Fréttablaðið - 03.09.2016, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 03.09.2016, Blaðsíða 10
Komið,prófið ogsannfærist ! Fyrstu heyrnartækin sem taka eðlilegri heyrn fram í háværu umhverfi Siemens Pure binax eru fyrstu heyrnartæki veraldar sem gera þér kleift að heyra betur en fólk með eðlilega heyrn. Þessi nýju tæki nota háþróaða binaural tækni sem dregur sjálfvirkt fram einmitt það sem þú vilt heyra en síar jafnframt burt eða dempar þau óþarfa hljóð sem þú vilt ekki heyra. Þú getur einnig stefnumiðað hlustunarsviði tækjanna og þannig beint hlustun þinni að einmitt þeirri manneskju sem þú ræðir við hverju sinni. Þannig gera tækin þér auðveldara að halda uppi samræðum í háværu fjöl- menni. Rannsóknir sýna ennfremur að binax tækin greina tal betur í hávaða en fólk með eðlilega heyrn getur. Binax tækin tengjast einnig snjallsímanum þínum svo þú getur stjórnað styrk, hlustunar- kerfum og fleiru í gegnum símann. Siemens heyrnartækin Söluaðili á Íslandi: Heyrnar- og talmeinastöð Íslands, Háaleitisbraut 1, s:5813855, www.hti.is www.bestsound-technology.is Efnahagsmál Matsfyrirtækið Moody's hækkaði í fyrradag láns- hæfiseinkunn íslenska ríkisins um tvö þrep, í A3 úr Baa2. Horfur eru stöðugar. Í umsögn sinni segir Moody's að hækkun um tvö þrep endurspegli hraða og umfang bata þjóðar- búskaparins eftir bankakreppuna 2008. Samfelldur hagvöxtur og aðhald í ríkisfjármálum hafi leitt til verulegrar lækkunar á skuldum ríkissjóðs síðast liðið ár. Moody's býst við að sú þróun haldi áfram. Þetta nýja lánshæfismat leiðir væntanlega til þess að opinber fyrir- tæki eins og Landsvirkjun og Orku- veitan munu eiga auðveldara með að fjármagna sig, en einnig munu einkafyrirtæki eiga auðveldara með fjármögnun. „Þetta þýðir einfaldari fjár- mögnun fyrir þessa aðila og þetta þýðir hugsanlega betri kjör,“ segir Friðrik Már Baldursson, prófessor í hagfræði við Háskólann í Reykjavík. Hann bendir þó á að markaðurinn hafi að einhverju leyti brugðist við betri stöðu Íslands. Lægra skulda- tryggingaálag sýni þetta. Stærstu lánshæfismatsfyrirtækin, auk Moody's, eru Standard & Poor's og Fitch. Friðrik Már segir að þótt Moody's hafi alltaf verið einna jákvæðast gagnvart Íslandi sé lík- legt að hinir aðilarnir fylgi á eftir. Hann segir líka að þótt lánshæfis- matsfyrirtækin hafi beðið hnekki í bankakreppunni 2008, þá hafi álit þeirra enn áhrif á markaðinn. „Þau voru harðlega gagnrýnd og það réttilega. Þeirra tekjur byggðust að verulegu leyti á því að gefa flókn- um fjármálagjörningum, eins og skuldabréfavafningum, einkunnir og þeir gáfu þeim einkunnir sem reyndust síðan allt of góðar. Þau gáfu líka íslensku bönkunum allt of góðar einkunnir,“ segir Friðrik. Þrátt fyrir það sé staðan enn þannig að þegar Ísland fer í A-flokk þýðir það  að  fjárfestum sem geta fjárfest í íslenskum skuldabréfum fjölgar. „Það er ennþá byggt inn í kerfið að þeirra álit eru mikilvæg.