Víkurfréttir - 06.03.1986, Page 5
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 6. mars 1986 5
Hvað varð um útvarp FS á starfsdögunum?
„Ég vil kenna Pósti og síma al-
farið um að drepa þetta niður“
r
- segir Hjálmar Arnason skólameistari, um furðuleg
vinnubrögð yfirverkfræðings Pósts og síma
Hann var ómyrkur í máli
skólameistari Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja, Hjálmar
Árnason, út í yfirverkfræð-
ing Pósts og Síma, er blaðið
spurði hann hvers vegna
ekkert hafi orðið úr fyrir-
huguðum útvarpssending-
um frá starfsdögum skól-
ans á dögunum.
Gefum Hjálmari orðið:
„Skólinn hefur þrisvar
sinnum sótt um leyfi til að
senda út á starfsdögum út-
varpsdagskrá, þrisvar sinn-
um hefur hann fengið leyfi
og þrisvar sinnum hefur
hann setið uppi með dautt
pappírsgagn. I fyrra feng-
um við öll tilskilin leyfi frá
útvarpsstjóra sem þá hafði
heimild til að veita þetta og
frá STEF vegna tónlistar-
flutnings og dagskráin var
tilbúin, en enginn sendir
fékkst.
Póstur og Sími taldi sig
þá ekki eiga sendi, en ég
fékk munnlegt loforð frá
yfirverkfræðingi stofnunar-
innar um að þeir myndu
lána fjóra til fimm senda til
skóla á árinu 1986, til út-
varpssendingar og þar sem
maður tekur mark á em-
bættismonnum töldum við
það nokkuð öruggt að við
gætum haldið úti útvarps-
sendingum í ár. Sendi ég út-
varpsstjóra bréf 1. des. s.l.
þar sem ég óskaði eftir leyf-
inu og fékk frá honum
heimild þann 18. desember,
en þar var þó tekið fram að
Utvarpið hvorki láni né
leigi senda. Sendi ég þá
Pósti og Síma strax um-
sókn á þar til gerðum eyðu-
blöðum, um að fá leigðan
sendi og úthlutað tíðnisviði.
Mér hefur verið sagt að
Pósti og Síma bæri að svara
umsóknum sem kæmu á
þessum eyðublöðum innan
hálfs mánaðar, en samt
fékk ég ekkert svar.
Nemendurnir voru sjálf-
ir farnir að ganga í þetta og
töluðu við umdæmisstjóra
Póst og Síma hér, Björgvin
Lúthersson, og var hann
mjög jákvæður og allur af
vilja gerður til að hjálpa
okkur. Nú, þegar skammt
var orðið til stefnu, hringdi
ég í yfirverkfræðing Pósts
og Síma og óskaði eftir því
að fá a.m.k. svar við form-
legri beiðninni, jafnframt
því sem ég minnti hann á
ársgamalt loforð þess efnis.
Þá bendir hann á (munn-
lega) að svar útvarpsstjóra
gildi ekki lengur, þar sem
útvarpslaganefnd hafi tekið
til starfa um áramót og hún
ein geti veitt þessa heimild.
Þessa fullyrðingu dreg ég í
efa, vegna þess að heimild
útvarpsstjóra er veitt fyrir
áramót og á þeim tíma var
hann sá aðili sem hafði um-
boð til að veita þetta. Hafði
ég þá samband við formann
útvarspréttarnefndar,
Kjartan Gunnarsson, og
afgreiddi hann leyfið í gegn
fyrir okkur á einum degi,
þannig að það fékkst. Þá
kom svar frá yfirverkfræð-
ingi Pósts og Síma (ekki
skriflegt), að því miður þá
ætti stofnunin ekki til senda
til að lána okkur og gat
engu svarað þegar hann var
minntur á eldra loforð.
Þarna vorum við tilbúin
með mjög vandaða dag-
skrá, sem nemendur höfðu
lagt á sig mikla vinnu við að
undirbúa og var hún vel
skipulögð hjá þeim, fjöl-
breytileg og skemmtileg
dagskrá sem átti að ná til
allra Suðurnesjamanna.
Allt var tilbúið nema þetta
litla tæki sem kallast sendir.
GJALDSKRÁ
Hitaveitu Suðurnesja
frá 1. mars 1986
RAFMAGN ER VAR % BREYT.
