,
knattspyrnumaður (BK.
Sú saga hefur gengið að
Sigurður væri á leið í annað
félag og ætlaði sér jafnvel
að þjálfa. „Já, ég hef verið
spurður um þetta, það er
rétt. En ég er ekki á leiðinni í
annað félag, það máttu
bóka“, sagði Sigurður.
Óli Þór Magnússon, sem
lék með Þór, Akureyri, sl.
sumar, hefur snúið aftur til
Keflavíkur og mun leika
með (BK á ný. - pket.
Vetrarstarf Skákfélagsins hafið
- í 5. sæti eftir fjórar umferðir í 1. deildarkeppninni
Fyrir nokkru fór fyrri hluti
1. deildarkeppni Skáksam-
bands (slands fram á Akur-
eyri. ( deildinni keppa 8
sveitir.
Sveit Skákfélags Kefla-
víkur sigraði Kópavog 5:3,
gerði jafntefli við Vestfirð-
inga 4:4, tapaði fyrir Taflfé-
lagi Reykjavíkur N-V 1:7, og
sömuleiðis fyrir Taflfélagi
Reykjavikur S-A 3:5. Sveitin
hefur þannig hlotið 13 vinn-
ings, en til samanburðar má
geta þess að gegn þessum
sömu sveitum hlaut SK 11
vinninga í keppninni ífyrra.
Að fj< rum umferðum
loknum er staðan þessi:
1. TR N-V 27 v„ 2. Sel-
tjarnarnes 20 v„ 3. TR S-A
18,5 v„ 4. Akureyri 18 v„ 5.
Skákfélag Keflavíkur 13 v„
6.-7. Garðabær og Kópa-
vogur 11 v„ 8. Vestfirðir 9,5
v.
Æfingar Skákfélags
Keflavíkur fara fram i Sjálf-
stæðishúsinu, Hafnargötu
46, á miðvikudögum, og
hefjast kl. 20. Allir áhuga-
menn eru velkomnir. - sjs.
Árbók fær styrk
Stjórn SSS samþykkti á
fundi sínum 4. okt. sl. að
styrkja útgáfu Árbókar Suð-
urnesja fyrir árið 1983, með
20 þús. kr. Sögufélag Suð-
urnesja hefur séð um
vinnslu bókarinnar, en aðal-
etni hennar er annáll ársins
1982 og fleira. - pket.
VERSLIÐ ÓDÝRT
SYNISHORN AF VERÐI:
V/SA
E
Ananas l /1 ds... kr. 59
Ananas, 567 gr... kr. 46
Ferskjur í/iös... kr. 59
Aspargus 1/2 ds...kr. 55
UR KJOTBORÐINU:
ÓDÝ RT KRYDDLEGIÐ KJÖT.
Nautalundir.............. 495 pr. kg
Ný hjörtu................ 110 pr. kg
Ný lifur................. 1ÍO pr. kg
Hökkuð slög.............. 25 pr. kg
Hvalbuff ................ 112 pr. kg
Reykt folaldakjöt.......... 98 pr. kg
Kjötfars................... 79 pr. kg
Hrossabjúgu............... 95 pr. kg
Kæfa ..................... 158 pr. kg
Pizza .................... 99 kr. stk.
Svartfugl ................. 29 kr. stk.
K-kaffi 1/2 kg ............. kr. 56,60
Appelsínusafi, IMPEX ....... kr. 38,30
Eplasafi, IMPEX............. kr. 31,45
Franskar kartöflur, 700 gr . kr. 58,00
Franskar kartöflur, 1500 gr kr. 139,00
VÍKURBÆR
HAFNARGÖTUl- IHÓLMGARÐII 1
Sími 2042 Sími 2044