Morgunblaðið - 27.10.2015, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 27.10.2015, Blaðsíða 19
19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 2015 Par Andarparið í Laugardal synti rólega á pollinum og naut veðurblíðunnar, kannski hugsaði það um hvernig ungum sumarsins reiddi af eða hreinlega naut augnabliksins í stillunni. Ómar Á undanförnum vik- um hefur verið unnið undir miklum þrýst- ingi að samkomulagi milli þrotabúa gömlu bankanna og Seðla- bankans. Afnám gjald- eyrishafta er loka- áfangi fjárhagslegrar endurskipulagningar landsins eftir áfallið 2008. Stjórnvöld ættu að gera nákvæmlega grein fyrir málinu opinberlega, áður en til óaft- urkallanlegra skuldbindinga kemur, eins og heitið hefur verið. Þetta er risavaxið hagsmunamál almennings sem verður undir smásjá næst þeg- ar kosið verður til Alþingis. Risavaxið hagsmunamál Gjaldeyrishöftin þarf að afnema að mestu. Ekki til að afla nýrra „jöklabréfa“ eins og nú er stefnan, heldur til að hleypa fé út úr landinu. Hagkerfið hefur rétt úr kútnum og sparifjármyndun er og þarf að hald- ast mikil. Hætt er við nýrri bólu- myndun ef sívaxandi lífeyrissparn- aður getur ekki leitað út fyrir landsteinana og þarf að ávaxtast eingöngu innanlands. Sú stærð þarf að vera sveigjanleg til að hjá nýju bóluástandi verði komist og líklega mun hærri en nú er gert ráð fyrir. Stöðugleikaskatturinn, sem Alþingi samþykkti með lögum, var kynntur þann 8. júní 2015. Í stað skattsins stendur slitabúum gömlu bank- anna af einhverjum ástæðum til boða að greiða svonefnt stöð- ugleikaframlag, sem á að uppfylla svokölluð stöðugleikaskilyrði. Það á að vera jafngilt skattinum í þeim skiln- ingi að það standi með sama hætti vörð um hagsmuni heimila og fyrirtækja. Stöðug- leikaskatturinn, 39%, átti að skila 850 ma.kr. til ríkissjóðs, en þó skyldi unnt að fá afslátt til að lækka skattinn, sem þá yrði alls um 690 ma.kr., gegn bindingu erlends gjaldeyris í landinu, sem er þá lán- taka í stað skatts. Seðlabankinn metur hins vegar stöðugleika- framlagið samkvæmt tillögum sli- tabúanna aðeins 334 ma.kr. Þetta vekur áleitna spurningu um hvernig slíkt framlag geti verið jafngilt áð- urnefndum fjárhæðum. Draumsýn eða veruleiki ? Afnám gjaldeyrishafta gæti verið draumsýn sem ekki fær staðist, án enn meiri yfirtöku á gjaldeyris- eignum en 690-850 ma.kr., kannski vel yfir 1.000 ma. Ástæðan er sú að bólukrónur sem geta ógnað greiðslujöfnuði er ekki einungis að finna í sjóðum þrotabúa föllnu bankanna heldur í djúpum vösum auðfíkla bólunnar og augljóslega í krónueignum lífeyrissjóðanna. Það er útilokað að einhverjir þeirra ráð- gjafa sem komið hafa að málum hafi ekki séð þetta. Þeir gætu hafa lent í þeirri aðstöðu að þegja um stað- reyndir sem ekki eiga upp á pall- borðið. Ráðherrar hafa ítrekað sagt að skref til afnáms hafta séu á næsta leiti, en skrefin hafa látið á sér standa. Af máli forsætisráð- herra á Alþingi nýlega, þegar hann svaraði fyrirspurnum um stöðu mála, sýndist mér stefna í átök við kröfuhafana, fyrst stöðugleika- framlög og stöðugleikaskattur eiga að vera jafngild. Hann tiltók og taldi upp eignir, því miður án talna, og sagði framlög frá slitabúum föllnu