Víkurfréttir - 17.01.1985, Page 3
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 17. janúar 1985 3
Innheimta 1984:
Betri í Njarðvík
Verri í Keflavík en árið 1983
Njarðvíkingar eru dug-
legir að borga gjöldin sin.
Innheimta á síðasta ári var
85,7%, var 78,9% árið I983
og 66,8% árið 1982. Stöðug
aukning hjá Njarðvíkingum.
Að sögn innheimtustjóra
bæjarins, Auðar Ingvars-
dóttur er staða bæjarsjóðs
mjög góð.
Keflvíkingar slökuðu
aftur á móti á klónni. (sam-
tali við Sæþór Fannberg,
bæjarritara, sagðist hann
ekki vera kominn með end-
anlegar tölur. „Lauslega
reiknað er þetta 75,7% inn-
heimta 1984 en var 80,6%
1983. Þetta gæti þó breytst
lítillega þó svo að innheimt-
an nái aldrei sama og 1983“
sagði Sæþór.
Hvernig er staða bæjar-
sjóðs? „Lausafjárstaðan er
ekki góð vegna svo slakrar
innheimtu". -pket.
Verkalýðsfélag
Grindavíkur:
Ný stjórn kjörin
Ný stjórn var kjörin á síð-
asta aðalfundi Verkalýðs-
félags Grindavíkur. Nýr for-
maður er Benóný Bene-
diktsson, ritari Erling Krist-
insson og gjaldkeri Sigrún
Pálsdóttir.
Félagar eru á milli 2-300.
epj.
Fréttaritari DV:
Athugasemd við furðuskrif
i siðustu Vikur-fréttum birtist
bréf þar sem undirritaöur er
gagnrýndur fyrir fréttaskrif sín í
DV. Undir þetta bréf skrifar ein-
hver sem kallar sig „Suður-
nesjabúa". Ég er nú ekki vanur
því að taka.nærri mér gagnrýni,
en þegar hún er óréttmæt þá
get ég ekki setið aðgerðarlaus.
Því ætla ég að svara með þess-
um bréfstúf.
Bréfritari gerir athugasemdir
við þrjár fréttir mínar. Sú fyrsta
er um söluna á m.s. Jóni Finns-
syni til Chile, hann segir mig
hafa lesiö hana í Mogganum.
Þaö rétta er að ég talaði við
eiganda skipsins og sendi inn
þá frétt. Þeir á DV töldu hana
fréttnæma og notuðu hana.
Hvort hún hafði sést einhvers
staðar áður, það veit ég ekki
um, en hins vegar veit ég ekki
betur en að hver éti upp eftir
öðrum í þessum bransa. Sums
staðar þykir það best hrátt.
í athugasemd við frétt númer
tvö er einmitt verið að vænaum
aö gleypa hráa villu úr Víkur-
fréttum. Bréfritari segir að ég
detti í þá gildru að skrifa orð-
rétt upp úr Vikur-fréttum, um
að skipstjóri einn hér í bæ ætti
aðeins nokkra daga tit að fylla
sjöunda tuginn. Þetta gerði ég
hins vegar ekki, því orðrétt
hljóðar þessi kafli i frétt minni:
Skipstjórinn á Reykjaborginni
er Óskar Jónsson, gamalreynd-
ur kappi, sem er að verða sjöt-
ugur. Hvergi er minnst á daga
og ekki heldur mánuði. Enda
vissi ég eins og margir fleiri um
þessa prentvillu í Víkur-frétt-
um. Suðurnesjabúi verður að
lesa fréttirnar, ef hann ætlar að
gagnrýna þær, það er nú lág-
markskrafa. Það þýðir ekkert
að giska á hvað hafi staöið í
fréttinni.
Þá er komið að áramótafrétt-
inni, það er sú þriöja, ósköp
stutt, en fer samt fyrir brjóstið á
bréfritara. Þar verð ég að játa á
mig smámistök, enginn er full-
kominn, ekki einu sinni ég. Það
er varöandi áramótabrennurn-
ar, því auðvitaö var kveikt í
brennum í Innri-Njarðvik og
líka uppi á löavöllum. Vil ég
nota tækifæriö og biðja hlut-
aöeigandi afsökunar á því að
hafa ekki komið og horft á þær.
