Morgunblaðið - 27.10.2015, Page 19
19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 2015
Par Andarparið í Laugardal synti rólega á pollinum og naut veðurblíðunnar, kannski hugsaði það um hvernig ungum sumarsins reiddi af eða hreinlega naut augnabliksins í stillunni.
Ómar
Á undanförnum vik-
um hefur verið unnið
undir miklum þrýst-
ingi að samkomulagi
milli þrotabúa gömlu
bankanna og Seðla-
bankans. Afnám gjald-
eyrishafta er loka-
áfangi fjárhagslegrar
endurskipulagningar
landsins eftir áfallið
2008. Stjórnvöld ættu
að gera nákvæmlega grein fyrir
málinu opinberlega, áður en til óaft-
urkallanlegra skuldbindinga kemur,
eins og heitið hefur verið. Þetta er
risavaxið hagsmunamál almennings
sem verður undir smásjá næst þeg-
ar kosið verður til Alþingis.
Risavaxið hagsmunamál
Gjaldeyrishöftin þarf að afnema
að mestu. Ekki til að afla nýrra
„jöklabréfa“ eins og nú er stefnan,
heldur til að hleypa fé út úr landinu.
Hagkerfið hefur rétt úr kútnum og
sparifjármyndun er og þarf að hald-
ast mikil. Hætt er við nýrri bólu-
myndun ef sívaxandi lífeyrissparn-
aður getur ekki leitað út fyrir
landsteinana og þarf að ávaxtast
eingöngu innanlands. Sú stærð þarf
að vera sveigjanleg til að hjá nýju
bóluástandi verði komist og líklega
mun hærri en nú er gert ráð fyrir.
Stöðugleikaskatturinn, sem Alþingi
samþykkti með lögum, var kynntur
þann 8. júní 2015. Í
stað skattsins stendur
slitabúum gömlu bank-
anna af einhverjum
ástæðum til boða að
greiða svonefnt stöð-
ugleikaframlag, sem á
að uppfylla svokölluð
stöðugleikaskilyrði.
Það á að vera jafngilt
skattinum í þeim skiln-
ingi að það standi með
sama hætti vörð um
hagsmuni heimila og
fyrirtækja. Stöðug-
leikaskatturinn, 39%, átti að skila
850 ma.kr. til ríkissjóðs, en þó
skyldi unnt að fá afslátt til að lækka
skattinn, sem þá yrði alls um 690
ma.kr., gegn bindingu erlends
gjaldeyris í landinu, sem er þá lán-
taka í stað skatts. Seðlabankinn
metur hins vegar stöðugleika-
framlagið samkvæmt tillögum sli-
tabúanna aðeins 334 ma.kr. Þetta
vekur áleitna spurningu um hvernig
slíkt framlag geti verið jafngilt áð-
urnefndum fjárhæðum.
Draumsýn eða veruleiki ?
Afnám gjaldeyrishafta gæti verið
draumsýn sem ekki fær staðist, án
enn meiri yfirtöku á gjaldeyris-
eignum en 690-850 ma.kr., kannski
vel yfir 1.000 ma. Ástæðan er sú að
bólukrónur sem geta ógnað
greiðslujöfnuði er ekki einungis að
finna í sjóðum þrotabúa föllnu
bankanna heldur í djúpum vösum
auðfíkla bólunnar og augljóslega í
krónueignum lífeyrissjóðanna. Það
er útilokað að einhverjir þeirra ráð-
gjafa sem komið hafa að málum hafi
ekki séð þetta. Þeir gætu hafa lent í
þeirri aðstöðu að þegja um stað-
reyndir sem ekki eiga upp á pall-
borðið. Ráðherrar hafa ítrekað sagt
að skref til afnáms hafta séu á
næsta leiti, en skrefin hafa látið á
sér standa. Af máli forsætisráð-
herra á Alþingi nýlega, þegar hann
svaraði fyrirspurnum um stöðu
mála, sýndist mér stefna í átök við
kröfuhafana, fyrst stöðugleika-
framlög og stöðugleikaskattur eiga
að vera jafngild. Hann tiltók og
taldi upp eignir, því miður án talna,
og sagði framlög frá slitabúum
föllnu bankanna í beinhörðu fé
verða aðeins hluta af þeim fram-
lögum sem búin leggja fram og því
ekki rétt að horfa eingöngu til þess.
