Morgunblaðið - 27.10.2015, Side 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 7. O K T Ó B E R 2 0 1 5
Stofnað 1913 252. tölublað 103. árgangur
SÝNA LJÓS-
MYNDIR OG
GRAFFÍTILIST
DROTTNING
SEM LAGAR
BÍLVÉLAR
SORGIN SEM
FÓLK VIÐUR-
KENNIR EKKI
BÍLAR SKILNAÐUR 10CEY ADAMS Í GALLERÍ FOLD 33
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Vegalengd Samanlögð lengd veganna
922 sem teknir hafa verið af vegaskrá frá
árinu 2004 er 584 kílómetrar.
Alls hafa verið teknir 922 vegir af
vegaskrá frá árinu 2004. Saman-
lögð vegalengd veganna er alls 584
kílómetrar, en þetta kom fram í
svari Ólafar Nordal innanríkis-
ráðherra við fyrirspurn Líneikur
Önnu Sævarsdóttur, þingmanns
Framsóknarflokksins. Til saman-
burðar eru 578 kílómetrar frá
Reykjavík um hringveginn til
Raufarhafnar.
Algengasta ástæða þess að vegir
eru afskráðir er að sveitabæir
leggjast í eyði og viðkomandi hér-
aðsvegir tengja þar af leiðandi ekki
lengur byggð ból við samgöngu-
kerfið.
Heimild Vegagerðarinnar til að
fella vegi af skrá byggist á ákvæði í
vegalögum. Þegar vegur fer af skrá
telst hann ekki lengur þjóðvegur og
þá er Vegagerðin laus undan
ábyrgð hvað áhærir viðhald
vegarins. »14
Tæplega þúsund
vegir teknir af skrá
á rúmum áratug
Uppskipti á eignum
» Samanlagðar eignir slitabú-
anna þriggja námu tæpum
3.300 milljörðum um mitt
þetta ár.
» Nauðasamningarnir kveða á
um úthlutun þessara verð-
mæta.
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Slitastjórnir föllnu viðskiptabank-
anna telja tímann sem þau hafa til
undirbúnings og framlagningar
frumvarps að nauðasamningi vera á
þrotum. Þrátt fyrir að Seðlabankinn
hafi ekki gefið afdráttarlaus og end-
anleg svör um skilyrði fyrir undan-
þágum frá gjaldeyrishöftum hafa
slitastjórnir LBI og Kaupþings nú
þegar sent kröfuhöfum gögn varð-
andi nauðasamning búanna. Ekki
var hægt að bíða lengur með birtingu
gagnanna vegna þess tímafrests sem
alríkislög í Bandaríkjunum kveða á
um varðandi birtingarfrest gagnvart
þarlendum kröfuhöfum.
Lítið svigrúm til breytinga
Lítið sem ekkert svigrúm er til
þess að gera breytingar á þeim gögn-
um sem nú hafa verið send út. Af
þeim sökum segja áreiðanlegar
heimildir Morgunblaðsins að slita-
stjórnirnar skáki í skjóli þeirrar
vissu að Seðlabankinn muni í raun
samþykkja beiðnir þeirra að lang-
mestu leyti óbreyttar. Geri Seðla-
bankinn það ekki mun stöðugleika-
skattur óhjákvæmilega falla á
slitabúin sem aftur kalli holskeflu
málsókna yfir íslenska ríkið.
MSlitastjórnir gátu ekki »16
Fá ekki svör frá Seðlabanka
Slitabú LBI og Kaupþings hafa sent kröfuhöfum gögn varðandi nauðasamning
LBI frestaði kröfuhafafundi um tvær vikur Telja tímann á þrotum
Morgunblaðið/Baldur Arnarson
Við Gullfoss Margir tóku sjálfs-
myndir við fossinn um síðustu helgi.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Þúsundir erlendra ferðamanna
skoðuðu Gullfoss og Geysi á sunnu-
daginn var og minnti mannmergðin í
veitingasölu og verslunum á ann-
ríkið á bjartasta sumardegi.
Svo mikil er aðsóknin að Gullfossi
að eigendur Gullfoss kaffis eiga fullt
í fangi með að halda í við eftirspurn.
Ný viðbygging Gullfoss kaffis
verður opnuð á næstu vikum. Með
henni stækkar verslunarrými og
sætum í veitingasal fjölgar um 200 í
samtals 600 til 700. Skammt frá
standa yfir framkvæmdir við nýja 20
herbergja álmu á Hótel Gullfossi,
sem verður opnuð í janúar.
Milljón erlendra gesta í ár
Ástdís Kristjánsdóttir, rekstrar-
stjóri Gullfoss kaffis, segir frekari
uppbyggingu áformaða á svæðinu.
„Það má segja að við hlaupum
ekki nógu hratt. Aðsóknin eykst
stöðugt,“ segir Ástdís sem áætlar að
milljón erlendra ferðamanna muni
heimsækja Gullfoss og Geysi í ár.
Jón Harry Njarðarson, eigandi
Hótels Gullfoss, segist finna fyrir
þrýstingi að hafa opið um jólin.
Eftirspurnin í október sé orðin eins
og hún var í september fyrir nokkr-
um misserum og mars sé orðinn eins
og sumarmánuður í gistingunni.
Hann segir styrkingu krónunnar
vera mikið áhyggjuefni.
Sömu sögu er að segja frá Hótel
Selfossi. Nýtingin á herbergjum í
september var 69% en var til
samanburðar 45% í fyrra. »6
Halda ekki í við fjölda ferðafólks
Aðsókn að Gullfossi og Geysi sl. helgi var eins og á sumardegi fyrir fáum árum
Önfirðingafélagið efndi til samverustundar í
Neskirkju í gærkvöldi til minningar um þá 19
sem létust í snjóflóðinu sem féll á Flateyri 26.
október árið 1995. Á vefnum flateyri.is segir að
hugmyndin með samverustundinni hafi fyrst og
fremst verið sú að fólk hittist og hlustaði á
tónlist, hugvekju og svo á hvert annað í kaffi
eftir athöfnina. Einnig var haldin minning-
arsamkoma í kirkjunni á Flateyri.
Fjölsótt minningarstund vegna snjóflóðsins á Flateyri
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tuttugu ár frá harmleiknum á Flateyri
Verkfall SFR
stöðvar afgreiðslu
mála hjá sýslu-
manni. Fyrir vikið
liggur niðri þjón-
usta á borð við þing-
lýsingu skjala, út-
gáfu vegabréfa og
atvinnu- og tækifærileyfa. Ein
birtingarmynd hins ótímabundna
verkfalls er sú að ekki hefur verið
hægt að ganga frá kaupsamn-
ingum, t.a.m. þegar um er að ræða
fasteigna- og bílakaup. »4
Enga þjónustu að
fá hjá sýslumanni
Heimilisskipti
hafa sótt í sig
veðrið samhliða
fjölgun ferða-
manna hingað til
lands.
„Félagsmenn
okkar eru ekki
múraðir inn í
steypuna og
treysta fólki sem
þeir skipta við,“
segir Sesselja Traustadóttir, um-
boðsmaður Intervac-heimilisskipta-
samtakanna á Íslandi. Hún segir að
engir peningar skipti um hendur
við húsaskiptin, aðeins þurfi að
greiða félagsgjald. »8
Skipta á heimilum
við ókunnugt fólk
Skipti Vinsældir
húsaskipta aukast.