Víkurfréttir - 16.01.1986, Page 8
8 Fimmtudagur 16. janúar 1986
VÍKUR-fréttir
Til leigu
150 ferm. salur í Vogum, Vatnsleysuströnd,
er til leigu. Tilvalinn fyrir árshátíöir, veislur
og fleira. - Uppl í síma 6670 og 6635.
Slökkvitækja-
þjónusta
Suðurnesja
Kolsýruhleðsla - Dufthleðsia
Viöhald og viðgerðir á flestum
tegundum slökkvitækja
Reykskynjarar - Rafhlöður
Brunaslöngur - Slökkvitæki
Uppsetnmg ef óskað er.
Viðurkennd eftirlitsþjónusta
handslökkvitækja í bátum og skipum.
Slökkvitækjaþjónusta Suðurnesja
Háaleltl 33 - Keflavik - Síml 2322
„Ég sakna almennu
samskiptanna"
- segir Jóhann Líndal, sem
hættl um áramót sem raf-
veitustjóri Njarðvíkur eftir
tæplega 20 ára starf
Þó sameining rafveitnanna á Suðurnesjum sé miðuð
við 1. október sl., þá voru rafveiturnar við lýði fram til
áramóta, að þær voru lagðar niður. Flestir starfsmenn
rafveitnanna færðust þá yfir til Hitaveitunnar, þ.á.m.
rafveitustjórarnir. Sá þeirra sem lengstan starfsaldur
hefur er Jóhann Líndal, en hann var í tæp 20 ár sem raf-
veitustjóri í Njarðvík, auk þess sem hann sá um Vatns-
leysustrandarhrepp með starfinu. I tilefni þessara
tímamóta tóku Víkur-fréttir Jóhann tali.
Eru margir starfsmenn
Njarðvíkurbæjar sem voru
með lengri starfsaldur en
þú?
„Ekki samfleytt, Sigmar
Við kappkostum að hafa ávallt til afgreiðslu flestar dekkja-
stærðir fyrir lyftara, stærri tæki og vélar. Bjóðum dekk frá
Þýskalandi, Taiwan, Frakklandi og Ameríku. Sérpöntum með
stuttum fyrirvara „massív“ dekk. Sölusíminn er 91-28411 frá
8.30-18.00.
18x7
500-8
600-9
650—10
23x9-10
750-10
700-12
27x10 12
16/70x20
14 PR
8 PR
10 PR
10 PR
16 PR
12 PR
12 PR
12 PR
10 PR
550x15
700x15
750x15
825x15
600-15
10,5x18
12,0—18
10,5x20
12,5x20
14,5x20
8 PR
12 PR
12 PR
12 PR
8 PR
8 PR
12 PR
10 PR
10 PR
10 PR
| HRINGIÐ í |
! 91-28411S
og talið við Snorra,
■hannveit allt umdekkmj
/u Æisturbakki hf.
I——_ BORGARTUNI20
Sandgerðingar - Miðnesingar
Næstu daga verða sendir út gjaldseðlar fasteigna-
gjalda 1986. Greiðið gjöldin á réttum gjalddögum og
forðist óþarfa kostnað.
Lögtök vegna ógreiddra álagðra gjalda til sveitarsjóðs
Miðneshrepps 1985 munu hefjast á næstunni.
Gerið skil og forðist óþarfa kostnað.
Innheimta Miðneshrepps
Ingason hefur að vísu unnið
lengur í heildina, en hann
hefur hætt á milli og byrjað
aftur“.
Hvað var starfssvið raf-
veitustjóra?
„Hann sá um allan rekst-
ur rafveitunnar, frá því
smæsta til hins stærsta, s.s.
kaup á raforku, dreifingu á
henni, viðhald og endur-
byggingu, uppbyggingu
bæjarkerfisins og allt annað
er rafveitunni viðkemur“.
Nú urðu miklar breyting-
ar á starfssviði þínu við sam-
eininguna, hverjar urðu þær
helstar?