bankanna í beinhörðu fé verða aðeins hluta af þeim fram- lögum sem búin leggja fram og því ekki rétt að horfa eingöngu til þess. Einnig verði um að ræða afhend- ingu ýmissa eigna, framsal krafna, innlán, skilyrt skuldabréf og hlut- deild ríkisins í söluandvirði nýju bankanna. „Þannig að það er mjög villandi, og raunar bara rangt, að tala um stöðugleikaframlagið eins og það sé eingöngu þessi tiltekna peningaupphæð,“ sagði ráðherrann sem nefndi engar tölur og ræddi því miður ekki um gæði þessara eigna. Þar sem ætlunin er að taka alls konar eignir sem greiðslu þarf að gera nákvæmlega grein fyrir gæð- um þeirra eigna. Jafnvel þarf að áskilja frekari greiðslur frá kröfu- höfum, reynist eignirnar minna virði þegar á reynir, og jafnvel halda eftir reiðufé því til trygg- ingar. Munum að allt sem getur far- ið úrskeiðis mun fara úrskeiðis. Verðmæti fákeppnisbanka Fjármálaráðherra var í viðtali á „Gömlu gufunni“ 21. október. Rætt var um nýjasta útspil slitastjórnar Glitnis, að afhenda ríkssjóði Ís- landsbanka upp í stöðugleika- framlög. Fram kom að verðmæti Landsbankans og Íslandsbanka gæti verið um 400 milljarðar. Verð- mæti fyrirtækja fer eftir hagnaði þeirra. Athuga ber í þessu sam- bandi að fákeppnisfyrirtæki skammta sér hagnaðinn úr hendi al- mennings. Hvernig getum við metið banka á sama hátt og fyrirtæki í samkeppni í þessu ljósi? Á þjóðin að meta það hátt sem tekið er af henni sjálfri? Mun guð blessa Ísland? Óveðursský hafa verið að hrann- ast upp á himni efnahagsmálanna að undanförnu. Enn þurfum við að standa í lappirnar, þó að bankakerf- ið sé ekki í húfi núna. Viðskiptajöfn- uðurinn er að versna m.v. sama tíma í fyrra. Við höfum skert út- flutningstekjur af makríl og leyft gengi krónunnar að styrkjast, sem rýrir viðskiptajöfnuðinn. Við höfum líka hækkað launin of mikið, einu sinni enn. Verðbólga og vísitala eru á uppleið og við blasir enn ein koll- steypan. Halda forystumenn ríkisstjórnarflokkanna að þessi þró- un muni færa þeim traust kjósenda á ný? Uppi eru hugmyndir um að erlendu kröfuhafarnir fái gríðar- legar fjárhæðir frá þjóðinni umfram það sem 39% stöðugleikaskattur léti þeim eftir. Af hverju? Ekki hefur verið skýrt frá því. Við megum ekki gefa eftir þá stöðu sem Neyðarlögin færðu okkur. Við eigum ekki að láta sendimenn „hrægamma“ skelfa okkur til að skerða þá stöðu sem „íslenska leiðin“ skapaði. Ef til ágreiningsmála kemur verða þau afgreidd fyrir íslenskum dóm- stólum. Það er til nóg af bönkum í hinum stóra heimi og við munum bara afla okkur trausts og virðingar með einurð og stefnufestu. Hinn valkosturinn er að birtast umheim- inum á ný sem algjörir vitleysingar í hagstjórn og fjármálum, sem ekki hafa lært neitt af sárri reynslu. Verður komist hjá því? Guð var beðinn að blessa Ísland fyrir sjö ár- um. Munum að hann hjálpar þeim sem hjálpa sér sjálfir. Eftir Ragnar Önundarson » „Hvernig getum við metið banka á sama hátt og fyrirtæki í sam- keppni í þessu ljósi? Á þjóðin að meta það hátt sem tekið er af henni sjálfri?“ Ragnar Önundarson Höfundur er viðskiptafræðingur og fv. bankastjóri. Afnám gjaldeyrishafta veldur áhyggjum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.