Fréttabréf - 01.12.1983, Síða 4

Fréttabréf - 01.12.1983, Síða 4
4 . FimmtudaRur 24, nóv. Iþróttasjóður var fyrstur á dagskrá nefndarinnar, síðan Rannsóknarstofnun landbúnaðarins, Fiskifélag Islands og Orkuráð. Síðan var fundur aftur kl. 1 og pælt, þangað til fundur hófst í sameinuðu þingi kl. 2. Nú er kl. 4.25. Hjörleifur er nýbúinn að ljúka máli sínu um samninginn við Alusuisse. Hann talaði í nákvæmlega tvær klukkustundir. Iðnaðarráðherra er í stólnum, og þar sem ég þarf að mæta á fund í nefndinni góðu kl. 4.30. missi ég af að hlusta á Sirrý Dúnu, sem er næst á mælendaskrá. Meira seinna. Laugardaginn 26. nóv. - Sælar aftur! Fundurinn í fjárveitinganefnd stóð til kl. 11 á fimmtudagskvöldið að frátöldu tveggja tíma matarhléi, og komst ég því ekki á þingráðsfundinn það kvöld. Föstudagur 25. nóv. Enn var byrjað^kl. 8.45 í nefndinni goðu. Til viðræðu komu fulltrúar heilbrigðis- ráðuneytisins og Vita- og hafnarmálaskrifstofunnar. Mér tókst að skella mér í sund í hádeginu og leið strax betur í öxlunum, sem vilja kýtast af þessum miklu fundasetum. K1. 2 hófst fundur í neðri deild, sem er reyndar ekki að ööru jöfnu á föstudögum, því sá dagur á að vera þingmönnum til frjálsrar ráðstöfunar, en líklega er nálgun jólaleyfis þegar farin að hafa sín áhrif. K1. 5-7 var enn nefndarfundur, og þegar ég var að sofna um kvöldið, sá ég ekkert nema tölur fyrir hugskots- sjónum. Það var svona eins og þegar maður hefur verið heilan dag í berjamó. Laugardagur 26. nóv. K1. 9 byrjaði fundur í fjár- veitinganefnd,sem var að enda núna kl. rúmlega 5. Honum lauk með allháværum skoðanaskiptum um, hvenær byrja skyldi á morgun. Niðurstaðan varð að byrja ekki fyrr en kl. hálftvö, og ég varð mikið fegin, því ég get vel hugsað mér aö letipurkast einn morgun. Þetta var þá sýnishorn af viku í lífi fjárveitinga- nefndarmanns. Svona eru þær á þessum árstíma og verða svona, er mér sagt, þangað til fjárlög hafa verið afgreidd. Eftir áramót verður starfið eðlilega allt öðruvísi. Vonandi eruð þið einhvers fróðari eftir þessa lýsingu, þótt hún sé harla yfirborðskennd, og í trausti þess biö ég ykkur vel að lifa. Kristín HalIdórsdóttir

x

Fréttabréf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf
https://timarit.is/publication/1209

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.