Fréttabréf - 01.08.1991, Qupperneq 7
Nýju fötin keisarans
Eiín Ólafsdóttir lagöi fram svohljóöandi bókun:
Sú blákalda staöreynd blasir nú viö aö meirihluta bor-
garstjórnar hefur mistekist aö koma sér saman um nýjan
borgarstjóra úrsínum hópi. Leitin aö nýjum foringja endaöi í
upplausn.
Kvennalistinn byggir á samráöi í staö foringjastjórnar og hefur
ítrekaö varaö viö hættum af slíkri stjórn. Hrun foringjaveldis
meirihlutans birtist nú í algjörri uppgjöf gagnvart lýöræöislegri
ákvaröanatöku, ábyrgöarleysi og þar meö vanhæfni
sjálfstæðismanna til aö sjórna borginni. Tímaleysi er ekki
frambærileg skýring á þessari niöurstööu, enda trúir henni
enginn. Tilvistarkreppa meirihlutans, sem berskjaldast meö
þessum hætti, hlýtur aö vera alvarlegt umhugsunarefni fyrir
alla Reykvíkinga, en sérstaklega þá, sem talin hefur veriö trú
um að Sjálfstæðisflokkurinn í borgarstjórn sé samhentur
ábyrgur flokkur, sem einum sé treystandi til aö leiöa stjórn
borgarinnar.
ímynd hins trausta samhenta flokks er hrunin og eftir stendur
meirihlutinn berskjaldaöur eins og í ævintýrinu um nýju fötin
keisarans.
IH