Víkurfréttir - 21.11.1985, Page 15
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 21. nóvember 1985 15
Sú tillaga var borin upp í
Tónlistarfélagi Miðnes-
hrepps í haust, að athuga
áhuga fyrir því hjá tónlist-
arskólunum á Suðurnesj-
um að sameinast um tón-
leika í tilefni árs æskunnar
og árs tónlistarinnar í
Evrópu. Skólastjórar voru
boðaðir á fund og áhugi
þeirra var slíkur að allt var
sett í fullan gang til undir-
búnings. Hugur þeirra stóð
líka ennþá hærra og vildu
þeir gera meira úr þessu.
Því var ákveðið að efna til
tónlistardaga eina helgi,
sem var ákveðin 23. og 24.
nóvember.
A laugardag verða
tónleikar í Félagsbíói kl. 16
Þar koma fram nemendur á
ýmsum stigum frá öllum
Tónlistardagar æskunnar á Suðumesjum
skólunum. Dagskráin verð-
ur því mjög fjölbreytt og
byrjar með því að Lúðra-
sveit Tónlistarskóla Njarð-
víkur leikur í u.þ.b. 15 mín.
á meðan fólk kemur í sal-
inn. Síðan opnar sveitin
tónleikana og þá tekur við
einleikur á orgel og píanó,
leikið verður fjórhent á
píanó, einleikur á fiðlu,
trompet og þverflautu með
píanóundirleik, samleikur
á þrjár þverflautur, tvær
básúnur, forskóladeildir
leika söng-tríó (sóp., sóp.,
alt), málmblásarakvintett,
lítil hljómsveit, bjöllukór
barna, bjöllukór skipaður
kennurum og nokkuð
lengra komnum nemend-
um. Tónleikunum lýkur
síðan með samleik lúðra-
sveitar skipaðri nemendum
úr öllum skólum.
Að tónleikunum loknum
geta nemendur farið beint í
Holtaskóla, þar sem seldar
verða samlokur og drykkir,
en kl. 19.30 hefst þar kvöld-
vaka með skemmtiatriðum
og að lokum dansi til kl. 23.
A sunnudag er opið hús í
Holtaskóla fyrir nemendur
úr tónlistarskólunum.
Skólinn opnar kl. 12.45. I
einni álmu skólans verður í
gangi til kl. 17 eftirfarandi:
Blásturshljóðfærakynn-
ing, strengjahljóðfæra-
kynning, slagverkshljóð
færakynning, bjöllukórs-
kynning, kynning á tónlist
frá Afríku, kynning á raf-
magnshljóðfærum (synth-
esizerum), kvikmyndasýn-
ingar, danshljómsveit verð-
ur í gangi og á sal verður
dans-stúdíó.
Það eru kennarar við tón-
listarskólana sem sjá um
framkvæmd þessara tón-
listardaga, en margir aðrir
leggja lið. Við fáum mjög
fært fólk til aðstoðar við
opna húsið, m.a dansinn,
tónlist frá Afríku, slag-
verkskynningu, rafmagns-
hljómborðakynningu, og
nemendur Holtaskóla verð-
ur með danshljómsveitina.
Einnig verður Nemendafé-
lag Holtaskóla með veit-
ingasölu á staðnum. Þá ber
að koma fram þakklæti til
verkalýðsfélaganna fyrir að
leggja Félagsbíó til án
greiðslu og þakklæti til
Holtaskóla fyrir afnot af
skólanum.
A Suðurnesjum eru starf-
ræktir sex tónlistarskólar
og er nemendafjöldi í þess-
um skólum samtals 520.
Aldrei áður hafa nemend-
ur úr skólunum hist allir á
sama stað og er það von
okkar sem að þessu stönd-
um að foreldrar hvetji börn
sín til að taka þátt í þessari
helgi. Dagskráin á sunnu-
dag er eingöngu ætluð nem-
endum, en tónleikarnir á
laugardag eru ókeypis og
öllum opnir á meðan hægt
er að troða í húsið.
(Fréttatilkynning)
Heimamenn hafa áhuga
fyrir m.s. Helga S.
Um þessar mundir er að
ljúka viðgerð hjá Skipa-
smíðastöð Njarðvíkur á
m.s. Helga S. KE 7, og mun
Fiskveiðasjóður því aug-
lýsa eftir tilboðum í skipið á
næstunni.
Er vitað um aðila bæði
hér á svæðinu svo og utan
af landi, sem lýst hafa
áhuga á að bjóða í skipið.
Vonandi tekst að halda
skipinu innansvæðis. - epj.
A: XENON HV 03 myndbandstækið er nýtískulegt, full-
komið og í mjög háum gæðaflokki. Jólatilboðsverð kr.
39.900, með þráðlausri fjarstýringu.
B: ORION VM fjölnota myndbandstækið er hvort
tveggja í senn heimilis- og ferðamyndbandstæki. Af-
notaréttur af vandaðri myndatökuvel fylgir. Varðveitið
lifandi minningar með ORION VM. Jólatilboðsverð að-
eins kr. 57.900.
C: ORION HiFi. Topptækið í dag. Afbragðs myndgæði.
HiFi stereo hljómburður. Tæki á úrvalsgóðu jólatilboðs-
verði, aðeins kr. 64.900.
FRÍSTUND _
Holtsgötu 26, Njarðvík
kynnir: ulUf^
er jólatilboð okkar.
Úrval af hljómtækjum, sjónvörpum og
myndbandstækjum.
Seljum einnig útvarpstæki, útvarpsklukkur,
síma, tölvuúr og vasatölvur frá CASIO.
Frábært úrval af mynd-
böndum í VHS og BETA.
I SUÐURNESJAMENN!
Höfum tekið að okkur
söluumboð fyrir
*— fii inFEFioiR
1= SOLRRFLUC
á Suðurnesjum.
Seljum farseðla hvert
á land sem er.
F: Súper sjónvarp frá XENON, fyrir þá sem vilja
stóra mynd og hljómburö eins og hann gerist bestur.
22" skermur, 40 w. HiFi-stereo hljómmögnun, ein-
stök hljómgæði og þrír glæsilegir úrvalskostir: val-
hnotuviður, hvítt og svart. Þráðlaus fjarstýring fylgir
þessu úrvals tæki. Jólatilboðsverð aöeins kr. 39.900.