Víkurfréttir


Víkurfréttir - 01.11.1984, Síða 14

Víkurfréttir - 01.11.1984, Síða 14
14 Fimmtudagur 1. nóvember 1984 VÍKUR-fréttir Lmda Emarsdottir, Kristm Kristmsdóttir, Anita Inga Arnar- dóttir og Svava Sandra Björnsdóttir héldu hiutaveitu að Kirkjuteig 5 i keflavik og gáfu ágóðann, 1.516 kr„ til Þroskahjálpar á Suðurnesjum. Eldur í potti Kl. 18.25 sl. sunnudag var slökkvilið Brunavarna Suð- urnesja kvatt út að Græna- garði 6 í Keflavík. Áður en slökkviliðið kom á staðinn kom tilkynning þarsem það var afturkallað. Hafði eldur komið upp í potti á eldavélinni og voru krakkar einir heima. Settu þau lokiðá pottinn og hlupu síðan eftir hjálp. Með þessu sýndu þau einu réttu við- brögðin og því slokknaði eldurinn af sjálfu sér, án þess að valda öðru en brælu. - epj. §Alþýðuflokks- félag Keflavíkur heldur almennan félagsfund, sunnudaginn 4. nóvember n.k. kl. 13.30 í Bárunni, Hring- braut 106. - Dagskrá: 1. Umræöur um landsmál 2. Umræður um bæjarmál 3. Kosning fulltrúa á 42. flokksþing Al- þýðuflokksins, sem haldið verður 16., 17. og 18. nóvember 1984. 4. Önnur mál Stjórnin Til sölu þessi glæsilegi bíll, hlaðinn aukahlutum BMW 728 árg. '78 með sóllúgu, lituðu gleri, höfuö- púðum fram í og aftur í, vökvastýri, beinskiptur, raf- magnsspeglar, læst drif, álfelgur, pirellidekk o.fl. Skipti möguleg á ódýrari, ca. 450-500 þús. kr. bíl. Uppl. í sima 1109 í dag og næstu daga. Gólfslípun - Steypuvinna Tökum að okkur að leggja steypu og gólf- slípun. Önnumst alla undirbúningsvinnu. - Föst tilboð. - GÓLFSLÍPUN SF., sími 3708 og 1945 Einar Torfi ATVINNA Lagermann vantar nú þegar á vörulager Rafmagnsverktaka Keflavíkur hf. Góð enskukunnátta skilyrði. Umsóknum skal skilað á skrifstofu Kefla- víkurverktaka, Keflavíkurflugvelli. Rafmagnsverktakar Keflavíkur hf. Ráðningamál ríkisins á Keflavíkurflugvelli: Heimamaður - Aðkomumaður SOLUD RADIAL VETRAR- DEKK eBttSCÖB f Brekkustígur 37 Njarðvík. Sími 1399. Þeirri skoðun hefur oft verið á lofti haldiö, að Suð- urnesjamenn ættu að hafa forgang að störfum á Kefla- vikurflugvelli. Flestumeref- i laust kunnugt um samn- inga þá sem í gildi eru á milli verkalýðsfélaganna á Suðurnesjum annars vegar og Flugleiða, Aðalverktaka og Oliufélagsins hins vegar, um forgang verkafólks af Suðurnesjum. En hvernig { er þessu varið á öðrum is- lenskum vinnustöðum á Vellinum? Þarna eru all- margar ríkisstofnanir og þar á meðal allstórir vinnu- staðir eins og tollgæslan, fríhöfnin og lögreglan. Margur Suðurnesjamaður- inn hefur litið lausar stöður þar hýru auga og ófáir hafa þar sótt um með misjöfn- um árangri. Sumir hafa hlotið þurrt og þrifalegt starf í skjólgóðum faðmi ríkisins, en aðrir hafa fengið neikvæðar undirtektir og síðan horft upp á „utanbæj- armann" hreppa hnossið. Ýmsii hafa tilhneigingu til þess að afgreiða svo málið með upphrópunum einsog: „klíka, pólitísk tengsl, hann/hún er náskyld(ur) ráðherra, sendiherra, bæj- arstjóra, biskupi eða þing- manni" eða að viðkomandi sé „flokksbundinn íhalds- krataframsóknarkommi". Kjarni málsins er að sjálf- sögðu sá að ráða skal hæf- asta manninn sem býðst. Um það ættu allir að geta verið sammála. Sá mögu- leiki er einnig fyrir hendi að hæfasti maðurinn sé að- komumaður (ólíklegt, en fræðilegur möguleiki). Einnig hefur sú skoðun heyrst, að ekki sé rétt að tala um sérstakt atvinnu- svæði þegar ríkið sé annars vegar, vegna þess að ríkið sé jú allra eign. Þar af leið- andi eigi Raufarhafnarbú- inn sama rétt og Njarðvik- ingurinn á stööu hjá ríkinu, hvort sem sú staða er kenn- arastaða á Djúpuvík eða tollvarðarstaða á Vellinum. Við hjá Víkur-fréttum reyndum að kanna hvort einhverjar starfsreglur væru til frá utanríkisráðu- neytinu varðandi ráðning- ar hjá fríhöfn og löggæslu á Keflavíkurflugvelli, en þess- ar stofnanir heyra undir varnarmáladeild. Eftir þvi sem næst verður komið ræður fríhafnarstjóri mestu a.m.k. þegar um afleysings- störf er að ræða og hefur haft þá megin stefnu að láta Suðurnesjamenn ganga fyrir hin síðari ár. Þarna er að mestu um almenn versl- unarstörf að ræða og þótt krafa sé gerð um tungu- málakunnáttu virðist vera nóg framboðaf slíku fólki úr röðum heimamanna. öðru máli gegnir um löggæsl- una. Lögreglan er bundin reglugerð um svokallaða valnefnd. Valnefnd fjallar um allar umsóknir og gerir síðan tillögur um ráðningu eða lýsir menn óhæfa til starfa. Tekið er tillit til ým- issa þátta við valið, t.d. líkamlegs atgervis, mennt- unar, starfsreynslu o.fl., og að sjálfsögðu þarf mann- orðið að vera flekklaust. Búseta manna er látin liggja á milli hluta. Tollgæslan fellur ekki undir umrædda valnefnd. Að vísu mun fyrir- finnast álíka reglugerð verðandi ráðningar á toll- vörðum, en hún hefur enn ekki verið notuð. Ráðning- ar þær eru því alfarið á valdi lögreglustjóra og varnar- máladeildar og ekki þarf að taka fram að ráðherra hefur svo síðasta orðið i þessum málum öllum. Látum einn viðmælanda okkar hafa lokaorðið: „Mér finnst ótrúlegt að ekki megi finna hæfa menn úr hópi heimamanna í flestar stöður hjá rikinu innan flug- vallarsvæðisins. Suðurnes eru svo stórt atvinnusvæði. Enda þótt eitthvað hafi kannski dregið úr pólitísk- um stöðuveitingum, þá eru þær ekki úr sögunni. Er nokkurt vit í því að láta menn aka 100 km á dag úr og í vinnu, þegar nóg er af hæfum mönnum á næstu slóðurn?" - e.h. Gáfu til Þroskahjálpar Ásta Karlsdóttir Olsen, Dagný Helga Hafsteinsdóttir, Sig- rún Bolladóttir, og i fremri röð f.v.: Laufey Guðbjörg Jó- hannesdóttir, Ragnhildur Berta Bolladóttir og Sædis Bára Jóhannesdóttir, héldu hlutaveltu og söfnuðu 500 kr„ sem þær létu renna til Þroskahjálpar á Suðurnesjum.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.