Fréttabréf - 01.12.1983, Page 5
5.
Öllum er ljósc að ástand efnahagsmála er mjög slæmt
um þessar mundir. Við óttumst að það muni koma niður á
konum umfram aðra þjóðfélagsþegna.
Hætta er á miklu atvinnuleysi í undirstöðu atvinnu-
greinum og slíkt gæti breiðst út. Samdráttur og lakari
þjónusta í dagheimilismálum og fleiru gerir mörgum konum
; einnig óhægt um vik að vinna úti.
Komi til verulegs atvinnuleysis má búast við áróðri
gegn konum á vinnumarkaói, ljóst eða leynt. Við eigum
eftir að heyra að börn og heimili þurfi meiri ummönnunar
við, karlar þurfi fremur á störfunum að halda o.fl. í
þeim dúr.
Komist málin á svo alvarlegt stig (sem við auðvitað
vonum að verði ekki) eru baráttumál kvenna í mikilli
hættu og margir ávinningar gætu tapast.
En á þessi hræðilega hrakspá erindi í umræðu um
efnahagsmál? Já, því hætta er á að atvinnuleysi kvenna
verði notað sem hagstjórnartæki. Konur sem verða að hætta
störfum vegna heimilisaðstæðna teljast ekki til atvinnu-
lausra.
Verið vakandi stelpur. Höldum fast á málum og víkjum
hvergi. Stöndum vörð um aö þessi leió verði aldrei valin.
Efnahagsmálahópur heldur fundi þriðjudaga kl. 17.30
á Hótel Vík.
^ — __ FRIÐUR! FRIÐUR! FRIÐUR! _
^ 3? ~ & ??
tmsar friðarhreyfinar hafa sprottið upp að undan-
förnu. Við hér x Kvennalistanum höfum verið mjög virkar
á þeim vettvangi.
Friðarhreyfingarnar hafa_í hyggju að fara í þögla
i blysför um bæinn núna fyrir jólin.
Við hvetjum ykkur til að taka þátt í slíkri friðar-
göngu.
Fylgist vel -,eð auglýsingum na. Endanleg dag-
setning hefur e .erið ákveðin
Friðarhreyfing íslenskra kvc ,;em við erum þátt-
takendur í, hefur gefið út fallegt cormmerki. Það veröur
til sölu hér á Hótel-Vík á 30 kr. stykkið.
Ennfremur vilja friðarhreyfingarnar vekja athygli
á að stríðsleikföng eru ekki heppilegasta JÖLAGJÖFIN.