Morgunblaðið - 10.10.2015, Qupperneq 24
24 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 2015
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Fern samtök hljóta friðarverðlaun
Nóbels í ár fyrir þátt sinn í því að
vernda lýðræðið í Túnis, landinu þar
sem arabíska vorið svonefnda hófst.
Túnis er jafnframt eina landið þar
sem arabíska vorið hefur leitt til lýð-
ræðis.
Nóbelsverðlaunanefndin í Ósló til-
kynnti að bandalag fernra samtaka,
svonefndur Kvartett, fengi verðlaun-
in í ár fyrir „framlag sem skipti
sköpum“ í því að efla lýðræðið í Tún-
is árið 2013 þegar landið stóð á barmi
borgarastríðs vegna mikillar ólgu í
samfélaginu og togstreitu milli ísl-
amista og flokka sem aðhyllast ver-
aldlegt stjórnkerfi.
Arabíska vorið hófst í janúar 2011
og varð til þess að fjórir einræðis-
herrar í Norður-Afríku og Mið--
Austurlöndum hrökkluðust frá völd-
um. Mótmælaaldan hófst í Túnis og
varð fyrst til þess að forseti landsins,
Zine El Abidine Ben Ali, flúði þaðan
14. janúar eftir að hafa verið við völd
í 23 ár. Um 300 manns biðu bana í
mótmælunum í Túnis.
Stafar enn hætta af íslamistum
Í Kvartettinum eru verkalýðssam-
tökin UGTT, sem eru með rúma
hálfa milljón félaga, samtök atvinnu-
rekenda, mannréttindasamtök og
stéttarfélag lögfræðinga. Hann var
stofnaður árið 2013 þegar útlit var
fyrir stjórnarkreppu og jafnvel
borgarastríð eftir að einn af leiðtog-
um stjórnarandstöðunnar, Chokri
Belaid, var ráðinn af dögum.
Íslamski flokkurinn Ennadha, sem
komst til valda í þingkosningum eftir
fall einræðisstjórnarinnar, var sak-
aður um að hafa staðið fyrir morðinu
og fjórir flokkar hótuðu að draga
fulltrúa sína út úr stjórnlagaþingi
sem hafði verið kosið. Kvartettinn
átti stóran þátt í því að stilla til friðar
og tryggja samkomulag um nýja
stjórnarskrá sem tók gildi í janúar
2014. Beji Caid Essebsi, leiðtogi
flokks lýðræðissinna, sigraði síðan í
fyrstu frjálsu og lýðræðislegu for-
setakosningunum í sögu landsins í
desember sama ár.
Lýðræðinu í Túnis stafar þó enn
ógn af íslömskum ofstækismönnum,
meðal annars liðsmönnum Ríkis
íslams, sem hafa gert tvær mann-
skæðar árásir á ferðamenn í landinu
í ár. Í annarri þeirra létu 22 lífið í
Bardo-safninu í Túnisborg í mars og
38 útlendingar til viðbótar á strönd
milli tveggja hótela í bænum Sousse
í júní. Hryðjuverkin urðu til þess að
ferðamönnum snarfækkaði í landinu.
Hægt að sætta fylkingarnar
Litið er á val nóbelsverðlauna-
nefndarinnar í ár sem táknrænan
stuðning við lýðræðissinna í Túnis.
„Norska nóbelsverðlaunanefndin
vonar að verðlaunin í ár stuðli að því
að lýðræði haldi velli í Túnis og örvi
alla þá sem beita sér fyrir friði og
lýðræði í Mið-Austurlöndum,
Norður-Afríku og öðrum löndum í
heiminum,“ sagði í tilkynningu frá
nefndinni.
Houcine Abassi, leiðtogi verka-
lýðssamtakanna UGTT, sagði að
friðarverðlaunin væru tileinkuð
minningu „píslarvotta“ sem létu lífið
í baráttunni fyrir lýðræði í Túnis.
„Barátta þessa unga fólks hefur gert
landi okkar kleift að snúa baki við
einræði.“
Formaður nóbelsverðlauna-
nefndarinnar, Kaci Kullmann Five,
sagði að starf Kvartettsins sýndi að
viðræður milli íslamskra hreyfinga
og þeirra sem aðhyllast veraldlegt
stjórnkerfi gætu leitt til lýðræðis.
Skipti sköpum
fyrir lýðræði
Samtök í Túnis fá friðarverðlaun Nóbels
AFP
Kvartett Leiðtogar samtakanna ræða við Hollande Frakklandsforseta.
Leiðarljós vonar
» Leiðtogar margra ríkja fögn-
uðu vali nóbelsverðlauna-
nefndarinnar og sögðust vona
að það leiddi til friðar og lýð-
ræðis í löndum á borð við Líbíu
þar sem arabíska vorið leiddi
til stjórnleysis.
» David Cameron, forsætis-
ráðherra Breta, sagði að friðar-
verðlaunin gerðu Túnis að
„leiðarljósi vonar“ í Miðaustur-
löndum og Norður-Afríku.
WAVE Lounge
Skeifunni 8 | Kringlunni | Sími 588 0640 | casa.is
360° snúningur
Leður verð frá
289.000.-
Búist er við miklum hátíðarhöldum
í Norður-Kóreu um helgina vegna
70 ára afmælis einræðisflokks
landsins. Hersýning verður í höfuð-
borginni Pjongjang í dag og gervi-
hnattamyndir af undirbúningnum
bentu til þess að hún yrði ein af
viðamestu hersýningum í sögu
landsins. Leiðsögukona bandar hér
ferðamönnum fyrir utan Stríðs-
safnið í Pjongjang. AFP
Mikil her-
sýning í
N-Kóreu
Rannsóknir á útblæstri dísilbíla sýna að bílar frá Merce-
dez-Benz, Honda, Mazda og Mitsubishi menga umtals-
vert meira á götum úti en í opinberum prófunum. Allir
bílarnir stóðust prófin og ekkert bendir til þess að þeir
hafi verið búnir svindlbúnaði eins og bílar Volkswagen.
Í prófununum hefur m.a. komið í ljós að sumar tegundir
Honda losa sex sinnum meira af nituroxíði en leyfilegt
er. Sumir fjórhjóladrifnir bílar framleiðandans losi tutt-
ugu sinnum meira. Losun bíla annarra framleiðenda er
einnig meiri en reglur kveða á um.
RANNSÓKNIR Á ÚTBLÆSTRI DÍSILBÍLA
Menga meira en prófanir segja
Sumir bílar valda
mikilli mengun.