Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.01.1986, Side 20

Víkurfréttir - 16.01.1986, Side 20
Fimmtudagur 16. janúar 1986 AFGREIÐSLA BLAÐSINS er að Hafnargötu 32, II. hæð. - Simi 471 i Spurningin: Hvað gerir þú þér til dægra- styttingar í skamm- deginu? Guðrún Stefánsdóttir: „Les aðallega bækur, las margar góðar um jólin“. Helga Ragnarsdóttir: „Eg get ekki sagt þér frá því, ha... ha... Segðu bara að ég lesi mikið“. Sigríður Gunnarsdóttir: „Hlusta á góða tónlist“. Sigríður Ingimundardóttir: „Ef ég geri mér eitthvað til dægrastyttingar þá les ég eitthvað, hef nýlokið við bók Aðalheiðar Bjarnfreðs- dóttur“. Steindór Sigurðsson: Gistihús tekur til starfa í Njarðvík í vor - Fyrsti áfangi að verða fokheldur Síðar í þessum mánuði er áætlað að fyrsti áfangi af þremur verði fokheldur af gistihúsi því sem þau hjón Steindór Sigurðsson og Kristín Guðmundsdóttir eru að láta reisa í Njarðvík. I þessum áfanga verða 10 herbergi til gistingar, mat- salur, eldhús, gestamót- taka og setustofa, og er gert ráð fyrir því að taka þennan áfanga í notkun í vor. Til að byrja með mun aðeins verða boðið upp á gistingu og morgunmat á staðnum, að sögn Steindórs. Sagðist hann myndi geta tekið að sér hópa og séð alveg um þá, því eins og kunnugt er rekur hann einnig flota hópferðabifreiða. Mun hún hafa skaddað spjaldhrygginn, auk togn- unar o.fl., og verður hún rúmliggjandi í a.m.k. 6 vikur. Sagði konan þetta um málið: „Þetta er vítavert kæru- leysi, að hafa slíka slysa- gildru á brennusvæðinu. Þar sem ég er í skóla og því ekki slysatryggð, mun égað sjálfsögðu sækja Njarðvík- urbæ til ábyrgðar og krefjast bætur af honum, enda er hann ábyrgur fyrir brennu þessari“. Vegna þessa tókum við tali Albert K. Sanders, bæj- arstjóra í Njarðvík. Hann hafði þetta um málið að segja: „Þetta var ekki á okkar veg- um, heldur unglinganna í hverfinu og hefur verið svo lengi sem menn muna. Þarna hefur ekki fyrr orðið slys, sem stafar trúlega af því að vindátt hefur oftast verið önnur en nú. Gerðu aðstandendur brennunnar sér því ekki grein fyrir slysahættu þarna, en þeir girtu af ýmsa hættulega staði. Brennusvæðið er staðsett á hól sem áður tilheyrði gamalli steypustöð og þarna leyndist því stór- hættulegur staður sem menn gerðu sér ekki grein fyrir, því hár steinkantur er á nokkurra metra kafla, og þegar menn eru með glampa í augum frá brennunni er hætta á að þeir taki ekki eftir honum. Munu því þeir sem halda þarna brennu gæta sín í framtíðinni og girða þetta svæði af“, sagði Albert K. Sanders um málið. - epj. Nýbygging Steindórs að Holtsgötu 49 í Njarðvík. Ekki hefur enn verið tekin ákvörðun um fram- hald á byggingarmálum, en Steindór hefur þegar tryggt sér nægjanlegt landrými til frekari framkvæmda á staðnum. Auk gistihússins hefur hann byggt þarna við Holtsgötuna verkstæði og þjónustuaðstöðu fyrir hóp- ferðabifreiðar sínar. - epj. „Vítavert kæruleysi“ - segir kona sem slasaðist illa er hún féll niður af háum steinkanti á áhorf- endasvæðinu við brennuna í l-Njarðvík Það slys varð við brenn- una í Innri-Njarðvík á gamlárskvöld, að kona sem var áhorfandi að brenn- unni gekk aftur á bak og hrapaði niður af háum steinkanti. Er fallið um 3-4 metrar og slasaðist hún illa, að eigin sögn. Komst hún heim af sjálfs dáðum og til læknis, sem gerði að meiðslum hennar. Fundu selkðpí Garðinum Sl. mánudagsmorgun l'undu skip- verjar á m.b. Arna Geir, selkóp, þar sem hann lá neðan við fiskvinnslu- hús Asgeirs hf. Komu þeir kópnum til þeirra Ásgeirsmanna er hlúðu að honum og reyndu að fá hann til að nærast, en það gekk illa. Síðan fékk hinn ungi kópur nýjan samastað hjá Sæ- dýrasafninu við Hafnarfjörð. Á myndinni sést einn starfsmaður Ásgeirs hf., Svavar Ósk- arsson, með kóp- inn í fanginu. - epj. Víkur-fréttir Málgagn Suðurnesja- manna

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.