„Þær urðu mjög miklar,
því áður sá ég um allan dag-
legan rekstur sem rafveitu-
stjóri í Njarðvík, nú fellur
sá hluti alfarið niður. Inn-
heimtan fer fram á skrif-
stofu Hitaveitunnar og
verklegar framkvæmdir í
bæjarkerfinu lenda í ann-
arri deild en minni, þ.e. lág-
spennudeild. Mitt starfs-
svið verður rekstrarstjóri
háspennusviðs, þ.e. há-
spennudeildarinnar. Hefég
því yfirumsjón með há-
spennuílutningslínunum
frá Elliðaám og um öll Suð-
urnes, spennistöðvunum í
öllum byggðarlögunum á
svæðinu, ásamt öllum dreifi-
stöðvum og dreifilínum á
skaganum“.
En aðveitustöðin í Njarð-
vík og flugvöllurinn?
„Jú, það er sama með
það, en við erum að vinna
að því að taka við flugvell-
inum af Rafmagnsveitum
ríkisins, en þeir sáu um
stöðina á flugvellinum
ásamt háspennulínunum til
sl. áramóta“.
Milli manna er oft rætt
um að þetta sé algjört drasl
sem við vorum að kaupa af
RARIK?
„Það má kannski segja
að ástand þess sé ekki mjög
gott, þessar tvær línur eru
orðnar nokkuð gamlar, en
Hitaveita Suðurnesja er
með áætlun um að endur-
nýja þær, svo og tengibún-
aðinn sem víða er einnig
mjög gamall. Myndi þessi
endurnýjun fara fram
Jóhann Líndal,
fyrrverandi rafveitustjóri
í Njarðvík
ásamt uppbyggingu með
tilkomu fiskeldisstöðva
hér á svæðinu, því þá þarf
að gjörbreyta öllu há-
spennukerfinu og öllum að-
flutningslínum“.
Er í sjónmáli að við fram-
Ieiðum okkar eigið raf-
magn?
„Ég er ekki í neinum vafa
um að við getum það, þó
enn hafi ekki verið gengið
frá neinu varðandi Eld-
varpir og því mikla afli sem
þar er til staðar, en fyrst í
stað munum við framleiða
þá raforku sem við getum, í
Svartsengi".
Munum við þá ekki hafa
þörf á að kaupa raforku í
framtíðinni?
„Tæknilega þurfum við
þess ekki“.
Hvað er þér efst í huga
eftir þessi 20 ár?
„Þennan tíma hef ég
verið ákaflega heppinn með
mannskap og hefur sami
mannskapurinn unnið með
mér lengi, t.d. hefur einn
maður, Sigfús Elísson,
unnið með mér allan tím-
ann. Þá sakna ég
afskaplega þessara mann-
legu samskipta sem ég hef
átt við Njarðvíkinga og þær
góðu minningar sem ég á
um borgarana. En þó ég
hlakki mjög til að glíma við
nýtt verkefni á allt öðrum
grundvelli, þá óttast ég að
detta meira úr sambandi
við borgarana en áður.
Vil ég því nota þetta
tækifæri til að þakka öllum
Njarðvíkingum þau ágætu
viðskipti og samstarf sem
ég hef átt við þá sl. 20 ár, og
óska þeim alls hins besta í
framtíðinni. Vona ég að
þau viðskipti við Hitaveit-
una geti orðið á sama veg
og þau voru við mig og raf-
veituna, meðan ég starfaði
þar“. - epj.
ðlafur
Björnsson
krossaður
Forseti íslands, Vigdís
Finnbogadóttir, sæmdi að
tillögu orðunefndar 17 Is-
lendinga fálkaorðu á nýárs-
dag. Meðal þeirra sem
fengu riddarakross var
Ólafur Björnsson, útgerð-
armaður í Keflavík, fyrir
útgerðar- og félagsstörf.
epj-