“ Friðrik Már bendir á að þó að nýtt lánshæfismat sé til marks um þá umbreytingu sem hafi orðið í íslensku efnahagslífi á síðustu árum sé rétt að hvetja til varfærni. „Það þarf að minna á að maður skyldi samt fara varlega og ekki spenna bogann of hátt,“ segir hann. – jhh Hagvexti spáð áfram og að skuldir lækki Moody's hefur hækkað lánshæfismat Íslands um tvö þrep. Horfur sagðar stöðugar. Prófessor í hagfræði segir álit lánshæfismatsfyrirtækjanna enn skipta miklu máli þótt þau hafi beðið hnekki árið 2008. Það þarf að minna á að maður skyldi samt fara varlega og ekki spenna bogann of hátt. Friðrik Már Baldurs- son, prófessor í hagfræði Gríðarleg eyðilegging Íbúar Alligator Point í Flórídafylki í Bandaríkjunum virða fyrir sér skemmdir sem urðu á vegi þegar fellibyl- urinn Hermine gekk á land í gær. Einn lést í ofsaveðrinu, því fyrsta í fylkinu í rúman áratug. Nordicphotos/AFp Ísland er komið í A-flokk sem þýðir að fjárfestum sem geta fjárfest í íslenskum skuldabréfum fjölgar. Prófkjör í dag Hafðu áhrif á framtíðina! Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fer fram í dag laugardaginn 3. september, frá klukkan 10.00 til 18.00. Kosið verður á 4 stöðum í borginni: Í Valhöll, Álfabakka 14a , Hraunbæ 102b og Hverafold 1-3. Nánari upplýsingar um kjörstaði, kjördeildir og frambjóðendur er að finna hér: www.xd.is/profkjor Kosningarétt hafa flokksbundnir sjálfstæðismenn, en 18 ára og eldri geta gengið í flokkinn á kjörstað. Stuðn- ingsmenn Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík eru hvattir til að taka þátt í prófkjörinu og hafa áhrif á framtíðina! S J Á L F S T Æ Ð I S F L O K K U R I N N xd.is Á réttri leið 1. Kjörhverfi Vestur- og Miðbæjarhverfi, Nes- og Melahverfi og Miðbæjar- og Norður- mýrarhverfi. Öll byggðin vestan Rauðarárstígs að Miklubraut. Kjörstaður: Valhöll, Háaleitisbraut 1. Ath.: EKKI er kosið á Hótel Sögu. 2. Kjörhverfi Hlíða- og Holtahverfi, Laugarnes- og Túnahverfi og Langholtshverfi. Öll byggð er afmarkast af 1. kjörhverfi í vestur og suður. Öll byggð vestan Kringlumýrarbrautar að Suðurlands- braut og öll byggð norðan Suður- landsbrautar. Kjörstaður: Valhöll, Háaleitisbraut 1. 3. Kjörhverfi Háaleitishverfi, Smáíbúða, Bústaða- og Fossvogshverfi. Hverfið afmarkast af Kringlumýrarbraut í vestur, Suður- landsbraut í norður og Reykjanes- braut í austur. Kjörstaður: Valhöll, Háaleitisbraut 1. 4. Kjörhverfi Árbæjar- og Seláshverfi, Ártúns- og Norðlingaholt. Kjörstaður: Félagsheimili Sjálfstæðis- félagsins, Hraunbær 102b (við hliðina á Skalla). 5. Kjörhverfi Hóla- og Fellahverfi, Bakka- og Stekkjahverfi, Skóga- og Seljahverfi. Kjörstaður: Félagsheimili Sjálfstæðis- félaganna Mjódd, Álfabakka 14a. 6. Kjörhverfi Grafarvogur, Bryggjuhverfi, Grafar- holt, Úlfarsárdalur og Kjalarnes. Kjörstaður: Hverafold 1-3, 2. hæð. VÖRÐUR, FULLTRÚARÁÐ SJÁLFSTÆÐISFÉLAGANNA Í REYKJAVÍK 3 . s E p t E m b E r 2 0 1 6 l a U g a r D a g U r10 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð 0 3 -0 9 -2 0 1 6 0 4 :1 4 F B 1 0 4 s _ P 0 9 8 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 9 5 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A 7 4 -3 A C C 1 A 7 4 -3 9 9 0 1 A 7 4 -3 8 5 4 1 A 7 4 -3 7 1 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 1 0 4 s _ 2 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.