Víkurfréttir


Víkurfréttir - 05.12.1985, Blaðsíða 13

Víkurfréttir - 05.12.1985, Blaðsíða 13
VIKUR-fréttir Fimmtudagur 5. desember 1985 13 Fimmti tapleikur IBK f röð Haukar sigruðu ÍBK í úrvalsdeild körfuknatt- leiksins um helgina með 84 stigum gegn 70. Haukarnir áttu ekki í vandræðum með mjög slappa Keflvíkingana. Fyrri hálfleikur var nokkuð jafn framan af og var munurinn sjaldan meiri en 3-5 stig. En eftir því sem á leikinn leið þá sigu Haukarnir meira og meira fram úr og var staðan í hálfleik 31-42, Haukum í vil. Seinni hálfleikur varfyrir Haukum eins og köttur og mús (þeir í hlutverki katt- arins). Þeir hreinlega rúll- uðu Keflvíkingum upp með stórgóðum varnarleik sem endaði oftar en ekki með 5ví að Keflvíkingar réttu neim boltann á silfurfati. Þegar um 4 mín. voru liðn- ar af seinni hálfleik kom leikkafli hjá Haukunum sem mjög líklega gerði út um leikinn því á örfáum mínútum breyttu þeir stöðunni úr 35-46 í 38-62. Eftir þetta virtust Haukar- nir slaka á. Keflvíkingar notfærðu sér afslöppun Haukanna og löguðu stöð- una þannig að hún var orð- in 77-65. Loksins virtist eitthvert lífsmark með Keflvíkingum, upp var komin barátta og áhugi á að vinna leikinn en þá slógu Keflvíkingar í gegn með glæsilegri innáskiptingu. Baráttan var hreinlega tek- in út af og gamalt blóð sett inn á. Leikurinn breyttist lítið við þessa innáskipt- ingu og endaði leikurinn eins og áður sagði 84-70 Haukum í vil. - gjó. Úrvalsdeild - Valur-UMFN 93:95 Góður sigur Njarðvíkinga UMFN vann góðan sigur á Valsmönnum, 95:93, í spennandi leik, er liðin áttust við í úrvalsdeildinni í Seljaskóla sl. sunnudag. Hreiðar Hreiðarsson tryggði Njarðvíkingum sig- ur úr tveimur vítaskotum er 3 sek. voru eftir af leiknum. Staðan í leikhléi 44:38 fyrir Val. Leikurinn var mjög jafn framan af, þó höfðu Vals- menn oftast yfirhöndina og náðu góðum kafla um miðj- an hálfleikinn. UMFN náði aðeins að minnka muninn fyrir leikhlé og staðan í hálfleik var 44:38 fyrir Val. Valur byrjaði betur í seinni hálfleik en þegar líða tók á hálfleikinn náðu Njarðvíkingar að saxa á forskotið og komast yfir á lokasekúndunum. Loka- tölur 95:93 fyrir Njarðvík. Bestir í liði Njarðvíkur voru þeir Jóhannes og Valur, en samt fór Valur seint af stað og skoraði ekki nema 6 stig í fyrri hálfleik. Stig UMFN: Valur 34, Jóhannes 22, ísak 11 og aðrir minna. - ghj. ísak átti ágætan leik með UMFN sl. helgi. ... og lestu þessa auglýsingu. Hjá okkur færðu öll stærstu merkin á einum stað. FACO • RADÍÓBÚÐIN • HITATCHI •■ SJÓNVARPSBÚÐIN 0FISHER Hljómflutningssam- stæður, sjónvörp, myndbandstæki, ferða-, út- varps- og segulbandstæki, vasadiskó. I ■ I K I Sjónvarpstæki. 0HITACHI Ferðatæki, myndbands- tæki, sjónvörp, ryksugur. JVC HiFi Myndbandstæki, monitorar, ferðatæki, video upptökuvélar, hljómflutnings- tæki. »»*Hljómflutningstæki. ScLnSlLL. Hljómflutningstæki, vasadiskó. NORDMENDE Sjónvarpstæki, vasadiskó, hljómflutningstæki. Bang&Olufsen Sjónvörp, hljómflutnings- tæki. ^jpenlech Útvarpsvekjaraklukkur vasadiskó, ferðatæki. Canon Myndavélar, linsur, video- upptökuvélar. PENTAX Myndavélar. FUJI Filmurog myndbönd. AATARI Tölvur. JBL, NAGAMITCHI, NAD og PROTON frá Hljómtækjaverslun STEINA. VHSVIDEO SJÓNVARPSBÚÐIN KEFLAVÍK Hafnargötu 54-sími 3634

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.