Fréttablaðið - 03.09.2016, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 03.09.2016, Blaðsíða 22
Refsingar eru ekki eina lausnin Hörður Jóhannesson aðstoðarlögreglustjóri á fjörutíu ár að baki í lögreglunni. Hann er sannfærður um að mörgum þeirra brotamanna sem urðu á vegi hans hefði mátt bjarga hefðu þeir átt betri æsku. Hann rifjar upp sögur af ung- um mönnum sem urðu á vegi hans á ferlinum og minnir á að á bak við hvert og eitt mál er sársauki. „Það er vandmeðfarið vald sem fylgir þessu,“ segir Hörður og bendir á einkennisbúning sinn. „Þú þarft að geta afklæðst því og verið manneskja.“ Fréttablaðið/GVa Þegar öllu er á botninn hvolft, þá er lífið ekkert flókið. Það er í eðli sínu tiltölulega einfalt, hins vegar er hægt að gera alla hluti flókna,“ segir Hörður Jóhannesson aðstoðarlög- reglustjóri. Hann situr á skrifstofu sinni á Vín- landsleið og hefur útsýni yfir Grafar- voginn sem skartar sínu fegursta þennan síðsumardag. Hörður hefur starfað í lögreglunni í fjörutíu ár. Hann hóf störf sem sumar- starfsmaður vorið 1976. Þá ungur maður í lögfræðinámi. „Það er eitt- hvað við þetta starf og menn finna það strax hvort þeir hafa það sem þarf til að geta verið í lögreglunni. Það sem þú þarft, það lærir þú ekki í skóla. Það á reyndar við um mörg önnur störf. Annað hvort ertu með það eða ekki,“ segir Hörður. að afklæðast valdinu Þeir eiginleikar sem Hörður á við eru kannski ekki þeir sem fólk býst við að séu nauðsynlegir lögreglumanni. „Þú verður að hafa trú á mannsandanum og þú verður að bera virðingu fyrir fólki. Það er vandmeðfarið vald sem fylgir þessu,“ segir Hörður og bendir á einkennisbúning sinn. „Þú þarft að geta afklæðst því og verið mann- eskja.“ Á fjörutíu ára starfsferli sínum hefur hann reynt margt og séð margt. „Það er ekki hægt að ætlast til þess að einhver annar skilji það sem er um að ræða eða geti tekið við því. Ég tek ekki vinnuna með mér heim. Ég hugsa um mig sjálfur. Set reynsluna í hólf. Ég á fullt af hólfum. Svo lærði ég að maður verður að bera ábyrgð á sjálfum sér, bæði andlegu og líkamlegu ástandi og hugsa um sjálfan sig svo maður komist af,“ segir Hörður. Hver er sagan? Hann þekkir brotamennina sem röt- uðu aldrei rétta leið og sögu þeirra. „Það kemur mér ekkert á óvart lengur. Við sem erum búnir að vera lengi í þessu erum búnir að sjá allt og lenda í öllu. Enn þá velti ég því fyrir mér hver saga fólks er,“ segir hann og tekur nýlegt dæmi. „Þá er ein- hver maður á miðjum degi, fallegum eins og deginum í dag. Og hann er í ömurlegum aðstæðum, fullur og búinn að brjóta af sér. Hver er saga þessa manns hugsa ég þá? Af hverju er hann í þessum aðstæðum? Ætti ég að afgreiða hvern og einn eins og vél? Auðvitað getur maður gert það, og gerir það stundum. En það er saga og þá er spurningin, hvað áttu að gera við hana?“ Þegar Hörður var ungur lögreglu- maður vann hann í deild sem tók á brotum ósakhæfra unglinga. Hann er sannfærður um að mörgum þeirra brotamanna sem hafa orðið á vegi hans hefði mátt bjarga hefðu þeir átt betri æsku. „Unglingamálin voru höfð í sér- deild, þá var verið að reyna að halda utan um þau. Börnum yngri en fimm- tán ára var og er ekki refsað. En það þurfti samt að upplýsa um málin og skila skýrslu um þau. Þetta voru strákar, sem voru reknir úr skóla, skammaðir, snupraðir. Það voru allir vondir við þá. Þeir voru lamdir og horfðu upp á allan djöful- inn heima hjá sér. En við vorum ekk- ert vondir við þá, heldur heiðarlegir. Við töluðum við þá eins og menn og vorum oft komnir undir skinnið á þeim. Við vorum oft eina fullorðna fólkið sem talaði við þá eins og menn. Staðreyndin er þessi. Það hefðu ekki svona margir