Fréttabréf - 01.12.1983, Side 3
3.
Deildarfundum var slitið kl. 4 samkvæmt venju á
mánudögum vegna þingflokksfunda. Við þrjár fengum okkur
kaffi og víðfrægar pönnukökur í kaffistofunni, áður en
við fórum yfir í Þórshamar til fundar við Sigríði Þorvalds
og Helgu Hauks, sem mættu að venju.
Miklar umræður urðu um bjór, en fyrir fundinum lá
beiðni um afstöðu til þingsályktunartillögu um þjóðar-
atkvæðagreiðslu um bruggun og sölu á léttum og millisterkum
bjór. Engin okkar reyndist hafa áhuga á að stuðla að
málinu. Annars fór mestur tíminn í að skýra hver fyrir
annarri, hvernig störf hefðu gengið í nefndum.
Um kvöldið var félagsfundur Reykjanesanga í Hafnar-
firði, góður og fjörugur fundur, sem lauk samkvæmt venju
ekki fyrr en nokkru eftir miðnætti.
ÞriðjudaRur 22. nóv. Fundur í fjárv.nefnd frá kl. 8.15.
Til viótals fulltrúar frá Skipaútgerð ríkisins, Landakots-
spítala, Sauðfjárveikivörnum og Heyrnar- og talmeinastöðinni.
K1. 2 fundur í sameinuðu þingi, fyrirspurnir. Þessir
fundir eru venjulega fjörugir og áheyrilegir, ekki síst
vegna þess að ræðutíminn er takmarkaður, svo að menn
komast ekki upp með málalengingar.
M.a. svaraði Steingrímur fyrirspurn um kostnað af
kynningu á efnahagsaðgerðum ríkisstjórnarinnar,
þ.e.a.s. reisu hans sjálfs um landið og bæklingnum fræga.
£g gat ekki stillt mig um að leggja þar orð í belg, enda
hneyksli að ríkissjóður sé látinn borga áróður stjórnar-
flokkanna.
Guðrún var með fyrirspurn um eftirlit með þjónustu-
gjöldum bankanna og Jóhanna um byggingu bankaútibúa, og
urðu athyglisverðar umræður um hvort tveggja.
Ég átti að vera mætt á fund í fjárveitinganefnd
kl. 4, en tímdi ekki að fara, fyrr en ég hafði heyrt
svar menntamálaráðherra við fyrirspurn um Islandssögu-
kennslu og sannfærst um, að hún og aðrir þingmenn ætluðu
ekki að rífa niöur allt það mikla starf, sem unnið hefur
verið í þessum málum.
Fundur f j árveitinj’anefndar stóð til kl. 8 um kvöldið.
Þá höfðum við hlustað a ful1trúa:1andshafnarinnar í Þorláks-
höfn, Búnaðarsambands Suðurlands, öryrkjabandalagsins,
Leikfélags Reykjavíkur, Neytendasamtakanna, öryggismálanefndar ,
Norræna búvísindafélagsins, Jafnréttisráðs, Landssambands
hestamanna og Kröfluvirkjunar.
Miðvikudagur 23. nóv. Borgarstjórinn og fylgdar-
sveinar voru fyrstir á fund nefndarinnar þennan morgun,
en síöan komu menn frá Alinannavörnum, Kennaraháskólanum
og veðurstofunni.
K1. 2 var fundur í neðri deild, þar sem aðallega
var til umræðu frumvarp um ríkismat sjávarafurða. K1. 4
var fundinum frestað vegna þingflokksfunda, en haldið
áfram kl. 8.30 um kvöldið. Forseti er farinn aö boða
fundi neðri deildar á ýmsum tímum til að reyna að þoka
málum áfram, því lítið hefur gengið. Þingmenn eru svo
málglaðir eftir þetta langa hlé i vor og sumar.