(lækkun)
A1 Almenn notkun .... KR/KWH 3.70 4.65 20.43%
A1 Almenn notkun .... KR/ÁR 1.280.00 1.600.00 20.00%
A2 Mannvirkjagerö .... KR/KWH ... 5.75 7.20 20.14%
A2 Mannvirkjagerð .... KR/ÁR 3.200.00 4.000.00 20.00%
B1 Vélanotkun, meiri háttar .... KR/KWH 1.35 1.70 20.59%
B1 Vélanotkun, meiri háttar .... KR/KW/ÁR 5.000.00 6.250.00 20.00%
C1 Órofinn hiti .... KR/KWH 2.90 3.10 6.45%
C1 Órofinn hiti .... KR/ÁR 4.200.00 4.500.00 6.67%
C2 Rofin daghitun .... KR/KWH 0.96 1.03 6.80%
C2 Rofin daghitun .... KR/ÁR 3.900.00 4.200.00 7.14%
C3 Rofin næturhitun .... KR/KWH 0.53 0.57 7.02%
C3 Rofin næturhitun .... KR/ÁR 3.900.00 4.200.00 7.14%
HEIMTAUGARGJÖLD:
63A - 1 fasa .... KR 23.600.00 26.200.00 9.92%
63A - 3 fasa .... KR 25.650.00 28.500.00 10.00%
100A-3fasa .... KR 41.000.00 45.600.00 10.09%
HEITT VATN:
Mínútulíter pr. mánuð .... KR 900.00 980.00 8.16%
Tonn .... KR 45.00 49.00 8.16%
HEIMÆÐARGJALD:
Allt að 400 mJ .... KR 47.000.00 50.000.00 6.00%
Þá hefur verið ákveðið að þeir sem tengja eldra íbúðarhúsnæði með öðrum
hitagjafa, við hitaveitu, fái 33% lækkun tengigjalds.
KR 730.00 780.00 6.41%
Hjálmar Árnason, skólameistari
Ég vil kenna Pósti og
Síma alfarið um að hafa
drepið niður þessa viðleitni
skólanna til að halda uppi
skólaútvarpi á starfsdög-
um. Við erum ekki eini
skólinn, útvarspsréttar-
nefnd er búin að afgreiða
sjö eða átta leyfi til fram-
haldsskóla einmitt á þess-
um vikum, til þess að reka
svona skólaútvarp og hef
ég fregnað að á fundum
nefndarinnar hafi setið full-
trúar Pósts og Síma og eng-
ar athugasemdir gert og
síðan lenda allir þessir skól-
ar í vandræðum.
Utvarpsréttarnefnd
eyðir tíma í að taka um-
sóknir fyrir og afgreiða þær
athugasemdarlaust frá
Pósti og síma, en svo kem-
ur í ljós að þetta er ómerki-
legt pappírsgagn, af því að
sendir er ekki til og finnst
mér að stofnunin hafi gjör-
samlega brugðist, þ.e.a.s.
ég er ekki að tala um starfs-
fólk Pósts og Síma hér,
heldur yfirverkfræðing og
starfslið hans. Það hefur
brugðist algjörlega loforð-
um og jafnvel skyldum sín-
um og eru þetta mjög
furðuleg vinnubrögð.
Nú, við reyndum allt,
hringdum út um allt land,
en útvarpssendar sem laus-
ir voru, voru gerðir upp-
tækir í verkfallinu í fyrra.
Vorum við meira að segja í
sambandi við fólk í Kaup-
mannahöfn og Englandi,
en allt kom fyrir ekki.
Þannig að útvarpið féll
niður í þriðja sinn og ég lýsi
skömmum mínum á vinnu-
brögð Pósts og Síma“ sagði
Hjálmar Árnason, skóla-
meistari, að lokum. - epj.
PARKET
Einu sinni enn er Tarkett-parket í farar
broddi í parket-framleiðslu.
• Á markaðinn er nú komið parket með
nýrri lakkáferð, sem er þrisvar sinnum
endingarbetri en venjulegt lakk.
• Veitir helmingi betri endingu gegn
rispum en venjulegt lakk.
• Gefur skýrari og fallegri áferð.
• Betra í öllu viðhaldi.
• Komið og kynnið ykkur þessa nýju og
glæsilegu framleiðslu frá Tarkett.
• Alger bylting á íslenska parket-
markaðinum.
Járn & Skip
Víkurbraut - Sími 1505
NÝTT
NÝTT
LOKUNARGJALD