farið út á vafasamar brautir í lífi sínu ef þeir hefðu átt betri og farsælli æsku,“ segir Hörður. refsingar eru ekki lausnin Hann segir samfélagið ekki geta leyst allan félagslegan vanda með refsing- um. „Fólk þarf á öðru fólki að halda, virðingu og vinsemd. Flestir leggja sig fram um þetta. Að rjúfa ekki tengslin. En það verða alltaf einhverjir sem kunna ekki annað en að rjúfa þessi tengsl. Þessir strákar, þetta voru ekki krimmar. Þeir gerðu það sem þeir gerðu vegna félagslegrar stöðu sinnar, af eymd. Hvers ætlast samfélagið til? Að þessu ljúki bara með refsingu? Við þurfum að spyrja okkur, af hverju það verða til nýir fíklar og nýir þjófar. Af hverju börn búa við ömur- legar aðstæður. Er það ásættanlegt að úrræðin séu eingöngu fangelsi og refsing. Eigum við ekki að reyna betri aðferðir? Í hverjum einasta árgangi eru alltaf 3-5% sem munu lenda í vandræðum af einhverju tagi.“ Játningin stóra Hann segir að allt sé mögulegt með góðu samtali og rifjar upp nokkrar sögur úr starfinu með ungu fólki. „Einu sinni mæti ég í vinnuna um átta leytið. Þá eru tveir strákar að bíða eftir mér. Ég kannast við annan þeirra, ég hafði verið með hann nokkrum dögum áður. Hann átti fimmtán ára afmæli daginn eftir og þar með orðinn sakhæfur. Erindi hans var að hann vildi koma og játa öll innbrotin áður en hann yrði sakhæfur. Allt sem hann hafði gert og var með vin sinn með sér sem var með honum í ein- hverjum brotanna. Þarna sat hann og játaði röð brota. Þessi ungi maður kom aldrei aftur við sögu hjá lög- reglunni,“ segir Hörður og brosir við tilhugsunina. Ná ekki að sættast við bernskuna Litlu sigrarnir eru gleðigjafi. Það er nefnilega hægt að snúa við blaðinu. Margir af þeim strákum sem hann hafði afskipti af þegar þeir voru ungir komust yfir erfiðleika sína. „Þeir eru í lagi í dag, margir. En svo kemur einn og einn á óvart. Einn af þeim sem maður hélt að myndi aldrei hætta. Ég hitti einn fyrir fáeinum árum sem var hættur. Ég var sá fyrsti sem hand- tók hann, þá var hann fimmtán ára. Hann var búinn að vera stanslaust í afbrotum og óreglu frá fimmtán ára aldri í þrjátíu ár. En þarna stóð hann og sagði mér að partíið sem stóð yfir í þrjátíu ár væri búið. Ég horfði á hann, hissa. Vildi reyndar óska að ég væri í jafn góðu formi og hann. Hann byrj- aði að hreyfa sig og kom sér á réttu brautina. Fyrir hann var þetta ekki orðið of seint. En fyrir suma er það of seint. Þeir ná ekki að sættast við bernskuna,“ segir hann. „Lengi býr að fyrstu gerð. Það hefði mátt bjarga mjög miklu með því að huga að velferð barna. Fyllerí á heimilinu og allt sem því fylgir,“ segir Hörður og leiðir hugann að aðstæð- um nokkurra ungmenna sem bjuggu við bág kjör. „Ég mætti á helgarvakt á laugardegi. Þetta var held ég um 1980. Þá er einn ungur maður inni sem hafði verið gripinn við innbrot. Ég þekkti Þetta voru strákar, sem voru reknir úr skóla, skammaðir, snupraðir. Það voru allir vondir við Þá. Þeir voru lamdir og h0rfðu upp á allan djöfulinn heima hjá sér Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is lengi býr að fyrstu gerð. Það hefði mátt bjarga mjög miklu með Því að huga að velferð barna. fyllerí á heimilinu og allt sem Því fylgir ↣ 3 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r22 h e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð 0 3 -0 9 -2 0 1 6 0 4 :1 4 F B 1 0 4 s _ P 0 8 3 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 8 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A 7 4 -3 5 D C 1 A 7 4 -3 4 A 0 1 A 7 4 -3 3 6 4 1 A 7 4 -3 2 2 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 1 0 4 s _ 2 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.