Fréttablaðið - 03.09.2016, Blaðsíða 95

Fréttablaðið - 03.09.2016, Blaðsíða 95
Síðumúla 34 • 108 Reykjavík Sími 696 5600 • rafsol@rafsol.is ENDURNÝJUN OG VIÐHALD Löggiltur rafverktaki Sími: 696 5600 rafsol@rafsol.is Söngleikurinn Djöflaeyjan var fyrsta frumsýning leikársins í Þjóðleikhúsinu.Helgi magri var frumsýndur norður á Akureyri á föstudagskvöldið. Þórs Ingólfssonar til að koma bæði Bláa hnettinum eftir Andra Snæ Magnason á svið og einnig einleikn- um Jólaflækjunni eftir hann sjálfan. Allar líkur eru á því að sýningarnar verði báðar vel heppnaðar. Hann hefur sýnt á síðustu árum að hann er einn traustasti leikstjóri lands- ins. Borgarleikhúsið hefur stofnað leiklistarskóla fyrir grunnskólabörn undir stjórn Vigdísar Másdóttur. Einstaklega frambærileg hugmynd sem stækkar sviðslistaflóru höfuð- borgarinnar enn frekar. MAk virðist ætla að einbeita sér sérstaklega að yngstu áhorfendunum og frumsýna fjórar barnasýningar en sú stærsta er Núna og Júnía undir stjórn Söru Martí Guðmundsdóttur en hún og Sigrún Huld Skúladóttir skrifa verkið. Píla pína stökk fram á sjónarsviðið með þeirra hjálp og vonandi verður þessi sýning enn betri. Klassísk jól Ingvar E. Sigurðsson snýr aftur á stóra sviðið í Þjóðleikhúsinu og tekst á við aðalhlutverkið í Óþelló, í splunkunýrri þýðingu eftir Hall- grím Helgason og leikstjórn Gísla Arnar Garðarssonar. Óþelló er ansi snúið verk í uppsetningu á Íslandi og Vesturport hefur ákveðið að snúa upp á hefðina. Nú leikur kona, Nína Dögg Filippusdóttir, hinn skugga- lega Jagó og Aldís Amah Hamilton, nýútskrifuð frá Listaháskóla Íslands, leikur Desdemónu. Útfærsla Yönu Ross á Mávinum í Borgarleikhúsinu vakti mikla lukku á síðasta leikári en hún fær nú Sölku Völku eftir Halldór Laxness í sínar hendur og er treyst til að stjórna höfuðsýningu leikársins þar í húsi. Þær Yana og Salka Guðmundsdóttir eru skrifaðar fyrir leikgerðinni en Þuríður Blær Jóhannsdóttir, ein frambærilegasta unga leikkona landsins, mun leika þennan kven- skörung. Ólafur Darri Ólafsson snýr aftur í sýningunni og leikhópurinn samanstendur af okkar allra bestu leikurum. Allir í leikhús (og bíó) Svo sannarlega er ástæða til þess að hvetja landsmenn til að leggja við hlustir því að Útvarpsleikhúsið sinnir íslenskri leikritun af alúð og uppsker eftir því. Það er því sérstakt gleðiefni að Sek eftir Hrafnhildi Hagalín var nýlega tilnefnt til evrópsku ljósvaka- miðlaverðlaunanna, Prix Europa. Bíó Paradís má alls ekki gleyma sem heldur áfram að sýna erlendar leiksýningar á hvíta tjaldinu. Þetta er algjörlega ómissandi viðbót við leik- húsmenningu landans sem alltof fáir nýta. Nú um helgina eru síðustu sýn- ingar á Ríkharði þriðja með Ralph Fiennes og Vanessu Redgrave í aðal- hlutverkum sem Almeida-leikhúsið í London setti upp á liðnu sumri. Íslendingar eru þjóða duglegastir að fara í leikhús en líkt og með verk- efnaval stóru húsanna þá má minna leikhúsgesti á að taka oftar áhættu. Þeim mun fleiri sýningar sem lands- menn fjölmenna á, þeim mun meira svigrúm hafa stjórnendur húsanna til að búa til metnaðarfullar og ögr- andi sýningar. Áhorfendur verða að taka virkan þátt í leikhúslífinu, ekki aðeins með því að mæta á sýningar heldur einnig með lifandi umræðu um hlutverk og tilgang leikhússins. Gleðilegt nýtt leikár! Sigríður Jónsdóttir M e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ð 47L A U g A R D A g U R 3 . s e p T e M B e R 2 0 1 6 0 3 -0 9 -2 0 1 6 0 4 :1 4 F B 1 0 4 s _ P 0 9 8 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 9 5 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A 7 4 -3 A C C 1 A 7 4 -3 9 9 0 1 A 7 4 -3 8 5 4 1 A 7 4 -3 7 1 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 1 0 4 s _ 2 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.