Þarna lenti ég i þvi að fá upplýs-
ingar sem ekki stóðust. Ég vil
hins vegar ekki játa á mig mis-
tök varöandi rigninguna, hún á
þaö ekki skiliö, blessunin.
Þannig er, að ég horfði á og tók
þátt í flugeldaskytteríinu, ná-
grönnunum til hrellingar. Og á
meðan ég var að skjóta þessu
öllu upp þá var hellirigning.
Þetta skeði sitt hvorum megin
við áramótin. Það er nú svo
með rigninguna aö hún er
blaut, og ég blotnaöi eins og
svo margir fleiri, Hvort bréfrit-
ari blotnaði fyrir eða eftir ára-
mót, læt ég mér í léttu rúmi
liggja, hann má vera rakur enn
ef hann vill.
Varðandi það hvort ég verð
góður fréttaritari, þá á það eftir
að koma í Ijós, við verðum að
vona það besta. Það er svo
margt sem betur máfara íþess-
um heimi, sjálfsagt eiga mér
eftir að verða á mistök, annað
væri óeðlilegt.
Ef þú hins vegar skyldir ein-
hvern tíma koma fram i dags-
Ijósiö, þá þætti mér vænt um aö
fá að spjalla við þig um fréttir
og fréttamat, og ýmislegt fleira.
Hins vegar ætla ég ekki að
fara að gera þig aö pennavini i
gegnum Víkur-fréttir, ég hef
annaðviðtímannaðgera. Þetta
veröa mín lokaorð i þessu máli.
Ómar Jóhannsson,
fréttarltari DV
© X8;
í Stapa, föstudaginn 18. jan. n.k. - Hljóm-
sveitin MIÐLARNIR leika fyrir dansi frá kl.
22-03. - Eldri og nýir félagar velkomnir.
Miðasala hjá Sigga og Gauju að Hrauns-
vegi 6, sími 2576.
Stjórnin
Eignamiðlun Suðurnesja
Grenlteigur 33, Keflavfk:
Um 140m2raðhúsásamtbílskúr, nýtt
þak á húsinu, nýtt verksmiðjugler
o.fl. Skipti á ódýrari eign möguleg.
2.500.000.
Glæsilegt Viðlagasjóðshús v/Heima-
velli, minni gerð, stendur sér. Mjög
góður staður.
v\\ \ \ \ I II///
" S'OLBAÐS- &
frá BootS.
SGIaEY
simi 7747
S UÐURGÖTU 16, SANDGERÐI
Opið mánud. til föstud. frá kl. 11-22
______ Laugardaga frá 9- 18.
EVerið ávallt velkomin._________
VfSA
Greiðslukortaþjónusta
Við bjóðum
gestum okkar upp
á frítt Make-up um
leið og kynning
fer fram.
Brekkustígur 19, Njarðvfk:
Um 117 m2 neðri hæð í nýlegu tvíbýli.
Sér inng., hugguleg eign á góðum
stað. 1.850.000.
SNVRTIVÖRUKYNNlNG.
Laugardaginn 19.
jan. n.k. frá kl.
11-16. - Leiðbeint
verður um val
og meðferð á
K°7 snyrtivörum
Klapparstigur 9, Njarðvik:
Um 85 m2 efri hæð, steinsteypt, sér
inng., ný eldhúsinnrétting, verk-
smiðjugler o.fl. 1.300.000.
Norðurvellir 50, Keflavik:
Glæsilegt endaraðhús, um 135 m2,
að mestu fullgert. Allar innréttingar
Ijósar, parket á gólfum, arinn í stofu,
heitur pottur á verönd. 3.250.000.
Klrkjuvegur 42, Keflavfk:
Um 70 m2 neðri hæð með sér inng.
öll nýlegatekin ígegn, máluö, parket
á gólfum, flísalagt o.fl. Mögulegt að
taka bíl upp í kaupverð. 1.080.000.
Hafnargötu 17 - Keflavik
Sfmar: 92-1700, 92-3868
Fasteignaviöskipti:
Hannes Arnar Ftagnarsson
Sölustjóri:
Siguröur Vignir Ragnarsson
ATH: Erum nú fluttir með starfsem-
ina að Hafnargötu 17, Keflavfk, efri
hæð til vinstri. - Verið velkomin.
BÆTT AÐSTAÐA
BETRI ÞJÓNUSTA.
Eignamiðlun
Suðurnesja