Einnig verði um að ræða afhend-
ingu ýmissa eigna, framsal krafna,
innlán, skilyrt skuldabréf og hlut-
deild ríkisins í söluandvirði nýju
bankanna. „Þannig að það er mjög
villandi, og raunar bara rangt, að
tala um stöðugleikaframlagið eins
og það sé eingöngu þessi tiltekna
peningaupphæð,“ sagði ráðherrann
sem nefndi engar tölur og ræddi því
miður ekki um gæði þessara eigna.
Þar sem ætlunin er að taka alls
konar eignir sem greiðslu þarf að
gera nákvæmlega grein fyrir gæð-
um þeirra eigna. Jafnvel þarf að
áskilja frekari greiðslur frá kröfu-
höfum, reynist eignirnar minna
virði þegar á reynir, og jafnvel
halda eftir reiðufé því til trygg-
ingar. Munum að allt sem getur far-
ið úrskeiðis mun fara úrskeiðis.
Verðmæti fákeppnisbanka
Fjármálaráðherra var í viðtali á
„Gömlu gufunni“ 21. október. Rætt
var um nýjasta útspil slitastjórnar
Glitnis, að afhenda ríkssjóði Ís-
landsbanka upp í stöðugleika-
framlög. Fram kom að verðmæti
Landsbankans og Íslandsbanka
gæti verið um 400 milljarðar. Verð-
mæti fyrirtækja fer eftir hagnaði
þeirra. Athuga ber í þessu sam-
bandi að fákeppnisfyrirtæki
skammta sér hagnaðinn úr hendi al-
mennings. Hvernig getum við metið
banka á sama hátt og fyrirtæki í
samkeppni í þessu ljósi? Á þjóðin að
meta það hátt sem tekið er af henni
sjálfri?
Mun guð blessa Ísland?
Óveðursský hafa verið að hrann-
ast upp á himni efnahagsmálanna
að undanförnu. Enn þurfum við að
standa í lappirnar, þó að bankakerf-
ið sé ekki í húfi núna. Viðskiptajöfn-
uðurinn er að versna m.v. sama
tíma í fyrra. Við höfum skert út-
flutningstekjur af makríl og leyft
gengi krónunnar að styrkjast, sem
rýrir viðskiptajöfnuðinn. Við höfum
líka hækkað launin of mikið, einu
sinni enn. Verðbólga og vísitala eru
á uppleið og við blasir enn ein koll-
steypan. Halda forystumenn
ríkisstjórnarflokkanna að þessi þró-
un muni færa þeim traust kjósenda
á ný? Uppi eru hugmyndir um að
erlendu kröfuhafarnir fái gríðar-
legar fjárhæðir frá þjóðinni umfram
það sem 39% stöðugleikaskattur léti
þeim eftir. Af hverju? Ekki hefur
verið skýrt frá því. Við megum ekki
gefa eftir þá stöðu sem Neyðarlögin
færðu okkur. Við eigum ekki að láta
sendimenn „hrægamma“ skelfa
okkur til að skerða þá stöðu sem
„íslenska leiðin“ skapaði. Ef til
ágreiningsmála kemur verða þau
afgreidd fyrir íslenskum dóm-
stólum. Það er til nóg af bönkum í
hinum stóra heimi og við munum
bara afla okkur trausts og virðingar
með einurð og stefnufestu. Hinn
valkosturinn er að birtast umheim-
inum á ný sem algjörir vitleysingar
í hagstjórn og fjármálum, sem ekki
hafa lært neitt af sárri reynslu.
Verður komist hjá því? Guð var
beðinn að blessa Ísland fyrir sjö ár-
um. Munum að hann hjálpar þeim
sem hjálpa sér sjálfir.
Eftir Ragnar
Önundarson » „Hvernig getum við
metið banka á sama
hátt og fyrirtæki í sam-
keppni í þessu ljósi? Á
þjóðin að meta það hátt
sem tekið er af henni
sjálfri?“
Ragnar Önundarson
Höfundur er viðskiptafræðingur
og fv. bankastjóri.
Afnám gjaldeyrishafta veldur áhyggjum