Morgunblaðið - 27.10.2015, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 2015
fi p y j g p
C p iar acc o ð lh kl lme va netu-vinaigrette og ettasa ati Grafið lam
með hindberja-vinaigrette og geitaosti Villibráðar-paté prikmeð pa
mauki Bruchetta íreymeð tv
ðlatu hangikjöti, bal- samrau
og piparrótarsósu heBruc
ta með hráskinku, balsam
rægrill uðu Miðjarðar- h a f s g
meti Krabba a- s a l
ðboferskum kryddjurtum í brau
Bruchetta rðameð Miðja
hafs-tapende aRisa- rækj
spjóti með peppadew Silunga hrogn i simeð japönsku majónes
nepsrjóma-osti á bruchettu Birkireykt-ur lax alioá bruchettu með
grillaðri papriku og fetaosti Hörpuskeljar ddju, 3 smáar á spjóti m/kry
taídýfu Frönsk súkkulaðikaka m/rjóma og ferskum berjum ufyVanill
tar vatnsdeigsbollur Súkkulaðiskeljar með jarðarberjum nguKjúkli
satay á spjóti með ídýfu Teryaki-lamb á spjóti RisahörpuskSími 511 8090 • www.yndisauki.is
Möndlu Mix og Kasjú Kurl
er ekki bara hollt snakk. Líka
gott í salatið. Hollt og gott
frá Yndisauka.
Fæst í: Hagkaupum, Heilsuhúsunum,
Melabúðinni, Fjarðarkaup,
Þín verslun Seljabraut, Kjöthöllinni,
Hreyfingu, Garðheimum, Mosfellsbakaríi
og Bakaríinu við brúna Akureyri.
Steingrímur J. Sigfússon sýndium helgina að hann hefur enn
töluverð ítök í VG. Honum tókst
að koma í veg fyrir að Björn Valur
Gíslason yrði settur af og hefur
því enn sinn mann á vísum stað í
forystunni. Og hon-
um tókst líka að
koma í veg fyrir að
landsfundur VG
bæðist „afsökunar á
þætti hreyfing-
arinnar í ferlinu
þegar fyrstu sér-
leyfin voru und-
irrituð 2013 af ráð-
herra Vinstri-
hreyfingarinnar –
græns framboðs.“
En að öðru leytihefur hann
orðið undir í olíu-
málum innan
flokksins, því að VG ályktaði á ný-
afstöðnum landsfundi með skýrum
hætti gegn olíuvinnslu „á íslensku
yfirráðasvæði, þar með talið fyr-
irhugaðri olíuvinnslu á Dreka-
svæðinu.“
Steingrímur segist nú veraánægður með ályktunina og
segist hafa greitt henni atkvæði.
Það er mikil stefnubreyting frá því
Steingrímur beitti sér fyrir þessari
olíuvinnslu og samdi um hana.
En svo má velta fyrir sér hversvirði slíkar ályktanir eru.
Fyrir kosningarnar 2009, rétt eins
og nú, talaði flokkurinn eindregið
gegn aðild að ESB en sótti
skömmu síðar um aðild.
Og bæði núverandi og þáver-andi formaður studdu bæði
núverandi og þáverandi stefnu í
olíu- og ESB-málum.
Og þau munu án efa líka styðjaþá stefnu sem hentar eftir
næstu kosningar.
Steingrímur J.
Sigfússon
Hentistefna VG
STAKSTEINAR
Katrín
Jakobsdóttir
Veður víða um heim 26.10., kl. 18.00
Reykjavík 0 heiðskírt
Bolungarvík -2 léttskýjað
Akureyri -5 heiðskírt
Nuuk -2 snjókoma
Þórshöfn 11 skýjað
Ósló 7 heiðskírt
Kaupmannahöfn 8 heiðskírt
Stokkhólmur 3 heiðskírt
Helsinki 6 heiðskírt
Lúxemborg 12 heiðskírt
Brussel 13 heiðskírt
Dublin 13 skúrir
Glasgow 11 upplýsingar bárust ekki
London 13 léttskýjað
París 13 heiðskírt
Amsterdam 13 heiðskírt
Hamborg 11 heiðskírt
Berlín 11 heiðskírt
Vín 12 skýjað
Moskva 5 skýjað
Algarve 21 léttskýjað
Madríd 15 skýjað
Barcelona 18 léttskýjað
Mallorca 21 léttskýjað
Róm 17 léttskýjað
Aþena 17 léttskýjað
Winnipeg 3 léttskýjað
Montreal 6 skýjað
New York 11 heiðskírt
Chicago 13 skýjað
Orlando 26 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
27. október Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 8:55 17:29
ÍSAFJÖRÐUR 9:10 17:24
SIGLUFJÖRÐUR 8:54 17:06
DJÚPIVOGUR 8:27 16:56
„Heimilisskipti hingað til lands eru-
orðin vinsæl, það fylgir þessari
ferðamannauppsveiflu sem hefur
verið hér á landi. Fólk úti í heimi vill
gjarnan koma til
landsins og fé-
lagsmenn okkar
eru ekki múraðir
inn í steypuna og
treysta fólki sem
þeir skipta við,“
segir Sesselja
Traustadóttir,
umboðsmaður
Intervac-
heimilisskipta-
samtakakanna á Íslandi.
Intervac eru alþjóðleg samtök,
stofnuð árið 1953 og hafa síðan
stækkað mikið, sérstaklega eftir að
vefsíðan intervac.com fór í loftið. Áð-
ur voru gefnir út miklir doðrantar
um íbúðir og hús um allan heim.
Félagar í samtökunum greiða fé-
lagsgjald en greiða ekkert fyrir að
skipta um heimili. Um 30 þúsund fé-
lagsmenn eru í samtökunum um all-
an heim, flestir á aldrinum 35-70
ára.
Ör þróun eftir hrun
Á Íslandi fjölgaði félagsmönnum
mikið eftir hrun. Nafn samtakanna
INTERVAC er sett saman úr orð-
unum international og vacations.
„Ég hjálpa fólki og svara spurn-
ingarum um samtökin. Það varð ör
fjölgun í samtökunum hér eftir hrun
því þá var eins og fólk hætti að
kaupa hlutabréf og byrjaði að kaupa
flugmiða út í heim. Fór að segja:
Eigum við ekki að gera eitthvað
skemmtilegt?“
Sesselja hefur ferðast víða um
heim og boðið fólki sitt heimili í stað-
inn. „Það skipta engir peningar um
hendur en maður eignast marga vini
úti um allan heim, jafnvel þó að mað-
ur hitti fólkið sem ætlar að búa í
húsinu manns í nokkrar vikur.“
Skipta á húsum við ókunnuga
Engir peningar eru í spilunum Int-
ervac-samtökin finna fyrir auknum vilja
félagsmanna sinna til að koma til Íslands
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Eftirsótt Reykjavík er vinsæll áfangastaður Intervac-ferðalanga.
Sesselja
Traustadóttir